Þjóðviljinn - 07.10.1983, Blaðsíða 10
18 SÍÐA - ÞJÓÖVÍLJIHSI Föstudágur' 7október'1983'
Stofnendur skipstjóra- og stýrimannafélagsins Aldan árið 1893. Efsta röð frá v.: Bergur Sigurðsson,
Þorsteinn Þorsteinsson, Markús F. Bjarnason, Þorvaldur Jónsson, Þorlákur Teitsson, Pétur Þórðarson,
Bergur Jónsson, Marteinn Teitsson. Önnur röð frá v.: Guðmundur Stefánsson, Páll Hafliðason, Guðmund-
ur Kristjánsson, Hannes Hafliðason, Jens Nyborg, Pétur Þórðarson, Sigurður Símonarson. Fremsta röð frá
v.: Finnur Finnsson, Sigurður Jónsson, Jón Þórðarson, Stefán Pálsson, Ásgeir Þorsteinsson, Magnús
Magnússon, EHert Schram, Stefán Snorrason, Björn Sveinsson.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan 90 ára
Framan af árum félagsins var
fánamálið mjög á dagskrá. Bjarni
frá Vogi var fenginn til að halda
fyrirlestur um það og á þeim fundi
var bláhvíti fáninn samþykktur.
Áður höfðu Öldumenn látið gera
félagsfána úti í Danmörku. Hafði
hann bláan grunn og er elsti stétt-
arfélagsfáni á íslandi. í tilefni af
afmælinu hefur nú verið ákveðið
að gefa Þjóðminjasafninu fánann
og fer afhending hans fram í
Þjóðminjasafninu í dag kl. 15.00.
Ýmsir fleiri munir eru til frá fyrstu
árum félagsins svo sem gerðabæk-
ur allar frá upphafi og til þessa dags
og myndir af stofnendum og
eiginkonum þeirra.
Athyglisvert er að Öldumenn
sömdu frumvarp til siglingalaga,
svo vel úr garði gert, að það fór
óbreytt gegnum Alþingi og varð að
lögum.
Árið 1912 var ungur sjómaður
við listnám úti í Danmörku. Hann
sótti um námsstyrk til Alþingis en
fékk synjun. Þá ýttu Öldumenn úr
vör og söfnuðu á þremur mánuðum
209 kr,- sem nemur tugum þúsunda
á núverandi gengi, - og sendu lista-
mannsefninu. Það var enginn
annar en Jóhannes Sveinsson Kjar-
val. Þessar krónur hafa rentað sig
Víða komið við sögu
Rösk 90 ár eru nú liðin síðan skipstjórar hófu undir-
búning að stofnun stéttarfélags. Var stofndagurinn síð-
an ákveðinn 7. okt. 1893 og félaginu gefíð nafnið Skip-
stjórafélagið Aldan.
Félagið iét þegar í upphafi fleira
til sín taka en stéttar- og kjaramál.
Ýmis menningarmál voru félaginu
einnig hugleikin. Meðal annars var
það brýnt fyrir félagsmönnum,
bæði í lögum félagsins og á fundum
þess, að temja sér að tala og rita
gott mál. - Þegar á árinu 1894 var
stofnaður sjóður er hafði það hlut-
verk m.a., að styrkja ekkjur eftir
félagsmenn, þá, sem yrðu fyrir
slysum, veikindum og öðrum áföll-
um. Að þessu leyti má segja að
Aldan hafi verið 40 ár á undan tím-
anum. Starfar þessi sjóður enn. -
Oft gekícst félagið fyrir fyrirlestrum
um fiskimál og annað það er lýtur
að sjómennsku og kom Bjarni
Sæmundsson, fiskifræðingur, þar
mjög við sögu. Félagið var einn
helsti frumkvöðull að stofnun Slysa-
varnafélags íslands og Fiskifélags
íslands og voru forsetar Slysavarna-
félagsins um langt skeið úr Öld-
unni. Þá höfðu Öldumenn og mikil
afskipti af málefnum Reykjavíkur-
hafnar.
vel. Á þessum tíma var árgjaldið í
Öldunni 3 kr.
Á þeim 90 árum, sem liðin eru
síðan Aldan hóf göngy sína, hafa
formenn hennar verið 18. Fyrsti
formaðurinn var Ásgeir Þorsteins-
son en síðan tók Hannes Hafliða-
son við formennskunni og gegndi
henni í 21 ár eða lengur en nokkur
annar. Guðbjartur Ólafsson var
formaður í 17 ár og Guðmundur H.
Oddsson, - nú nýlátinn, - í 12 ár.
Núverandi formaður er Ragnar
G.D. Hermannsson og varafor-
maður Þorvaldur Árnason. Aðrir í
stjórn eru Gunnar Gunnarsson,
gjaldkeri, Hróbjartur Lúthersson,
ritari, Árni Guðmundsson, Einar
Sigurðsson og Björn Jónsson.
I tilefni af afmælinu kom út bók,
sem spannar yfir sögu Öldunnar
fyrstu 50 árin. Er hún gefin út af
Óldunni í samvinnu við Bókhlöðu/
Ægisútgáfu. Bókina ritar Bárður
Jakobsson en í ritnefnd voru Þor-
valdur Árnason, Guðmundur H.
Oddsson og Hróbjartur Lúthers-
son.
Fyrir nokkrum árum flutti félagið
í eigið húsnæði að Borgartúni 18 og
hefur þar oþna skrifstofu. Félags-
svæðið nær vestur á Snæfellsnes og
frá Reykjavík og austur á Breiðdals-
vík, (sérfélög þó á Akranesi og í
Vestmannaeyjum). Félagsmenn
eru um 600, skipstjórar og stýri-
menn.
Margt hefur breyst með þessari
þjóð frá upphafsárum Öldunnar.
Baráttumálin eru þó flest þau sömu
og fyrr þótt hæst beri eðlilega kjara-
mál, lífeyrissjóðsmál og önnur
hagsmuna- og velferðarmál sjó-
manna.
Félagið verður með „opið hús”
að Borgartúni 18 á morgun,
(laugardag) frá kl. 2-6 og svo aftur
um kvöldið. -mhg
Þjónustusíða Þjóðviljans
Reyking og sala á matvælum
É|R0 Sími 72122
Ó^REYKOFNINN HF.
\J/ Skemmuvegi 14 200 Kópavogi
Hellusteypan
STÉTT
Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211.
II.
ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA
Sveinbjörn G. Hauksson
Pípulagningameistari
Sími 46720
Ari Gústavsson
Pípulagningam
Simi 71577
Nýlagnir
Jarölagnir
Viðgerðir
Breytingar
Hreinsanir
VÉLA- OG TÆKJALEIGA
Alhliða véla- og tækjaleiga.
Heimsendingar á stærri tækjum.
Sláttuvéía/eiga.
Múrara- og trésmiðaþjónusta,
minni háttar múrverk og smíðar.
BORTÆKNI SF.
Vélaleiga, sími 46980 — 72460,
Nýbýlavegi 22, Kópavogi,
(Dalbrekkumegin)
Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa.
STEYPUSÖGUN
vegg- og gólfsögun
VÖKVAPRESSA
i múrbrot og fleygun
KJARNABORUN
fyrir öllum lögnum
Tökum aö okkur verkefni um allt land. — Fljót og góö
þjónusta. — Þrifaleg umgengni.
BORTÆKNI S/F
Vélaleiga S: 46980 - 72460.
Verkpantanir
Irá kl. 8—23.
TRAKTORSGRÓFUR
L0FTPRESSUR
SPRENGIVINNA
146297
ísskápa- og frystikistuviðgerðir
Önnumst allar viðgerðir á
kæliskápum, frystikistum,
frystiskápum og kælikistum.
Breytum einnig gömlum
kæliskápum í frysti-
skápa. Góð þjónusta.
nsivmri*
Reykjavikurvegi 25
Hafnarfiröi sími 50473.
GEYSIR
Bílaleiga
Car rental
BORGARTUNI 24- 105 REYKJAVIK, ICELAND - TEL. 11015
LIPUR ÞJ0NUSTA
VIÐ LANDSBYGGÐINA
PÖNTUM-PÖKKUM
SENDUM - SÆKJUM
TRYGGJUM
Leyfið okkur að látta ykkur sporin og losa
ykkur við kvabb á vinum og vandamönnum.
• •••
Ekkert er auðveldara en slá á þráðinn
og afla upplýsinga.
• •••
Opið frá kl. 9-19 alla virka daga.
Símsvari opinn allan sólarhringinn.
JLandsþjónustan s.f.
Súðavogi 18. S.84490 box 4290
GLUGGAR
0G HURÐIR
\vönduð vinna á hagstæðu verði\
Leitið tilboða.
ÚTIHURÐIR
Dalshrauni 9, Hf.
S. 54595.