Þjóðviljinn - 17.09.1983, Side 20

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. september 1983 bæjarrölt Hipparnir í efra J Ég var einn af þeim sem sat ! prúöur og hljóöur á efri bekkjum j Laugardalshallarinnar s.l. laugardagskvöld og hlýddi á æö- isgengið rokk. Þess var látiö getið í blaðagreinum aö einmitt á þess- um stað hefðu gömlu hipparnir setið, ráðsettir og virðulegir, og j einhver nefndi ’68-kynslóðina. J Niðri á gólfinu voru svo ungling- j arnir og létu öllum illum látum. j Já, það er þetta með jresa ’68- j kynslóð og hippana. Eg er nú j eiginlega eldri en hvort tveggja. í Ég útskrifaðist sem stúdent úr I Menntaskólanum í Reykjavík, j sem þá var eini menntaskólinn í borginni, árið 1965 og það er mjög merkilegt að horfa á'gamlar hópmyndir af mér og sambekk- ingum mínum. Þegar við útskrif- uðumst vorum við allir eins, snöggklipptir, vel rakaðir, allir í svörtum smóking, hvítri skyrtu og með mjóa þverslaufu. Stelp- urnar voru í svörtum drögtum með hvíu um hálsinn, allar eins. Að sjá svipaðar hópmyndir 4-8 árum seinna er eins og að líta yfir dýragarð. Það er hippakynslóð- in. Einn af sambekkingum mínum hét Magnús Þór Jónsson. Á stú- dentsmyndinni er hann í engu frábrugðinn öðrum: í svörtum smóking, hvítri skyrtu og með svarta þverslaufu, snöggklipptur. Þessi fallegi ungi maðurárið 1965 varð síðar kunnur undir nafninu Megas. Það má eiginlega segja að skipt hafi í tvö horn með bekkjarsyst- kini mín. Sum soguðust inn í upp- reisnarandann, sem greip um sig fáum árum seinna, og urðu brátt eins og apar: með hár niður á herðar, illa til fara og gamli smókingurinn var settur í rusla- tunnuna. Margir fóru til útlanda til náms og ég minnist þess sum- arið 1968 að þá hitti ég ýmsa bekkjarfélaga mína, sem áður höfðu verið grandvarir íhalds- drengir, sem hvorki datt af né draup, en gengu nú um með kreppta hnefa, logandi af eld- rauðum byltingaranda.Svo voru aðrir sem samsömuðust sér eldri mönnum. Einn samstúdent minn var t.d. Markús Örn Antonsson. Hann er enn í smókingnum sín- um. Ég hreifst af hinum nýja anda þó að hvorki væri ég í San Frans- iskó, Berlín né París. Vér gerumst nú miðaldra allir sem einn. Og sátum á efri bekk- jum Laugardalshallarinnar um helgina. Ég hélt út í eina 5 tíma en þegar Crass var komið á fullt þoldu hlustir mínar ekki meir. Ég laumaðist út svo lítið bar á og fór heim í háttinn. Mér gekk illa að sofna enda hár sónn í hausnum á mér. En mér fannst æðislega gaman, yngdist um 15 ár. -Guðjón ] j veistu? ! að Njörður P. Njarðvík er alls : ekki úr Njarðvík heldur frá ísa- j firði. i aðættarnafniðBriemerdregiðaf bæjarnafninu Brjánslækur á Barðaströnd. Hann var áður fyrr gjarnan nefndur Briemslækur. að menn hafa ekki hugmynd hvaðan ættarnafnið Gröndal er runnið. Það var Benedikt i Gröndal skáld eldri sem fyrstur ! bar það. j að ættfaðir Schramaranna á ís- j landi var Chr. G. Schram kaup- maður á Skagaströnd. Svo segir um hann í Islandssögu Þorkels Jóhannessonar: Þesserþáogget- j andi, að Schram og verslun hans í ! hinúm forna Höfðakaupstað j hafði á sér verra orð en nokkur j verslun önnur á landinu á þeim | tíma. (byrjun 19. aldar) og hélst j það meðan Schrams naut við. að ættarnafnið Hafstein (eða Havsteen) er komið frá Fær- eyjum. að Eiður Bergmann, fyrrv. fram- j kvæmdastjóri Þjóðviljans og j Árni Bergmann, ritstjóri Þjóð- I j viljans, eru ekkert skyldir. i ! j að ein þekktasta ættin í Fær- j j eyjum hetir Effersö og er kennt j j við Örfirisey í Reykjavík. j að einn af þekktustu nútímalista- j ! mönnurn Bandaríkjanna hetir i Alexander Calder. Pabbi hans j gerði Leifsstyttuna á Skólavörðu- j holti. að hús Menntaskólans í Reykja- \ vík við Lækjargötu, sem var reist j árið 1846, var byggt nokkuð fyrir '■ j utan bæinn til að halda skólapilt- j um frá bæjarsollinum. ! að Langholtshverfið í Reykjavík J er kennt við hús, sem þar stóð en j j það var skírt eftir Syðra- j ‘ Langholti í Flóa. ! ! j að Barónsstígur er kenndur við j i fjós barónsins á Hvítárvöllum og ! : það stendur enn neðarlega við j i götuna og er nú notað í þágu Raf- j i magnsveitu Reykjavíkur. ! að Snorrabraut var áður hluti af j I Hringbraut, sem þá náði í hring í • | kringum Reykjavík. sunnudagshrossgátan Nr 389 / Z 3 V S 6 7 8 9 /D u V 12 3 V // 2 /3 10 II S? tð % V 7 iT V 18 /& 22 1$ 2<i S 17- r V 3 5~ V 18 3 17 S? 17 T~ 8 8 6~ 18 /2 S H- 18 S /S" 20 /3 Jí2 ~2~ S* 18 /9 r // rv' S/ 19 3 V •7 // 3 2/ V ? b 3 18 3 /2 22 /9 18 22 <7 isr <? H 2* V- S // V 3 /3 £ V 17 18 8 7- /J 5 23 )/ V r 12 S ¥ 23 S V 8 V n 22 24” /£> // V 2 8 s? r 11 J9 l(p 5 )! r /3 íT <7 21* 22 J?3 i4 27 zé 9 S // V /<? £ 18 S 11 SP 18 17 £ /S )(? 26~ 23 II 18 V 7 U 23 18 £ 28 $0 /S" 2 S /V /É s' S2 /2 II 31 23 Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóð- viljans, Síðumúla 6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 389“. Skila- frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 9 23 IS /8 12 S 29 23 Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þv. eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram. að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér- hljóða og breiðum. t.d. getur a aldrei komið í stað áog öfugt. Verðlaunin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 385 hlaut Sigríður Ragnarsdóttir, Forsæludal, 541 Blönduósi. Þau eru skáldsagan Slátúrhús 5 eftir Kurt Vonnegut. Verðlaunin að þessu sinni er skáldsagan Spámaður í föður- landi eftir Jón Orm Halldórsson. AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.