Þjóðviljinn - 14.12.1983, Síða 5
Miðvikudagur 14. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Geir Gunnarsson lýsir afleiðingum leiflursóknarstefnunnar
Fjármálastjórn Alberts
„Með leiftursókn gegn lífskjörum launafólks hafa
stjórnarflokkarnir keyrt svo niður kaupgetu hjá al-
menningi, að tekjur ríkissjóðs af neyslusköttum hafa
stórlega minnkað. Skuldasöfnunin hjá Seðlabanka er
hafin að nýju. Þegar síðasti fjármálaráðherra Sjálf-
stæðisflokksins fór frá völdum skildi hann eftir sig
skuldahala hjá Seðlabanka sem nemur að núvirði með
vöxtum 2.500 miljónum kr. Það jafngildir mótframboði
ríkisins til framkvæmda allra sveitarfélaga í landinu til
skólamála, hafnarmála, sjúkrahúsa, heilsugæslu og
dagvistarmála 1 rúm 6 ár“, sagði Geir Gunnarsson
fyrrv. formaður fjárveitinganefndar m.a. í upphafi
ræðu sinnar við 2. umræðu fjárlaga á alþingi í gær.
Geir benti á að ýmsa útgjaldaliði
vantaði inn í fjárlagafrumvarpið.
Ljóst væri að yfirdráttarskuld ríkis-
sjóðs hjá Seðlabanka, sem nú nem-
ur um 1200 miljónum kr., yrði
aukin. Útgjöid til vegamála vant-
aði inn í frumvarpið að stórum
hluta og ýmis útgjöld ríkissjóðs
væru vantalin í frumvarpinu. Því
blasti við að stefnt væri að halla-
rekstri á ríkissjóði á næsta ári.
Geir sagði að samdráttur í ríkis-
umsvifum sem boðaður væri í
frumvarpinu væri knýjandi og
þvinguð afleiðing af þeirri leiftur-
HEYRT & SEÐ eftir
Jóhannes Helga
Arnartak hefur gefið út bókina
Heyrt & séð eftir Jóhannes Helga.
í bókinni er samankomið úr ýms-
um áttum það bitastæðasta úr skrif-
um Jóhannesar Helga um menn og
málefni frá 1975 til dagsins í dag.
Fimmtíu og sjö skrif að gefnu
tilefni. Er það hin skrautlegasta
flóra og mannamyndasafn. í bók-
inni eru litríkar persónulýsingar í
bland við ótrúlegustu málefni,
áhugasvið höfundar enda í víð-
feðmara lagi, svo sem efnisyfirlitið
er til marks um. En að stofni til er
safnritið innlegg Jóhannesar í
þjóðmálaumræðu fyrrnefnt átta
ára tímabil. Höfundur tileinkar
bókina íslenskri bændastétt og far-
ast svo orð í formála:
„Safnrit þetta tileinka ég íslensk-
um bændum, með þökk fýrir upp-
byggilega viðkynningu í sumar
leið.
Ég þræddi annes og fór um fjöll,
firnindi og dali, jafnt í þjóðbraut
sem utan og hitti að máli hundruð
bænda, konur og karla, unga og
aldna og gafst kostur á að kynnast
augliti til auglitis, hve djúpum rót-
um þjóðernið og málið stendur í
sveitum landsins; og hefði kynnis-
förin því að ósekju mátt vera fyrr
farin.“
Nokkrar kaflafyrirsagnir gefa
nokkra hugmynd um efni bókar-
innar: Sunnudagssíðdegi með Ingu
Laxness, Jálkar og lystikerrur og
sífrið Ólafs, Að sýna það á þökun-
um sem fram fer í herbergjunum,
Goðsögn úr froðu, Eilífðarinnar
helvíti og pína, Ér Landnáma
hrikalegasta fölsun mannkynssög-
unnar, Nordal og hinir, Páfinn og
söngfuglarnir, Kátar ekkjur og
Drottins þjónar, Draslið Halldórs
Laxness, Dagar í Vín, Samfélag
skrælingja.
Bókin er 227 blaðsíður, prentuð
í Borgarprenti og bundin í Bók-
bandsstofunni Örkinni.
Geir Gunnarsson
sókn sem Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur hefðu staðið
fyrir gegn lífskjörum almennings
nú.
Ríkisstjórnin hefur látið í veðri
vaka að sérstakar ráðstafanir hafi
verið gerðar til þess að hlífa þeim
sem við erfiða fjárhagsafkomu
búa. Það er því rétt að huga sér-
staklega að því hvernig stjórnar-
stefnan hefur leikið hag þessa
fólks“, sagði Geir og nefndi síðan
eftirfarandi dæmi um kaupmátt og
kaupgetu ellilífeyrisþega með fulla
tekjutryggingu annars vegar í dag
og hins vegar fyrir réttu ári.
Mánaðargreiðsla ellilífeyris og
tekjutryggingar nam:
1. desember 1982 samtals 5.188
kr.
1. desember 1983 samtals 7.018
kr.
Síðan nefndi Geir verðhækkanir
á nauðsynlegri þjónustu og vörum
á sama tíma samhliða stórfelldri
kaupskerðingu. Þannig fékkst fyrir
ellilífeyri og tekjutryggingu ein-
staklings fyrir ári 47.2 kg. af smjöri
en 35 kg nú 1. desember í fyrra
fengust 534.8 1 af mjólk fyrir líf-
eyrinn en 410.4 nú.
í fyrra fengust 74.3 kg. af súp-
ukjöti fyrir sömu upphæð en 57.5
kg. af kjöti nú 1. desember.
Ellilífeyrir og tekjutrygging
dugðu í fyrra í 37.2 mánuði fyrir
fastagjaldi af síma en í 29.6 mánuði
í ár.
Fyrir lífeyrinn fékkst í fyrra 2882
kwst. af rafmagni en 2028 í ár, og
Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins
Jólaglögg
p.s.: Hver verður leynigesturinn í jól-
asveinaham?
Graham Sigurgeir Haraldur
Æskulýösfylkingin býöur alla velkomna á sína árlegu jóla-
glögg í flokksmiðstöoinni aö Hverfisgötu 105 laugardaginn
17. des. kl. 20.30.
Margt verður til skemmtunar, m.a. mun Graham Smith leika
lög af nýútkominni plötu sinni KALINKA. Honum til aöstoðar
veröur Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari. Haraldur Jóns-
son mun fara meö gamanmál. Margt annað veröur til gam-
ans gert og að sjálfsögöu verður boðið upp á jólaglögg og
piparkökur gegn vægu gjaldi.
Mætum stundvíslega og fjölmennum!
Skemmtinef nd ÆFAB
Tónlist
á hvenu heimili
umjólin
Albert Guðmundsson
fyrir ári dugði framlagið frá Trygg-
ingastofnun ríkisins fyrir 973.4
tonnum af heitu vatni frá Hitaveitu
Reykjavíkur en fyrir 581.8 tn. í
desember í ár.
„Með öðrum orðurn", sagði
Geir. „Fyrir greiðsluna frá Trygg-
ingastofnun ríkisins fékk gamla
fólkið í desember í fyrra:
34.8% meira af smjöri en í ár.
30.3% meira af nýmjólk en í ár.
29.2% meira af súpukjöti en í ár.
25.7% meira magn af símaþjón-
ustu.
42.1% meira rafmagn til heimil-
isnota.
66.5% meira af heitu vatni frá
Hitaveitu Rvíkur.
Þegar haft er í huga að þjóðar-
tekjur á mann hafa lækkað um
4.9% á þessum sama tíma er
naumast undur þótt spurt sé: Var
þörf á því að ríkisstjórn Sjálfstæðis-
og Framsóknarflokks reiddi svo
hátt til höggs gegn þeim sem verst
eru settir í þjóðfélaginu og hafa nú
um 7000 kr. til lífsframfæris á mán-
uði? Þegar svo hefur farið um
kaupmátt hjá því fólki sem ríkis-
stjórnarflokkarnir telja sig hafa
gert sérstakar ráðstafanir til að
hlífa, má geta nærri hver áhrif
leiftursóknarinnar hafa verið hjá
öðrum.
Geir kom víða við í ræðu sinni
varðandi niðurskurð ríkisstjórnar-
innar á félagslegri þjónustu og
framkvæmda, jafnhliða stórfelldri
skattahækkun og auknum rekstrar-
útgjöldum hjá ýmsum framlögum
til málefna fatlaðra og ákvörðun
stjórnvalda að leyfa engar nýjar
framkvæmdir við dagvistarheimili,
en minnihlutinn leggur fram
breytingatillögu um að til þessa
málaflokks hækki fjárveiting um 20
miljónir kr.
Afgreiðsla þessara fjármála
markaði tímamót að því leyti að nú
væri hafin aðför að tryggingakerf-
inu. Vitnaði hann til nýútkominnar
ævisögu Eysteins Jónssonar fyrrv.
fjármálaráðherra þar sem hann lýs-
ir stefnu þeirrar stjórnar sem hann
átti sæti í á þann veg að þeir skyldu
njóta sem þyrftu þess, en þeir
borga sem gætu það. Fjárlagafrum-'
varpið fyrir næsta ár segði mikla
sögu um þróun Framsóknarflokks-
ins á ekki lengra tímabili en líður
þar til sonur tekur við af föður.
->g-
FELAGSMENN
KRON
Athugið að gildistími
desember afslattarkorta í
matvörubúðum KR0N
D0MUS og
STORMARKAÐNUM
hefur verið lengdur til
áramóta.
Nýir félagsmenn fá
afsláttarkort.
Hægt er að ganga í KR0N
í öllum verslunum félags-
ins.
Með kveðju,
Kaupfélag Reykjavíkur
og nágrennis.
fö)) KAUPFÉLAG REYKJAVÍKUR 0G NÁGRENNÍs