Þjóðviljinn - 07.10.1983, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.10.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN- Föstudagur 7. október 1983 Friðarsamtök listamanna stofnuð 3. október 1983: Lífið er þess virði” „Lífiöerþess viröi”. Þannig hljómar kjörorð Friðarsamtaka listamanna sem stofnuð voru s.l. mánudagskvöld á fjölmennum fundi í Kvosinni í Reykjavfk. 500 listamenn hafa þegar gerst stofnfélagar í friðarsamtökunum en listar sem menn geta ritað sig á eru enn í gangi hjá aðildarfélögum Bandalags íslenskra listamanna. Flestum er ef laust fersk í minni dagskrá undir sama kjörorði sem efnt vartil í Þjóðleikhúsinu í lok sumars. Síðan hafa listamenn ekki setiðauðum höndum. Viðar Eggertsson leikari, einn fimmmenninganna sem kjörnir voru í e.k. skipulagsnefnd samtakanna á stofnfundinum sagði í samtali við Þjóðviljann að þegar hefðu margir skráð sig til þátttöku í starfshópum, sem hver um sig vinnur að ákveðnu verki. Meðal þess má nefna tengsl við innlendar og erlendar friðarhreyfingar, upplýsingaöflun og miðlun, m.a. í skólum og á vinnustöðum og síðast en ekki síst að undirbúa e.k. listahátíð í þágu friðar. „Markmiðiöeraðvirkja hvern og einn og nýta listræna þekkingu og krafta í þágu málstaðarins”, sagði Viðar. Auk hans eru í nefndinni Þorkell Sigurbjörnsson.tónskáld, Helga Bachmann leikari, Ágúst Guðmundsson, kvikmyndagerðarmaðurog Sigrún Guðjónsdóttir, myndlistarmaður. Samtökin munu taka þátt í starfsemi PAND-lnternational, sem eru Alþjóðleg friðarsamtök listamanna stofnuð 2. september s.l. íHamborg. Það var Þorkell Sigurbjörnsson, formaður Bandalags íslenskra listamanna sem setti fundinn á mánudag. Helga Bachmann leikari fluttiljóð eftirTómas Guðmundsson og Egill Ólafsson söng við eigin undirleik. Einnig fluttu Edda Þórarinsdóttir og Sigurður Karlsson kafla úr leikriti Svövu Jakobsdóttur, „Lokaæfingu”, sem Þjóleikhúsið frumsýndi í gærkvöld í leikstjórn Bríetar Héðinsdóttur. Á fundinum f luttu þrír listamenn ávörp, og eru þau birthérásíðunni ásamtsetningarorðum Þorkels. Það voru þau Þorsteinn Ö. Stephensen, leikari, NínaBjörk Árnadóttir, skáld og Stefán Benediktsson, arkitekt. Ljósmyndari Þjóðviljans, Magnús, tóksvipmyndiraffundinum. Samkomusalurinn í Kvosinni var þéttskipaður. - Ljósm. Magnús. Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld: Listamenn geta flutt nýjan tón í umræðuna Það er sagt, að eitt það, sem ger- ir okkur að manneskjum sé vitn- eskjan um dauðann - og það, sem gerir okkur óhlýðin við þá vissu, sé lífsþorstinn, hinn sífelldi barna- skapur að reyna að búa eitthvað til, endurnýja, gera eitthvað aftur og betur. Listamenn eru því marki brenndir. Og eins og annað fólk - þótt það gangi yfirleitt hljóðlegar en lista- menn frá vöggu til grafar - þá þráum við frið, okkar vegna, vegna barna okkar og verka. Hundruð listamanna hafa nú þegar með undirskrift sinni knúið á um stofnun Friðarsamtaka lista- manna. Þeir eru því alveg í takt við þúsundir starfssystkina sinna um víða veröld, listamanna sem m.a. gengust fyrir stofnun Alþjóðlegra friðarsamtaka listamanna - PAND - fyrir réttum mánuði í Hamborg. En er ekki þegar til nóg af friðar- samtökum? Friðarsamtök eru sannarlega til - en þeim hefur ekki tekist að yfirs- tíga flokkadrætti, þar sem minn friður er öðruvfsi en þinn friður. Líkt og læknar hér á dögunum, þá langar okkur til að hoppa upp úr þessum hjólförum vanans og mynda friðarsamtök, sem meta ekki frið eftir hagkerfum, eða því, hvort Jón eða Gunna komist í hreppsnefnd eða á þing. Listamenn eru í eðli sínu óvinir vanans. Hugkvæmni þeirra ætti því að gera þá frjálsari í umræðu um friðarmál og framtíð lífs á jörðinni, frjálsari en stjórnmálamenn og það fólk, sem er hallt undir þá. Ég ætla ekki nokkrum heilvita mönnum svo illt, að þeir vilji vísvit- andi sprengja okkur öll í loft upp - eða drepa okkur með sýklum. En brjálæðingar komast líka í valda- stóla. Við þekkjum þá Hitler og Stalín frá nýliðinni sögu stórþjóða, og við könnumst við vasaútgáfurn- ar af þeim um víða veröld. Villi- menn allra tíma hafa átt það til að ganga berserksgang. En þeir hafa aldrei verið hættulegri en nú á dögum, með sífellt öflugri vopn. Eg hræðist ekki réttkjörna full- trúa siðaðra þjóða þessa heims. Ég hræðist valdaræningjana, taugaveikluðu og ábyrgðarlausu undirtyllurnar, sem aldar eru upp til ógagnrýninnar hlýðni og heraga. Ég hræðist leyniskytturnar... Ég er sannfærður um það, að listamenn geti komið fram með nýjan tón í þessar umræður yfirleitt - fundið ný tök á þessum málum. Endurnýjunarþörf þeirra og ný- sköpunarvilji á að gera þeim það kleift. Stofnun Friðarsamtaka listamanna er tímabær: Lífið er þess virði. Leikarar héldu hópinn a.m.k. á þessu borði þar sem m.a. má sjá Helgu Hjörvar, Erling Gíslason, Þóru Sigurður A. Magnússon rithöfundur og Ágúst Guðmundsson, kvikmynda Friðriksdóttur, Steinunni Jóhannesdóttur, Guðbjörgu Þorbjarnardóttur og myndlistarmanninn Gest Þor- gerðarmaður. Ljósm. - Ágúst. grímsson. Ljósm. - Magnús.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.