Þjóðviljinn - 29.10.1983, Blaðsíða 19
Helgin 29.-30. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SJÐA
skák
Átta-landa keppnin í Osló:
Danir hindruðu
íslenskan sigur
Helgi
Ólafsson
skrifar
Gamaikunnug staða var komin
upp fyrir síðustu umferð í 8-landa
keppninni I Osló í síðustu viku.
Með mikium baráttuhug hafði ís-
lensku skáksveitinni skipaðri þeim
Margeiri Péturssyni, Jóhanni
Hjartarsyni, Guðmundi Sigurjóns-
syni, Karli Þorsteins og undirrituð-
um, tekist að ná efsta sæti að unda-
ngenginni frábærri frammistöðu í
biðskákum sem til lykta voru
leiddar deginum áður og svo viður-
cigininni við frændur vora Færey-
inga, sem lauk með stórsigri,5'/2:'A.
Þá hafði Jóhanni Hjartarsyni tek-
ist að knýja fram vinning úr tveim
heidur betri biðskákum þannig að
þenn föstudag fyrir síðustu umferð
hlaut íslenska sveitin 7'lz vinning úr
8 skákum, rauk upp úr honum sig-
urstranglegri sveitum mótsins
þannig að staðan var orðin þessi: 1.
Isiand 23 v. 2. Pólland 22 v. 3. Dan-
mörk 21 v. 4.-5. V-Þýskaland og
Svíþjóð 20’A v. 6. Noregur 17‘A v. 7.
Finnar 1472 v. 8. Færeyingar 4'l.i v.
í síðustu umferð voru andstæðing-
arnir Danir og þá varð heldur betur
breyting á; þegar fyrstu setu lauk
höfðu Danir fengið fjóra vinninga -
Islendingar engan!
Nú er það svo að jafnvel þó svo
íslendingar geti hæglega tapað
fyrir Dönum og það jafnvel með
nokkrum mun ef menn eiga veru-
lega slæman dag þá er auðvitað
engum blöðum um það að fletta að
einhverjar allt aðrar ástæður en
skáklegar urðu þess valdandi að
svo illa tókst til í síðustu umferð.
Það virðist vera alltof algengt að
íslendingar missi fótanna þegar
mest liggur við á alþjóðavettvangi
og á þessu augnabliki hefði hin frá-
bæra frammistaða liðsins sem hafði
unnið virðingu allra þátttökuþjóða
átt að virka sem hvati á tafl-
mennskuna, heldur en hitt. Þegar
upp var staðið unnu Danir 4V2:1V2
og nægði það þeim til að hreppa 2.
sætið. Lokaniðurstaðan varð þessi:
1. Pólland 26 v. 2. Danir 25V2 v.
3.-4. ísland og Svíþjóð 24‘/2 v. 5.-6.
Noregur og V-Þýskaland 22'12 v. 7.
Finnland I6V2 v. 8. Færeyjar 6 v.
íslendingar unnu fjórar viður-
eignir en töpuðu þremur. Stór
sigur vannst yfir Finnum og Færey-
ingum, 5'h\'h í báðum tilvikum og
sigurvegarana Pólverja og Noreg
unnum við 3'h:2'h. Við töpuðum
naumt fyrir Svíum og V-
Þjóðverjum 2'h:3'h og í síðustu
umferð kom afhroðið gegn
Dönum.
Vinningar íslensku sveitarinnar
skiptust þannig: 1. borð: Guð-
mundur Sigurjónsson 4 v. af 7, 57,
14%. 2. borð: Margeir Pétursson
3'h v. af 7,50%. 3. borð: Helgi Ól-
afsson S'h v. af 7,78, 57%. 4. borð:
Jóhann Hjartarson 5 v. af 7,
71,42%. Kvennaborð: Áslaug
Kristinsdóttir 2'h v. af 7, 35,71%.
Unglingaborð: Karl Þorsteins 4 v.
af 7, 57,14%. Undirritaður náði
bestum árangri keppenda á 3.
borði og Jóhann Hjartarson best-
um árangri allra á 4. borði.
Jóhann átti ekki minnstan þátt í
gengi íslenska liðsins fyrir síðustu
umferð, því með því að vinna tvær
biðskákir á föstudegi að viðbættum
sigri yfir færeyska 4. borðs mann-
inn fékk Jóhann 3 vinninga sama
dag. Það var eftirtektarvert að sig-
rar Jóhanns komu í kjölfar taps í
skák gegn Svíanum Kaizauri. Sú
skák fór eigi sjaldnar en þrisvar
sinnum í bið og þrátt fyrir að Svíinn
hefði tveim peðum yfir í endatafli,
kóngs og riddara gegn kóngi og
biskup virtist Jóhann öruggur með
sigur. En hin ianga og lýjandi bar-
átta hafði sín áhrif og í eftirfarandi
stöðu gerði Jóhann sig sekan um
alvarleg mistök:
(
.9
Kai/auri - Jóhann
Svartur á leik og heldur jafntefli
með 86. - Kg7. Eftir t.d. 87. Ke7
Ba3+ 88. Ke8 Kf6 89. Rd5+ Ke6!
kemst hvítur ekkert áleiðis.
86. .. Ba3??
(Þessi ónákvæmi leikur gerir gæfu-
muninn. Staðan breytist að vísu
litið ef hvítur leikur 87. Rd7+ Kg7,
en hann á annan mikilvægari
leik...)
87. Kf6!
(Hótar 88. Rd7 mát. Svartur á enga
vörn.)
87. .. Bb2+
88. Kg6 Ke7
89. Rd7!
- og hér gafst Jóhann upp.
Einhverjir hefðu ætlað að þetta tap
myndi brjóta piltinn niður, en það
var nú öðru nær; hann vann næstu
þrjár skákir. Fyrsta fórnarlambið
var V-Þjóðverjinn Grún, síðan
Griin - Jóhann
Svartur hafði lent í erfiðleikum
eftir heldur ónákvæma byrjunar-
taflmennsku. f miðtaflinu og á 5ta
tímanum, eins og allir vita er mikil-
vægasti hluti skákarinnar, tókst Jó-
hanni að klóra í bakkann og loks að
ná yfirhendinni. Við erum komin
að vendipunktinum í skákinni...
39. .. h5!
(Geysisterkur leikur sem í mörgum
tilvikum hótar - h4+. Ef t:d. 40.
Df2 þá 40. - h4+ 41. Bxh4 Dxc3+
o.s.frv.).
40. h4
(Ljótur leikur en Þjóðverjinn fann
engan betri.)
40. .. De2!
(Hér fór skákin í bið. Ljóst er að
svartur vinnur annað peð til við-
bótar, en engu að síður tekur það
sinn tíma að vinna úr þessari
stöðu.).
41. Kh2 Dg4
42. Df2
(Eða 42. Bg5 f6! 43. Da7+ Kg8 44.
Db8+ Kf7 45. Dc7+ Ke8 46.
Db8+ Kd7 47. Da7+ Ke7+! og
svartur vinnur.)
42. .. Bxg2!
43. Dg5
(Betra var 43. Bd4.)
43. .. Dh3+
44. Kgl Dhl+
45. Kf2 Dfl+
46. Kg3 Be4!
- og Þjóðverjinn gafst upp. Hann
ræður ekki við máthótanir svarts.
Færeysku skákmennirnir fengu
að sönnu ekki marga vinninga í 8-
landa keppninni enda var hér um
frumraun að ræða. Þó hygg ég að í
keppninni hafi mátt greina glögg
merki örra framfara og að því
gefnu að þeir skákmenn færeyskir
sem nú standa í fararbroddi gefist
ekki upp þótt móti blási þá má ætla
að skáklistin í Færeyjum nái á
næstu árum og áratugum þeim byr
sem nægir til þess að Færeyingar
vann hann Terje Wibe frá Noregi
og loks Færeyinginn Ziska:
Jóhann Hjartarsan - fékk þrjá
vinninga sama daginn!
geti stillt upp frambærilegasta liði á
alþjóðlegum vettvangi. 1. borðs-
maður þeirra, Suni Ziska, er eftir-
tektarverður skákmaður sem vann
bæði Ojanen hinn finnska og einn
efnilegasta skákmann á Norður-
löndum Simon Agdestein.
Þegar við íslendingar mættum
Færeyingum í 6. umferð urðum við
nauðsynlega að vinna stóran sigur
til að komast í efsta sætið í keppn-
inni. Það tókst, við unnum 5'h:'h
eða með sömu tölum og við
lögðum Finna. En ekki var sigur-
inn jafn öruggur og tölur gefa til
kynna. Andstæðingur Karls missti
af vænlegri leið í tímahraki og Jó-
hann þurfti að taka á öllu sínu til að
yfirbuga sinn andstæðing. Áslaug
tefldi hins vegar sína bestu skák í
mótinu gegn Klingen, en undirrit-
aður varð að viðhafa ýtrustu ná-
kvæmni til að sigra Apol:
Helgi - Apol
Þessi staða kom upp þegar langt I
var liðið á fyrstu setu. Hvítur er
peði yfir og möguleikamir liggja
því allir hans megin. En peð svarts
eru komin ansi framarlega og það
gefur svörtum kost á laglegri leik-
fléttu:
44. .. Rxb3!
(Eftir þennan leik fór skákin í bið
og hvítur lék biðleik. Eftir langa
umhugsun komst ég að því að hinn
nærtæki leikur 45. Rxb3 dugar að-
eins til jafnteflis. Framhaldið gæti
orðið 45. -c4 46. Rd2 Kc5 47. h5 c3
48. Rb3+ Kc4 49. Ra5+ Kd3 50.
g6 hxg6 51. hxg6 c252. Rb3 Kc3 53.
Rcl Kd2 og svartur heldur sínu.
Hvítur á kost á fleiri leiðum, en þær
ber allar að sama brunni. En það
finnast gallar við 44. leik svarts,
helstur sá að hann gefur eftir hinn
mikilvæga c4-reit.
45. Rc4+!
(Biðleikurinn)
45. .. Ke6
46. a5! Rd4
47. a6 Rc6
48. h5!
(Mikilvægt er að svartur eigi ekki i
þess kost að leik 48. - h6 t.d. 49. g6j
h5! o.s.frv. Nú liggja málin ljóstj
fyrir. Svartur er rígbundinn við aðj |
halda frípeðum hvíts í skefjum á!
meðan hvíti kóngurinn býr sigj
undir að ryðjast inn á drottningar-i
vænginn.)
48. .. b3
(Ekki 48. -7 Kd7 strax vegna 49. |
Rxe5+ Rxe5 50. a7.)
48. Kg3 Kd7
49. Kf2 Kc7
50. Ke3 Kb8
(Eða 50. - Ra5 51. Rb2 c4 52. Kd2
o.s.frv.)
51. Kd2 Ka7
52. hg6!
- 52. g6 ætti einnig að vinna. Hér
gafst Apol upp þar sem hann á
enga vörn við gegnumbroti hvíts á
kóngsvængnum.
LEIRKERASMIÐIR
TAKIÐ EFTIR
I. Guðmundsson & Co hf heldur í samvinnu við
Potterycrafts Ltd, námskeið í leirkeragerð að
Þverholti 18, Reykjavík, dagana 5. og 6. nóvember
nk. John Pallex leirkerasmiður sýnir notkun
„Alsager” rennibekks, mótar og skreytir krukkur og
skálar úr leir og svarar fyrirspurnum um
leirkeragerð. D.W. Plant flytur fyrirlestur um
Potterycrafts og svarar fyrirspurnum. Við hvetjum
alla leirkerasmiði til að taka þátt í þessu námskeiði.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku hið allra fyrsta
í síma 24020.
I.GUÐMUNDSSON & C0.HF.
Þverholti 18, Reykjavík. Sími 24020
Gleymum ■
ekkil
geðsjúkum
29.10.’83