Þjóðviljinn - 07.10.1983, Page 15
Föstudagur 7. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 23
■bk
■U
Hið nýja ísland
Halldór Pjetursson skrifar:
Er hér að myndast ný
manntegund, sem ætlar með kné-
falli að lúta með lotningu verstu
öflum þjóðarinnar, ef maðurinn
við borðsendann mælir svo fyrir?
Hefur þjóðin gleymt því hvernig
svona menn voru afgreiddir,
jafnvel á okkar mestu niðurlæg-
ingartímum? Kannski grunar
hana, að landsfeðurnir, sem við
vorum sviknir undir, hafi gát á
taumhaldinu?
Það lítur út fyrir að þeir séu að
gera prufu á því hvað við þolum.
Blíðuhótin í bandaríska sendi-
ráðinu benda til þess. Utandyra
þar eru íslendingr barðir og
brotnir til óbóta. Þetta sýnir
hvert stefnir. Þetta er siðvæðing-
in, sem Bandaríkin kosta í Suður-
Ameríku. Hún skal hér gilda,
ráða og ríkja. Maðurinn við
borðsendann segir bara já og
amen í kaupbæti. Þetta er hans
faðir vor, sem alltaf má bæta inní
og reynast sem huldar og duldar
bætur, sem til vor streyma úr
hans munni. Hvenær hefur sálu-
bót orðið sýnileg? Skattlausnir
bíða yfir höfði okkar, gráar árur
og þegar búið er að bjóða upp
allt, sem sýnilegt er, standa ein-
staklingarnir strípaði á götunni
og spyrja: hvar er það, sem okkur
var lofað? Borðsendinn svarar úr
fjarska: Þú ert búinn að fá það,
þú færð gamlar flíkur af okkur
stórmennum og ameríska súpu á
eftir. í bjargvona þorpum bíða
þegnarnir komu togara sinna af
veiðum. Þeir klæðast sínum
vinnuhjúpi og ganga til hafnar.
Þar sjá þeir stórt spjald. Á gráum
grunni þess er skrifað með
stjórnarletri: Togarinn er seldur
og nú getið þið sofið út og beðið
skýringa frá borðsendanum.
Ekki brást samninganefndin
við ísal. Hinir heimskustu þóttust
sjá glitta í smárifur í samskiptum,
en þessi teikn hurfu skjótt.
Guðmundur bíður samt hress
og glaður eftir næsta fundi og röð
eftir röð þar fram af. Þetta gefur
nefndarmönnum gull í mund. Jó-
hannes gengur á milli á stílhreinu
stjái með blöð í greip og hneigir
sig að höfðingjasið, sem kannski
endar með knéfalli á bæði kné,
því vart mun hann standa á réttin-
um.
Jóhannes er líkastur gömlum
Faraó, þar glampaði allsstaðar í
gull, hvernig sem hann snéri. Jó-
hannes er sá íslendingur, sem
næst mun standa Vilhjálmi Þór,
sem íslensk réttvísi þorði ekki að
trufla fyrir rétti, því hann var að
telja endurnar á Tjörninni gegn-
um glugga á réttarsalnum. Svar
við spurningum komst því aldrei
að því alltaf bættust nýjar endur
við, en sá maður lét aldrei falsaða
tölu frá sér fara.
Jóhannes mun vera merkasti
núlifandi fslendingur, þótt vond-
ir menn efist um slíkt. Maður
einn spurði mig hvort hann
mundi vera föðurbetrungur eða
verfeðrungur. Ég svaraði hik-
laust: Nú ferð þú í geitarhús að
afla ullar. Ert þú svo tölvís að þú
vitir hvað margar nefndir hann
hefur í höndum og huga? Það
segir sína sögu. Spurningu þeirri
svara ég ekki beint því mér þótti
vænna um Sigurð Nordal en aðra
menn á hans tímabili. En Jóhann-
es er gullkálfur, sem hefja ætti á
stall og það er að vissu leyti byrj-
að. Hann slær Kristin Finnboga-
son alveg út í kraftaverkastússi.
Jóhannes er nú að byggja
fyrsta íslenska píramídann á þeim
tíma þegar Albert finnur hvergi
eyri. Mörgum þykir þetta skrýtið
en Jóhannes svarar þessu, að mig
minnir, á þann hátt, að þessi
bygging geri þjóðinni engan bak-
verk, bankinn greiði þetta allt
sjálfur og þurfi ekkert til annarra
að sækja. Margir fleiri en ég
spyrja eins og María: „Hvernig
má þetta ske“? Jóhannes virðist
hafa fundið upp nýja tilhleyp-
ingu. Áður þurftu bændur hrúta
til að fjölga fé sínu, en Jóhannes
virðist hafa fundið nýja sæðingu,
hleypa til krónanna, svo þær
margfaldi magn sitt.
Jóhannes mun vera einn tekju-
hæsti maður landsins og tekju-
stofnar hans eins og sandur á
sjávarströnd. Þetta kemur í raun
ekkert Seðlabankanum við.
Bankar okkar hafa nú verið taldir
þjóðareign, sem er mjög hátt
hugtak, kannski ekki að magni.
Nú hefur mér komið í hug að
bæta á þennan mikla mann einu
embætti enn: Láta hann fara á
milli allra þessara peningastofn-
ana og koma þar við þessari nýju
tilhleypingu, sem tíðkast í Seðla-
bankanum, og fylla þar með öll
fjármálagöt. Þar með er öllu
borgið og allir bera sitt amstur út
á torg og láta með því vind og
vatn gera því skil.
Sjónvarp kl. 21.15
Stans!
Svo nefnir Rafn Jónsson,
fréttamaður, umræðuþátt um
umferðarmál, sem hann stjórnar
í Sjónvarpinu í kvöld, útsending-
in er bein. Er þátturinn tengdur
umferðarviku þeirri í Reykjavík
og nágrenni, sem nú stendur yfir,
í tilefni af norræna umferðarár-
inu.
I þættinum koma fram: Ragn-
heiður Daviðsdóttir, lögreglu-
maður, Tryggvi Jakobsson,
starfsmaður Umferðarráðs,
Bjarni Torfason, læknir og tveir
nýliðar í umferðinni; 17 ára pilt-
ur, semnýbúinn er að taka bílpróf
og ungur vélhjólapiltur. Auk þess
verða vegfarendur teknir tali. -
Rætt verður um gildi umferðar-
fræðslu og áróðurs fyrir henni og
um umferðarslys. - mhg
skak
Karpov að tafli - 212
Þegar Karpov fór að slaka á klónni eftir
tapið fyrir Larsen komst Mikhael Tal,
sem var í miklum ham allt árið 1979,
uppfyrir hann. Eftir 15 umferðir komst
hann einn í efsta sætið og hann hélt því
forskoti 116. umferð. En Karpov tók sig á
og lagði Boris Spasskí að velli í 17. um-
ferð:
ifl
abcdefgh
Spasskí - Karpov
Staðan kom upp eftir 34. leik svarts,
a6-a5! Spasski er í leikþröng!
35. Ba4 Rxc4
36. He8 Hxc3
37. Hc8 Re3
38. Bb5 c4
39. Kg1 Hc2
40. Bc6 c3
41. Bf3 g5
42. g4 f4
- og hér gafst Spasskí upp.
Bæði Tal og Karpov gerðu jafntefli í
síðustu umferð mótsins. Lokastaðan var
þessi: 1.-2. KarpovogTal 12. v. (af 18)3.
Portisch 10V2 v. 4. Ljubojevic 9 v. 5.-6.
Spasskí og Timman 8V2 v. hvor. 7.-9.
Hort, Kvalek og Hubner 8 v. hver. 10.
Larsen 5V2 v.
bridge
Það er oft mesta furða, hvað verður úi
ýmsum spilum, þegar farið er að spila
þau. Hér er dæmi:
G
ÁG1094
753
10742
ÁK83
6
ÁG842
ÁD5
Suður var sagnhafi í 5 tíglum, sem er ekki
beint fegursti samningur í heimi. Jæja,
hvað um það, útspil Vesturs var hjarta-
þrír. Sagnhafi starði aðeins á blindan og
yppti svo öxlum. Botn er bara botn,
hugsaði hann með sjálfum sér og bað
um ásinn. Síðan litið lauf og drottningu
svínað. Jæja, hugsaði sagnhafi með sér,
kannski slepp ég tvo niður. En hvað
næst? Jú, því ekki að reyna að trompa
eitthvað? Út með spaðaás og lítinn
spaða, sem trompaður er í blindum,
hjarta trompað heim, spaði trompaður i
borði, hjarta trompað heim og spaði
trompaður i borði (0,0, hugsaði sagnhafi
með sér og leit flóttalega á makker sinn.
Þar trompaði ég spaðakónginn af sjáíf-
um mér. En staöan var nú þessi:
G10
107
ÁG8
5
Sagnhafi var staddur inn í borði og bað
um hjartagosa. Austur hélt smá ráð-
stefnu með sjálfum sér, en trompaði síð-
an hjartagosa með tiguldrottningu. Nei,
hann má eiga þetta hugsaði sagnhafi
með sjálfum sér, og henti laufafimmu í.
Austur spilaði þá tígulníu, og Suður leit
grunsemdaraugum á Austur. Nú já,
hann á þá kónginn líka... Og lét tigulgos-
ann, en Vestur drap á tígulkóng. En tigu-
lásinn og áttan sáu svo um 10.-11.
slaginn. Unnið spil.
Hendur A/V voru þessar:
10765
D873
K104
93
D964
K52
D9
KG86
Gœtum
tungunnar
Heyrst hefur: Vatniö er geymt
í kerjum.
Rétt væri: Vatniö er geymt í
kerum.
(Munum „leirkerasmiðinn” á
góðum stað!)
RUV0
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgun-
þáttur. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Erlings Sigurðarsonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Stefnir Helgason talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Leitin að
vagnhjóli" eftir Mindert DeJong Guðrún
Jónsdóttir les þýðingu sína (6).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.35 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli sér um þátt-
inn (RÚVAK).
11.05 Jane Addams — engill hinna aumustu
Séra Árelíus Níelsson flytur erindi.
11.35 Steely Dan, Toto, Mike Oldlield og
fleiri syngja og leika.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 „Katrín frá Bóra“ eftir Clöru S.
Schreiber Benedikt Arnkelsson þýddi.
Helgi Eliasson les (7).
14.30 Miðdegistónleikar Hljómsveitin Fíl-
harmonia leikur lög eftir Waldteufel og
Strauss. Herbert von Karajan stj.
14.45 Nýtt undir nálinni Hildur Eiríksdóttir
kynnir nýútkomnar hljómplötur.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar Útvarpshljómsveitin
í Köln leikur Ungverskar rapsódíur nr. 1 og 2
eftir Franz Liszt. Eugen Zsenkar stj. / Mart-
ino Tirimo og hijómsveitin Fílharmonía leika
Rapsódíu op. 43 eftir Serge Rakhmaninoff
um stef eftir Paganini. Yoel Levi stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Heiðdis Norðfjörð segir
börnunum sögu fyrir svefninn. (RÚVAK).
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
20.40 Friðarráðstefnan í Haag 1899 „Striðs-
bumban barin" eftir Barböru W. Tuchman.
Bergsteinn Jónsson les þýðingu Óla Her-
mannssonar (4).
21.10 Hljómskálamúsík Guðmundur Gilsson
kynnir.
21.40 Norðanfari. Þættir úr sögu Akureyrar.
Umsjónarmaður: Óðinn Jónsson. (RÚ-
VAK).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Gullkrukkan" eftlr James Stephens
Magnús Rafnsson les þýðingu sína (15).
23.00 Náttfari Þáttur i umsjá Gests Einars
Jónassonar. (RÚVAK).
00.50 Fréttir. 01.00 Veðurfregnir.
01.00 Á næturvaktinrti - Ólafur Þórðarson.
03.00 Dagskráriok.
RUV
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Sigurður
Grímsson. Kynnir Birna Hróifsdóttir.
20.50 Flói í faðmi jökla Bresk heimildarmynd
frá Jöklaflóa á suðausturströnd Alaska. Fyrr
meir var flói þessi ísi lagður og enn ganga
skriðjöklar I sjó fram. Síðan isinn fór að hopa
hefur gróður fest rætur og dýralíf í sjó og á
landi er auðugt og fjölskrúðugt. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
21.15 Stans! Umræðuþáttur i beinni útsend-
ingu um umferðarmál. Dagskrá þessi er í
tengslum við umferðareiku í Reykjavík og
nágrenni, dagana 3.-10. október, i tilefni af
norrænu umferðaröryggisári. Umsjónar-
maður Rafn Jónsson, fréttamaður.
22.15 Fær Rut að lifa? (Life for Ruth) Bresk
bíómynd frá 1962. Leikstjóri Basil Dearden.
AðalhluWerk: M.ichael Craig, Patrick McGo-
ohan og Janet Munro. Átta ára telpa þarf á
blóðgjöf að halda eftir að hún hefur bjargast
naumlega frá bráðum bana. Faðir telpunnar
neitar um leyfi til blóðgjafar af trúarlegum
ástæðum og hefur það örlagarikar afleiðing-
ar. Þýðandi Björn Baldursson.
23.50 Dagskrárlok.
Ólafur Þórðarson byrjar á næt-
urvakt kl. 1.10.