Þjóðviljinn - 07.10.1983, Blaðsíða 12
2(K SÍÐÁ - ÞJÓDVILJINN Fðstudagnr 7. októbcr 1983
ALÞYDUBANDALAGIÐ
Norðurland eystra
Kjördæmisráðsfundur
Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn á
Húsavík 8. og 9. okt. Helstu atriði dagskrár:
Laugardagur 8. október.
Kl. 11.00: Þingið sett, skýrsla formanns og reikningar.
kl. 13.30: Uppgjör kosninga og kosningasjóðs.
kl. 14.30: Atvinnumál og stjórnmálaviðhorfið.
kl. 16.00: Starfið í kjördæminu og útgáfumál.
kl. 17.00: Starfshópar starfa.
Sunnudagur 9. október
Kl. 10.00: Álit starfshópa. \
kl. 13.00: Laga- og skipulagsmál
og framhald umræðna um stjórnmálaástandið með gest-
um þingsins, þeim Helga Seljan og Ólafi R. Grímssyni.
Þingslit áætluð kl. 14.30. - Stjórn kjördæmaráðsins.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði
verður haldinn þriðjudaginn 11. október kl. 20.30 í
Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf.
2) Kosning fulltrúa á landsfund AB.
3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð.
4) Geir Gunnarsson alþm. hefur framsögu um
stjórnmálaástandið
Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Geir
Kjördæmisráð AB Reykjanesi
Aðalfundur kjördæmisráðs AB í Reykjanesi verður haldinn í samkom-
uhúsinu í Garði, laugardaginn 6. nóvember n.k. Dagskrá nánar aug-
lýst síðar. - Stjórn Kjördæmisráðs.
Alþýðubandalag Borgarness og
nærsveita
Vetrarstarf félagsins hefst með almennum félagsfundi í húsnæði okk-
ar, Brákarbraut 3, föstudaginn 14. október kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Undirbúningur kjördæmisráðs-
fundar. 3. Undirbúningur landsfundar, a) tillögur um breytingar á
skipulagi Alþýðubandlagsins, b) drög að ályktunum landsfundar, c)
kosning 5 fulltrúa á landsfund. 4. Önnur mál. Félagar eru eindregið
hvattir til að mæta. - Alþýðubandalag Borgarness og nærsveita.
Fulltrúaráð ABR
Fundi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Nánar auglýst síðar.
Stjórnin
Ráðstefna
Borgarmálaráðs ABR
Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykja-
vík boðar til ráðstefnu um borgarmál laugar-
daginn 8. október kl. 10:00 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá verður sem hér segir:
kl. 10.00 Ráðstefnan sett: Sigurjón Pétursson.
kl.10.05 Svavar Gestsson: Stefna Alþýðu-
bandalagsins í minnihluta - hvernig
ber að haga áróðri - samvinna við
þingmenn okkar í Reykjavík.
kl.10.30 Álfheiður Ingadóttir: Hvernig komum
við okkar sjónarmiðum á framfæri -
samstarfið við hina minnihlutaflokk-
ana - ber að leggja áherslu á ein-
hverja sérstaka málaflokka?
kl.10.50 Starfshópar skipaðir
kl.12.00 Matur
kl.13.15 Vinna í starfshópum heldur áfram.
Kaffi kl. 15.45.
kl.16.00 Niðurstöður starfshópa.
Umræður.
kl.18.00 Ráðstefnunni slitið.
Til ráðstefnunnar eru sérstaklega boðaðir full-
trúarí borgarmálaráði, fulltrúar ABR í nefndum
og ráðum borgarinnar, þingmenn flokksins í
Reykjavík, stjórnarmenn ABR og aðrir þeir
flokksmenn sem starfa að borgarmálum m.a. í
baknefndum og ekki eru taldir upp hér að ofan.
Borgarmálaráð ABR.
Sigurjón
Álfheiður
Félagsbréf ABR
Fyrsta félagsbréf vetrarins hefur verið sent til félagsmanna ABR. Þeir
félagsmenn sem ekki hafa fengið bréfið eru hvattir til að snúa sér til
skrifstofu ABR. - Stjórn ABR.
Starfshópur um menntamál
Annar fundur hópsins verður miðvikudaginn 12. okt. kl. 20:30 að
Hverfisgötu 1Ö5. Nánar auglýst síðar. - Hópurinn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skuldar þú árgjaldið?
Stjórn ABR hvetur alla þá sem enn skulda gjaldfallin árgjöld að geiða
þau núna um mánaðamótin. Stöndum í skilum og eflum starf ABR.
Happdrætti
Styrktarfélags
vangefinna:
Mazda í
vinning
Þessa dagana stendur yfir út-
sending á happdrættismiðum í hinu
árlega happdrætti Styrktarfélags
vangefinna. Vinningar verða 10
talsins. Aðalvinningurinn verður
að þessu sinni Mazda 626 Hatch-
back L X 2 árgerð 1984 að verð-
mæti um 370 þús. kr.
Annar vinningur er bifreið að
eigin vali að upphæð kr. 220 þús.
og 3. vinningur bifreið að eigin vali
að upphæð kr. 160 þús. Þá verða
dregnir út 7 vinningar, húsbúnaður
að eigin vali, hver að upphæð kr. 60
þús.
Heildarverðmæti vinninga er um
1170 þús. kr. Öllum ágóða happ-
drættisins verður varið til bygging-
ar fjögurra raðhúsa í Suðurhlíðum,
en smíði þeirra hófst í vor og er
stefnt að því, að þau verði fokheld í
þessum mánuði.
Þrjú húsanna eru ætluð undir
sambýli, en hitt sem skammtíma
fósturheimili.
Prátistar í
Júnkaragerði
Nú þegar húmið er farið að síga
aftur á kvöldin og Iauf eru að byrja
að sölna á trjám, er besti tíminn til
að endurnæra líkama og sál í kraft-
bylgjum haustsins.
IJunkaragerði á Reykjanesi (ná-
lægt Höfnum) hafa prátistar keypt
gamalt, járnklætt timburhús. Stað-
urinn er aldagömul bújörð, sögu-
lega merk, rétt við sjó á vestan-
verðu nesinu og er sem vin í annars
hrjóstrugu landslagi. Þar verður
fyrirhugað helgarmót haldið og er
það sérstaklega meint fyrir þau
sem vilja kynna sér andleg og ný-
humanisk viðhorf og heimspeki-
legan grundvöll prát, sem hug-
myndafræði er gengur í berhögg
við frjálshyggju jafnt og marxisma.
Beinist að dýpri skilningi á mann-
legu eðli, þörfinni á að glæða til-
finningu manna hver fyrir öðrum
og tengslum sínum við lífheim og
allan alheim.
Á samfelldri dagskrá helgar-
mótsins verða m.a. eftirfarandi
þættir: Hugleiðsla (kennsla fyrir
byrjendur), fyrirlestrar og um-
ræður um andlega ög þjóðfélags-
lega heimspeki, ný-humanisma
o.fl., möntrusöngur(mantra: hljóð
notað í hugleiðslu), líkamlegar/
sálrænar æfingar (asanas), jurta-
fæði, göngutúrar, leikir, kvöld-
vökur ofl..
Samtök prátista hafa fengið til
landsins sérþjálfaðan jógakennara
frá Filippseyjum, Ac. Sarvabo-
dhananda sem verða mun aðalleið-
beinandi á mótinu ásamt kvenjóg-
anum Ac. Susama, sem dvalið hef-
ur hér á landi um alllangt skeið á
vegum Ananda Marga hreyfingar-
innar, og er einnig frá Filipps-
eyjum.
Lagt verður af stað á föstudags-
kvöld 7. okt. kl. 21.00 frá Aðal-
stræti 16 og komið aftur í bæinn um
kl. 20.00 á sunnudagskvöld.
Þau sem hyggja á þátttöku, vin-
samlega hafið samband í síma
23588 eða 16590. Mótsgjaldi verð-
ur stillt mjög í hóf.
Getið skal þess í leiðinni að jóg-
inn Ac. Sarvabodhananda mun
dvelja hér á landi fram að föstudeg-
inum 15. okt. Þeim sem vilja hitta
hann er velkomið að banka uppá
eða hringja.
Fréttatilkynning frá
Samtökum prátista.
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráð AB í Reykjanesi,
Æskulýðsfylking AB og
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Ráðstefna um laga- og skipulagsmál
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjanesi, Æskulýðsfylking Al-
þýðubandalagsins og Alþýðubandalagið í Reykjavík boða til ráðstefnu
um flokksstarf og laga- og skipulagsmál um helgina 15.-16. október.
Ráðstefnan verður nánar auglýst síðar.
Félagsfundur
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar miðviku-
daginn 19. október kl. 20:30 að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar.
- Stjórn ABR.
Borgarmálaráð ABR
Fundir í borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík eru alla mið-
vikudaga kl. 17:00. - Formaður.
ÁRÍÐANDI ORÐSENDING
til styrktarmanna Alþýðubandalagsins
Þeir styrktarmanna sem fengið hafa senda gíróseðla eru vinsam-
legast beðnir að gera skil sem allra fyrst.
Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni
Aðalfundur
Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur aðalfund
þriðjudaginn 11. október n.k. að Kirkjuvegi 7. Fundurinn hefst
kl. 20.30. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Fé-
lagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Starfshópur um húsnæðismál
Starfshópur um húsnæðismál heldurfund þriðjudaginn 11. október kl.
20:30 að Hverfisgötu 105.
Allir velkomnir. - Hópurinn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Starfshópur um
utanríkis- og friðarmál
Fyrsti fundur starfshóps um utanríkis- og friðarmál verður þriðjudaginn
11. október kl. 20:30 að Hverfisgötu 105.
Félagar fjölmennið.- Hópurinn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Starfshópur um örtölvumál
Starfshópur um örtölvumál er boðaður till fundar fimmtudaginn 13.
október kl. 20:30 að Hverfisgötu 105.
Allir velkomnir. - Hópurinn.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Starfshópur um
efnahags- og kjaramál
Fundur í starfshóp um efnahags- og kjaramál er boðaður miðvikudag-
inn 12. október kl. 20:00 að Hverfisgötu 105. - Hópurinn
D^SBRpNj Verkamannafélagi*
Dagsbrún
Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 9.
október kl. 14 í Iðnó.
Fundarefni:
1. Félagsmál.
2. Kosning fulltrúa á 11. þing VMSÍ.
3. Viðhorf í kjaramálum.
4. Önnur mál.
Félagar fjölmennið og sýnið skírteini við inn-
ganginn.
Stjórnin.
Fóstra
Fóstra óskast á dagheimilið Hörðuvöllum,
hálfan eða allan daginn. Ennfremur aðstoð-
arstúlka á deild eftir hádegi.
Upplýsingar hjá forstöðumanni í síma 50721.