Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN) Helgin 31. desember - 1. janúar 1984
Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsit
Mannúðarstefna
eða
alræði peningavaldsins?
Nú þarf enn að skapa nýjan landsmálagrundvöll
Alþingi íslendingaeráreiðanlega
eina þjóðþingið í Vestur-Evrópu
sem var meinað að taka afstöðu til
tillagna sem legið hafa fyrir Sam-
einuðu þjóðunum og Atlantshafs-
bandalaginu um kjarnorkuvígbún-
að. Þrátt fyrir eftirrekstur stjórnar-
andstöðunnar og áherslu hennar á
afgreiðslu þessa máls náði stjórn-
arliðið að haga þinghaldinu þannig
síðustu daganafyrirjólin aðekkert
komst að í afgreiðslu þingsins. Það
var því án umboðs þjóðþingsins
að utanríkisráðherra gekk í sveit
þeirra sem skipa sér fremst í víg-
búnaðarkapphlaupinu. Geir Hall-
grímsson hafði ekki stuðning Al-
þingis í þessu efni áður en hann tók
afstöðu á utanríkisráðherrafundi
NATO sem samþykkti uppsetningu
meðaldrægra eldflauga í Evrópu.
Nú var utanríkisráðherra boðið upp
á það að rætt yrði um utanríkismál
á þinginu fyrir jól og tekin afstaðatil
þeirra. Hann vildi ekki að þingið
kæmist að niðurstöðu í þessu efni.
Ef til vill stafaði sú afstaða utanríkis-
ráðherra af því að hann óttaðist að
Alþingi yrði honum sammála- ann-
ars hefði hann án efa leitað eftir
stuðningiþingsins.
Röksemdir utanríkisráðherra og ríkis-
stjórnarinnar eru þær að ekkert megi gerast
í afvopnunar- og friðarmálum nema með
gagnkvæmum samningum stórveldanna og
ekki komi til greina að ákveða einhliða
stöðvun á framleiðslu kjarnorkuvopna,
uppsetningu þeirra eða tilraunum með þau
þó um skamma stund sé. Þannig hafa tals-
menn ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar í raun tekið að sér að verja vígbúnað
Varsjárbandalagsins ekki síður en Atlants-
hafsbandalagsins og má segja að þar komi
vel á vondan. Þó er hverju barni ljóst að það
væri fagnaðarefni þó aðeins annað stór-
veldanna lýsti því yfir að ákveðið hefði ver-
ið að stöðva framleiðslu kjarnorkuvopna á
þess vegum þó aðeins væri um að ræða fá-
eina mánuði eða ár. Vilji Sovétríkin nú láta
taka mark á friðarvilja sínum í friðarhreyf-
ingum Vesturlanda ætti sovéska stjórnin
tafarlaust og einhliða ef þörf krefur að lýsa
yfir stöðvun á framleiðslu kjarnavopna um
nokkurt skeið enda setjist leiðtogar stór-
veldanna að samningaborði og ákveði að
draga úr hraðanum í boðhlaupi dauðans.
tugum. Fullyrða má að unnt sé að sameina
yfirgnæfandi meirihluta íslendinga um
slíka utanríkisstefnu. Þá gætu íslendingar
markað spor á alþjóðavettvangi í þágu frið-
ar og þannig horfið af þeirri braut, sem
núverandi ríkisstjórn íslands kýs að fylgja.
Vonin er í
friöarhreyfingunni
Von mannkynsins felst í friðarhreyfing-
unum og því að þær megni að halda augum
mannanna opnum fyrir þeirri ógn sem nú
blasir við öllu iífi. Hér á landi þurfa menn
að leggja sig fram um það að reyna að móta
nýja utanríkisstefnu á forsendum friðar-
hreyfinganna. Um slíka utanríkisstefnu
yrði áreiðanlega betri samstaða en þá
stefnu sem fylgt hefur verið á liðnum ára-
Hægri stefnan nærist
á sprengjuóttanum
í skugga sprengjuóttans hefur margt
breyst að minnsta kosti á yfirborðinu. Með-
al annars hefur hægri stefnunni vaxið ás-
megin um skeið því stríðsóttinn er jarðveg-
ur hennar. Með sprengjuóttanum vilja þeir
sem sterkir eru hrifsa meira og meira í sinn
hlut og markaðsöfl miskunnarleysisins
eflast að áhrifum. Mannleg sjónarmið eru
fótum troðin og langtímasjónarmið, hug-
sjónir um nýtt og betra samfélag lýðræðis
og jafnréttis eiga erfiðara uppdráttar því
þær hugsjónir eru léttvægar fundnar á
markaðstorgi gróðraaflanna. Það er engu
líkara en ráðandi öfl séu að neyta síðustu
kraftanna til þess að hrifsa til sín það sem
eftir er af lífsgæðunum áður en örlaga-
klukkur sprengjunnar glymja mannkyninu
öllu. Af þessum ástæðum hafa hægri öflin
sótt fram. En aðeins skamma stund: Þó
fyrsta viðbragð sé grimmd markaðslögmál-
anna kemur það æ betur fram að krafan um
samkennd og samhjálp verður ofan á þegar
menn athuga betur sinn gang. Þetta kom til
dæmis óvenjuskýrt fram á íslandi nú um
hátíðarnar. Það kom fram í göngunni á
Þorláksmessu sem áður yar minnst á. Og
það kom fram í þeim áherslum á friðarboð-
skapinn sem birtist í málflutningi í kirkjum
um jólin. Síðast en ekki síst kom þetta vel
fram í söfnuninni „Brauð handa hungruð-
um heimi" þar sem tvöfalt hærri upphæð
skilaði sér en gert hafði verið ráð fyrir.
Þetta er tvímælalaust merki þess að í samfé-
laginu er nú á ný vaxandi skilningur á nauð-
syn samstöðu og samhjálpar, - að mannúð-
arstefnunni hefur ekki verið úthýst úr
þjóðfélaginu þrátt fyrir yfirgang markaðs-
aflanna.
Því miður eru íslensk stjórnvöld um þess-
ar mundir ekki aðeins býsna skilningslaus á
málstað friðarhreyfinganna. Þau eru líka
með aðgerðum sínum í efnahagsmálum að
breyta íslenska þjóðfélaginu í grundvallar-
atriðum og með ákvörðunum þeim sem
teknar hafa verið í herstöðvamálinu er
stuðlað að enn frekari ágreiningi meðal
þjóðarinnar á þeim tímum þegar okkur er
þó brýnast að standa saman. Þannig hefur
verið tekin ákvörðun um flugstöðvarbygg-
ingu, margfalt stærri en nauðsynleg er fyrir
íslenskt farþegaflug, olíubirgðastöð, flota-
höfn í Helguvík og nú er rætt um radar-
stöðvar á nokkrum stöðum á landinu. Það
'er því greinilega markvisst unnið að því að
flækja ísland enn þéttar í vígbúnaðarnet
stórveldanna. Nú berast Bandaríkjastjórn
bænaskrár ríkisstjórnar íslands um fleiri
herstöðvar og aukin hernaðarumsvif en
áður voru það Bandaríkjamenn sem þurftu
að knýja á um útfærslu hernámsins hér á
landi. Þegar ísland gerðist aðili að NATO
var kvartað yfir því að það væri erfitt að ala
íslendinga upp, eða venja þá við hersetuna.
Enn hefur það reynst erfitt - en íslenskir
ráðamenn eru nú orðnir svo vel vandir að
þeir bera sjálflr fram kröfurnar um út-
Breytingar verðlags og kauptaxta á árinu 1983 - (vísitölur)
Janúar Febrúar Mars Apríl Maí <§< vE O- tt i “ n - c .100,0 .108,3 .116,2 .121,4 .130,8 0> H 3 01 IQ s> 0) 100,0 100,0 115,7 115,7 115,7 125,1
Júní .140^1
Júlí .148,0 125,1
Ágúst .153,6 125,1
September .156,7 125,1
Október .161,5 130,1
Nóvember .164,9 130,1
Desember .166,8 130,1
Ársmeðaltal .139,0 119,8
Hækkun 1982-83,%... Hækkun frá upphafi ...85,8 49,4
til lokaárs 1983, % Hækkun ...77,3 32,7
jan.-des. 1983, %.... ...66,8 30,1
’> Miöað við vísitöluna eins og mánuöi. hún er áætluð í miðjum
Þessi tafla er frá Þjóðhagsstofnun. Hún sýnir hækkanir verðlags og launa á árinu 1983. Þar sést glöggt hvað vantar upp á tekjur launafólks og um leið hver það er sem borgar brúsann í
baráttunni gegn verðbólgunni. A milli línanna í línuritinueru úrklippur úr Morgunblaðinu og Þjóðviljanum í gær sem sýna kjarna málsins: Það er þröngt í búi á heimilunum um
áramótin vegna kaupránsaðgerða stjórnarinnar.
^Xm&EBS9t*l!l!&i58&íXaBSKynmmMM6'VaKlB9VK-Ji/mBM!!Cnm