Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 23
Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
íþróttrir
Árið 1983 er liðið. Það hafa
skipst á skin og skúrir í íslensku
íþróttalífi síðustu tóif mánuðina
eins og gengur og gerist en
óhætt er að fullyrða að það hafi
verið með líflegra móti. Við ætl-
um að líta á það helsta sem gerst
hefur, ekki í almanaksformi eins
og tíðkast hefur, heldur verður
hver íþróttagrein tekin útaf fyrir
sig.
Knattspyrna
Akranes er lið ársins 1983, á því er ekki
nokkur vafi. Skagastrákarnir unnu bæði
deild og bikar og kórónuðu síðan allt saman
með frábærum árangri í Evrópukeppni
bikarhafa þar sem þeir töpuðu aðeins 2:3
samanlagt gegn handhöfum Evrópubikars-
ins, Aberdeen. Arangur Víkinga og Eyja-
manna í Evrópumótunum var einnig góður
og heildarframmistaða íslensku liðanna á
þeim vettvangi hlýtur að teljast sú besta
sem náðst hefur.
Ekki eru menn jafn ánægðir með lands-
liðið. Sigrar unnust gegn Möltu og Fær-
eyjum en leikirnir við Spánverja, Svía,
Hollendinga og íra töpuðust allir. Sjaldan
hefur verið búst við meiru af íslensku lands-
liði og vonbrigðin því mikil.
Ásgeir Sigurvinsson og Atli Eðvaldsson
stóðu fremstir atvinnumanna okkar á þessu
ári. Ásgeir er talinn einhver besti leikmað-
ur í vestur-þýsku knattspyrnunni og Stutt-
gart trónir þar á toppnum og Atli varð í
fyrravor annar markhæsti leikmaður Bund-
esligunnar.
A heimaslóðum setti Eyjamálið mikinn
svip á lok íslandsmótsins, IBV notaði ólög-
legan mann í síðasta leik og féll fyrir vikið
ásamt ÍBÍ. Fram og KA taka sæti þeirra í 1.
deild. Breiðablik sigraði tvöfalt í kvenna-
flokki þriðja árið í röð en hafði ekki eins
mikla yfirburði og oft áður. Kvennalands-
liðið tapaði öllum fjórum leikjum sínum í
Evrópukeppninni.
Handknattleikur
Víkingar urðu íslands- og bikarmeistarar
í karlaflokki rétt eina ferðina en á yfirstand-
Einar Vilhjálmsson skipaði sér í röð fremstu spjótkastara heims á árinu 1983.
Víóir
Sigurösson
Umsjón:
Ásgeir Sigurvinsson
hefur leikið mjög
vel með Stuttgart í
vetur.
andi móti virðist fátt geta komið í veg fyrir
sigur FH. Valur varð íslandsmeistari
kvenna en ÍR bikarmeistari. Landsliðið
hafnaði í 7. sæti í B-keppninni í Hollandi og
var óheppið að komast ekki í efri hlutann
þar eftir góðan sigur á Sviss. Liðið vann
fimm leiki af sex í Norðurlandaferð en hef-
ur samt ekki verið sannfærandi á árinu.
Kvennalandsliðið var hins vegar á uppleið
og náði ágætum árangri.
Víkingar voru slegnir útúr 1. umferð í
Evrópukeppni af norska liðinu Kolbotn en
FH og Kr eru komin í 8-liða úrslit eftir
yfirburðasigur gegn Maccabi frá ísrael og
Berchem frá Luxemburg. Kristján Arason
ber höfuð og herðar yfir handknattleiks-
menn í slakri 1. deild hér heima en Sigurður
Sveinsson og sérstaklega Alferð Gíslason
gera það gott í V.-Þýskalandi. Þar hefur
Jóhann Ingi Gunnarsson einnig náð frábær-
um árangri sem þjálfari Kiel.
Körfuknattleikur
Valsmenn reyndust sterkastir í fyrravor,
unnu úrvalsdeildina eftir harða baráttu við
nýliða Keflavíkur og sigruðu ÍR í úrslitaleik
bikarkeppninnar. A yfirstandandi keppnis-
tímabili er keppnin afar jöfn, KR og
Haukar hafa komið mjög á óvart en Valur
og Keflavík hafa mjög svo slakað á. KR
hafði yfirburði í kvennaflokki og varð ís-
landsmeistari en nú í vetur stendur baráttan
þar milli ÍR og ÍS. Útlendingar voru útilok-
aðir frá keppni hér á landi áður en keppni
hófst í vetur.
Landsliðið var lítið á ferðinni, vann Dani
tvívegis í þremur leikjum hér heima og náði
síðan þriðja sæti á Polar Cup.
Frjálsar íþróttir
Afrek Einars Vilhjálmssonar, spjótkast-
ara, er það mesta á íþróttasviðinu hérlendis
árið 1983. í keppni Norðurlandanna og
Bandaríkjanna þeytti hann spjótinu 90.66
metra, glæsilegt Islandsmet og Einar er
kominn í hóp bestu kastara í heimi.
ísland vann Kalott-keppnina, ekki síst
vegna frábærrar frammistöðu þekkts
Eyfirðings, Kristjáns Hreinssonar, sem
stökk 2.11 m í hástökki og bætti 18 ára
gamalt met Jóns Þ. Ólafssonar. Bryndís
Hólm bætti langstökksmet kvenna í sífellu
og var komin í 6.17 m í haust. Þórdís Gísla-
dóttir náði góðum árangri í hástökki, Sig-
urður T. Sigurðarson í stangarstökki, Jón
Oddsson og Kristján Harðarson í lang-
stökki og þá náði Sigurður Matthíasson
öðrum besta árangri í heimi í hástökki án
atrennu.
Badminton
Landsliðið náði besta árangri á EM frá
upphafi, hafnaði í 7. sæti B-keppninnar í
Sviss. TBR stóð sig einnig vel og varð í 5.-7.
sæti í Evrópukeppni félagsliða í París. TBR
hefur áfram yfirburði hér heima, Kristín
Magnúsdóttir og Broddi Kristjánsson sóp-
uðu að sér íslandsmeistaratitlum, en frá-
bært unglingastarf gæti skilað sér á Akra-
nesi innan fárra ára.
Fimleikar
Kristín Gísladóttir varð íslandsmeistari í
kvennaflokki og Jónas Tryggvason í karla-
flokki. Kristín stóð sig vel á Norðurlanda-
mótinu í Noregi og tók fyrst íslenskra
kvenna þátt í Eviópumeistaramótinu sem
haldið var í Gautaborg. Gerpla er áfram
sterkust í kvennagreinunum, Ármenningar
í karlagreinum.
Sund
HSK varð bikarmeistari, og þar léku
Tryggvi Helgason og Bryndís Ólafsdóttir
stærstu hlutverkin. Tryggvi hafði áður
hlotið 7 gull á íslandsmótinu og Bryndís er
eitthvert mesta efni sem fram hefur komið
hér á landi. Eðvarð Þ. Eðvarðsson fékk
silfur og brons á Norðurlandamóti ung-
linga, Ragnheiður Runólfsdóttir, Guðrún
Fema Ágústsdóttir og Ingi Þór Jónsson
voru í metaham á árinu og hinn kornungi
Ragnar Guðmundsson gerir það gott í Dan-
mörku. Mikil gróska í sundíþróttinni í
heild.
Blak
Þróttur vann tvöfalt í karla og kvenna-
flokki en í ár virðist margt geta breyst. HK
hefur skapað nýja vídd í karlaflokki og
berst um meistaratitilinn við Þrótt og Völs-
ungur, ÍS og Breiðablik eru í sérflokki hjá
kvenfólkinu. Gunnar Árnason náði ein-
stökum árangri, lék á árinu sinn 215. leik í
röð fyrir Þrótt.
Borðtennis
Tómas Guðjónsson og Ragnhildur Sigurð-
ardóttir urðu íslandsmeistarar. Landsliðið
varð í 57. sæti af 60 þjóðum á HM í Tokyo
og er það nokkru lakara en áður hefur
náðst.
Lyftingar
ísland náði öðru sæti íNorðurlandamóti í
ólympískum lyftingum í fyrsta skipti. Jón
Páll Sigmarsson fékk silfur á Evrópumótinu
í kraftlyftingum, setti Evrópumet í rétt-
stöðulyftu og varð Norðurlandameistari
ásamt Torfa Ólafssyni.
Golf
íslandsmeistarar urðu Gylfi Kristinsson
og Ásgerður Sverrisdóttir. Landsliðunum,
karla og kvenna, gekk ilia á Evrópumótun-
um, karlarnir næstneðstir í París og konurn-
ar neðstar í Brússel. Sveit GR náði þó 10.-
11. sæti í Evrópukeppni félagsliða á Spáni.
Júdó
Bjarni Friðriksson var áfram í farar-
broddi, fékk gullverðlaun á opna sænska
meistaramótinu og varð síðan þriðji á opna
skandinavíska mótinu í Finnlandi. Arnar
Marteinsson hlaut gullverðlaun á Norður-
landamóti unglinga í Finnlandi.
Skíði
ísfirðingar fengu flest gull á Skíðamóti
Islands. Á unglingameistaramótinu voru
Akureyringar sem fyrr bestir í alpagreinum
en Ólafsfirðingar í norrænum greinum.
Fyrsta alþjóðlega skíðagangan,
Lava-Loppet, var haldin hér á landi.
Fatlaðir
Erlend samskipti aukast sífellt. 25 fóru á
barna- og unglingamót í Noregi, sex á NM
fatlaðra í Svíþjóð og tveir á heimsleika
mænuskaðaðra í Englandi. Fimm silfur og 4
brons unnust í Svíþjóð og Baldur Guðna-
son fékk tvö silfur í Englandi.
Þá er aðeins ógetið um þrjár greinar sem
stundaðar eru innan ÍSÍ, glímu, skotfimi og
siglingar. Glíman er í mikilli lægð og þarf
átak til að hún deyi ekki út. Jón Unndórs-
son var valinn glímumaður ársins, Jóhann-
es Ævarsson siglingamaður ársins og Carl J.
Eiríksson skotmaður ársins af íþróttablað-
inu.
Gledilegt nýár