Þjóðviljinn - 31.12.1983, Síða 9
Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 9
Bush og flugstöðin
senunni samráðherrum sínum til hrellingar.
Hann gaf út yfirlýsingar um sölu ríkisfyrir-
tækja, afnam söluskatts á útlendu Tívolí
sem tengdasonur hans stóð m.a. að og lýsti
yfir fjandskap sínum við ýmsan óþarfa svo
sem Lánasjóð ísl. námsmanna, Þjóð-
leikhúsið og Sinfóníuna. Voru höfð eftir
honum mörg gullkorn sem urðu fleyg.
Bush varaforseti Bandaríkjanna kom í
heimsókn í júlí með her öryggisvarða sem
sáu m.a. til að andstæðingar vígbúnaðar
héldu sig í hæfilegri fjarlægð frá hinum
merka manni. Um svipað leyti var samið
við Bandaríkjamenn um smíði nýrrar flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli og átti ís-
lenska framlagið í hana að nema 800 milj-
ónum króna. Kom þá í ljós að ríkiskassinn
var ekki eins tómur og Albert vildi vera
láta.
Afrek borgar-
stjórnaríhaldsins
Samtökin Ný sjónarmið kynna landssöfnun
fyrir Alusuisse. - Ljósm.: eik.
firði og Akranesi. Á síðastnefnda staðnum
var á 2. hundrað manns sagt upp í tveimur
fyrirtækjum og sagði Herdís Olafsdóttir,
formaður kvennadeildar verkalýðsfélags
Akraness að þetta væri hnefahögg á
atvinnulífið í ekki stærri bæ.
Landsfundirnir
í nóvember var landsfundur bæði Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðubandalags. í Sjálf-
stæðisflokknum var kosinn nýr formaður:
Þorsteinn Pálsson fv. framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambandsins. Það sem vakti
hins vegar mesta athygli á fundi Alþýðu-
bandalagsins var framsókn kvenna en sam-
þykkt var sú regla að í stofnunum flokksins
skyldi hvort kyn aldrei vera undir 40%. Þá
var Vilborg Harðardóttir kosin varafor-
maður flokksins.
Kaupmannastríð
í nóvember og desember hófst mikið
kaupmannastríð í Reykjavík og nágrenni,
einkum eftir að samvinnuhreyfingin opnaði
mikinn stórmarkað inn við Sund. Þá varð
opnunartími verslana mjög til umræðu eins
og oft áður og varð úr að hann var rýmkað-
ur verulega.
Skaftamálið
En það voru fleiri en kaupmenn sem voru
í stríði. Svokallað Skaftamál var mjög í fjöl-
miðlum í byrjun desember. Skafti þessi sem
er blaðamaður á Tímanum lenti í barsmíð-
um í Þjóðleikhúskjallaranum og kærði lög-
regluna. í tilefni af þeirri eftirtekt sem mál-
ið vakti fóru margir að koma með svipaðar
sögur af viðskiptum sínum við lögregluna
en hún bar hönd fyrir höfuð sér og taldi allt
mjög orðum aukið. Málið er enn í rann-
sókn.
Þjóðarathygli vakti í lok september þegar
forsætisráðherra keypti sér nýjan Blazer-
jeppa og voru aðflutningsgjöld öll felld nið-
ur en þau námu um 700 þúsund krónum eða
fimm árslaunum verkamanns. Skömmu
áður hafði Steingrímur sagt í kappræðum
við Ásmund Stefánsson forseta ASÍ að
þjóðin yrði að leggja hart að sér.
Fœ ég ekki
heimilisföngin ?
Hinn 10. október, er alþingi kom saman,
var Steingrími Hermannssyni forsætisráð-
herra afhentar undirskriftir nærri 35 þús-
und launamanna þar sem skorað var á þing-
menn að samningsrétti yrði komið á á nýjan
leik en hann hafði verið afnuminn með
bráðabirgðalögum eftir að nýja stjórnin tók
við. „Fæ ég ekki heimilisföngin?“, sagði
forsætisráðherra er hann tók við listunum.
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra
hafði hins Vegar áður sagt um undirskrifta-
söfnunina að hún væri undirróður komm-
únista í verkalýðshreyfingunni.
Gulgræna kjötið
Ríkisstjórnin ákvað að greiða niður gam-
alt kindakjöt til að lækka framfærsluvísitöl-
una en í október komst beilbrigðiseftirlitið í
málið og stöðvaði sölu á hluta þess sem
reyndist vera gulgrænt og skemmt.
Gullskipið
Fátt vakti meiri athygli en er leitarmenn
austur á Skeiðarársandi töldu sig hafa fund-
ið svokallað gullskip eða hollenskt indíafar
Samtök kvenna
á vinnumarkaði
í byrjun desember komu saman um 200
konur víðs vegar að af landinu til að stofna
Samtök kvenna á vinnumarkaðinum og er
markmið þeirra að reyna að rétta hlut
kvenna þar.
Kreditkortaœðið
Kreditkort runnu út eins og heitar lumm-
ur í jólamánuðinum og munu þau vafalaust
hafa bjargað jólahaldinu hjá margri fjöl-
skyldunni sem nú er á heljarþröm. Hitt
setja menn á frest að hugsa um skuldadag-
ana. Hver dagur sína þjáningu.
Sjúklingaskatturinn
Við umræður á alþingi uin fjárlög var það
upplýst að fyrirhugað var að setja á svokall-
aðan sjúklingaskatt sem felur í sér að sjúk-
lingar verði sjálfir að borga hluta af uppi-
haldi sínu á sjúkrahúsum. Er þetta í stíl við
annað sem ríkisstjórnin hefst að á þessum
viðsjárverðu tímum.
Sprengihætta í árslok
Og þá er komið að lokum þessa mikla
lægða- og sprengjuárs. Seint í desember var
það upplýst að Áburðarverksmiðjan gæti
sprengt alla Reykvíkinga í loft upp ef am-
moníaktankur þar springur. „Þetta er stöð-
ug ógnun", sagði slökkviliðsstjóri. Við
skulum vona að það verði ekki á gamlaárs-
kvöld þegar árið verður sprengt í loft upp.
- GFr
Afrek borgarstjórnaríhaldsins þóttu ekki
mjög glæsileg á árinu. Grafarvogsævintýrið
reyndist illa og var lítil eftirspurn eftir lóð-
um þar. Leiddi þetta til aukinnar skulda-
söfnunar borgarinnar. Davíð talaði um
„birgðasöfnun lóða“. Þá voru kynntar hug-
myndir um nýtt skipulag við Skúlagötu sem
vakti mikla mótmælaöldu m.a. meðal arki-
tekta.
Vöggur feginn
Eftir harða baráttu við svissneska
auðhringinn Alusuisse í mörg ár, bæði til að
fá hækkað raforkuverð og leiðréttingu
vegna margs konar svika var ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar fljót að ganga
til samkomulags. Var það í byrjun sept-
ember og var dr. Jóhannes Nordal formað-
ur samninganefndar íslendinga. Var samið
um lítilfjörlega hækkun á raforku og var
verðið þá helmingi lægra en framleiðslu- Geirutanríkisráðherra,semféllútafþingiogsagðiafsérformannsstöðu, ogAlbertsem
kostnaður raforku hjá Landsvirkjun. stalsenunni.-Ljósm.: Atli.
Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra lét
hins vegar hafa eftir sér: „Það er ótrúlegt
afrek að ná þessum áfanga". Litlu verður
Vöggur feginn.
Óheppilegt slys
í september fóru fram viðræður við Jap-
ani um sölu á Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga. Meðan þær fóru fram lét
Steingrímur forsætisráðherra hafa það eftir
sér að ekki væri útilokað að rekstur verk-
smiðjunnar yrði stöðvaður þar sem útséð
væri að hundruð miljón króna tap yrði á
rekstrinum næstu árin. „Þetta er óheppilegt
s!ys“, sagði Jón Sigurðsson forstjóri Járn-
blendiverksmiðjunnar um ummæli ráð-
herrans, sem varð eins og sprengja inn á
samningafundina.
Steingrímur
herðir sultarólina
„Tryggjum samningsrétt - treystum lýðræði“. Tveir verkalýðsleiðtogar, þau Benedikt
Davíðsson og Bjarnf ríður Leósdóttir er undirskriftir 35 þúsund launamanna voru afhentar.
-Ljósm.: eik.
Steingrímur forsætisráðherra og Blazerinn: Þjóðin verður að ieggja hart að sér.
- Ljósm.:eik
frá 17. öld. Var grafið af kappi og lands-
menn fylgdust með af athygli. Þegar komið
var niður á skipið reyndist það hins vegar
vera gamall togari frá Þýskalandi. Engan
bilbug var að finna á gullgröfurum og ætla
þeir að halda áfram enda búnir að leita
áratugum saman.
Pennastrik Alberts
Albert fjármálaráðherra var stöðugt í
sviðsljósinu og á fundi í Vestmannaeyjum
reifaði hann þá hugmynd að leysa vanda
útgerðarinnar með því að strika út allar
skuldir útgerðarinnar í eitt skipti fyrir öll
með einu pennastriki. Vakti þetta tölu-
verða eftirtekt.
Hnefahögg
á Akranesi
Mjög erfitt atvinnuástand varð er líða tók
á árið og stöðvuðust mikilvæg atvinnutæki
m.a. á Patreksfirði, í Keflavík og á Ólafs-