Þjóðviljinn - 07.10.1983, Page 16

Þjóðviljinn - 07.10.1983, Page 16
wðviuinn Föstudagur 7. október 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Ríkisstjórn kaupránsflokkanna ræðst á launafólk Hólmganga í vetur! sagði Svavar Gestsson á glæsilegum fundi Alþýðubandalagsins NÝ RÍKISSTJÓRN GEGN K AUPRÁN SFLOKKUNUM - Það hlýtur að koma til átaka í vetur, launamcnn geta ekki tekið á sig meiri byrðar - og það er ríkis- stjórnin sem hefur skorað launa- menn á hólm, sagði Svavar Gests- son formaður Alþýðubandalagsins á einum glæsilegasta fundi sem haldinn hefur verið á vegum bandalagsins í troðfullum Súlnasal á Hótel Sögu í gærkveldi. Ríkisstjórn kaupráns og kerfis- flokkanna hefur ráðist með leiftur- sókn að kjörum hins almenna launafólks. Hún hefur ráðist á kaupið eitt. Aðrir þættir efnahags- lífsins eru látnir bíða og verðbólgan er keyrð niður einungis með því að ráðast á launin. Auðvitað er verið að safna uppí stíflu sem brestur seinna í vetur. Árangri gegn verð- bólgu verður ekki náð til langframa með þessu háttarlagi. Á sama tíma sjáum við verslanahallir, milliliða- báknin þjóta uppí himininn. Þang- áð hafa fjármunir almennings far- ið. Það er fólkið sem hefur borgað þessi steinsteypuminnismerki. Hinn almenni neytandi borgar brú- sann, sagði Svavar Gestsson. Ástandið er orðið þannig, að sí- fellt fleiri ganga til liðs við stjórnar- andstöðuna í landinu. Alþýðu- bandalagið vill vera kjölfesta í bandalagi vinstri manna og verk- lýðssinna, sem fyrr en síðar kemur þessari ríkisstjórn gróðahyggjunn- ar úr valdasessi. Það þarf samfylk- ingu vinstri manna til. Og sú ríkis- stjórn sem við verður að taka verð- ur helst að vera án kaupráns og kerfisflokkanna beggja. Því sterk- ara sem Alþýðubandalagið verður í þeirri baráttu sem nú er hafin fyrir endurheimt lýðréttinda og mannréttinda, þeim mun fyrr losn- ar þjóðin við þessa ríkisstjórn, sagði formaður Álþýðubandalags- ins. Þurrka út Framsókn Eitt brýnasta verkefni launa- manna í dag er að þurrka út Fram- sóknarflokkinn, sagði Guðmundur J. Guðmundsson alþingismaður, sem sýndi fram á að þjóðin byggi við vaxandi stétt^mismun og aukið félagslegt óréttlæti. Fátæktin blasir við, sagði Guðmundur. Guðrún Helgadóttir alþingis- maður sýndi fram á ógnvænlega stöðu láglaunafólks í landinu. Minnti hún á óráðsíu ríkisstjórnar- innar, flugstöðina og Seðlabank- ann, meðan launafólk fengi að kenna á ráðstöfun ríkisstjórnarinn- ar. Það hefur hvergi verið fram- kvæmd önnur eins kjaraskerðing og á íslandi þessa mánuði, sagði Guðrún Helgadóttir. Að loknum framsöguræðum þingmannanna, voru líflegar fyrir- spurnir og umræður. - óg Ellertsmálið á sunnudaginn Ellertsmálið í Sjálfstæðisflokkn- um verður tekið fyrir í þingflokki Sjálfstæðismanna á sunnudaginn. Samkvæmt heimildum blaðsins eru uppi deilur um það meðal lög- fræðinga hvort ákvörðun Ellerts B. Schram getur talist lögleg sam- kvæmt kosningalögum. Þess vegna er gert ráð fyrir tafsamri afgreiðslu kjörbréfs þingmannsins í byrjun þings á mánudag. Meðal ráða- manna í Sjálfstæðisflokknum er mikil reiði vegna ákvörðunar þing- mannsins, að taka ekki sæti á þing- inu í haust. Búist er við fjörugum þingflokksfundi á sunnudag. - óg Vasapeningarnir endurgreiddir á mánudag Engin frekari hækkun á dagskrá segir Matthías heilbrigðisráðherra „Nei, það hefur engin önnur hækkun verið ákveðin á vasapeningunum. Fyrsta áfangahækkunin verður greidd út núna 10. október aftur í tímann ásamt4% verðbótahækkun 1. október. Engar frekari hækkanir hafa verið ákveðnar“, sagði Matthías Bjarnason, heilbrigðisráðherra í gær. Matthías sagði að önnur áfanga- hækkun væri ekki inni í myndinni núna. Það hafi ekkert verið gert annað en að ákveða 4% verðbætur á vasapeningana núna 1. október. í reglugerðardrögum sem lágu fyrir s.l. vor var hins vegar gert ráð fyrir að önnur áfangahækkun kæmi til framkvæmda 1. september s.l. Á mánudaginn kemur fá örorku- og ellilífeyrisþegar endurgreiddar þær 2,8 miljónir króna, sem þeir áttu að fá á tímabilinu júní til sept- ember, eða samtals 5728 krónur á mann. Auk þess októbergreiðsl- una með 4% verðbótum eða krón- ur 1489 til viðbótar. Enn vantar rúmlega 1000 krónur á að vasa- peningarnir nái þeirri fjárhæð sem alþingi samþykkti í desember s.l. (1950 krónur), en framreiknuð er sú fjárhæð nú 2.513 krónur á mán- uði. Ljóst er að ríkisstjórn Stein- gríms Hermannssonar ætlar ekkert að flýta sér að framfylgja þeirri á- kvörðun alþingis, en það er hennar hlutverk samkvæmt sérstöku bráðabirgðaákvæði í lögunum - ÁI L - . - af ylvolgu þríggja koma körfiubrauðunum frá Samsölubrauðum Omíssandí brauð tíl morgunverðar — jafiit og í nestispakkann. Hollusta og grófleikí einkenna nýju þríggja koma körfubrauðín.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.