Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 29

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Page 29
Helgin 31. desember - 1. janúar 1984 ÞJÓÖVILJINN - SÍÐA 29 útvarp* Pálína brosir við Ómari. Sjónvarp nýársdag kl. 20.50 Ein í torfbce Og nú hefur Ómar Ragnars- son brugðið sér norður að Skarðsá í Sæmundarhlíð í Skagafirði til fundar við Pálínu Konráðsdóttur, sem þar býr ein síns liðs og kvartar hvergi. Pálína er nú 83 ára og trúlega eini íbúinn í torfbæ á íslandi. Hún kann vel að fagna gestum og ekki þarf að efa að vel hefur farið á með þeim Ómari. Myndatöku annaðist Helgi Sveinbjörnsson og hljóð Oddur Gústafsson. Og í kvöld býður Pálína á Skarðsá öllum sjón- varpsáhorfendum í bæinn. -mhg Sjónvarp gamlaársdag s Aramóta- skaup - stjörnur og stórmál... Ekki gat hjá því farið að við fengjum okkar áramótaskaup í sjónvarpinu nú eins og jafnan áður. Að þessu sinni ber það heitið Stjörnur og stórmál árs- ins í spéspegli, og eru skaparar þess Andrés Indriðason og Þrá- inn Bertelsson. Þórhallur Sigurðsson stjórn- ar atburðunum en leikendur eru: Árni Tryggvason, Edda Björgvinsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Hanna María Karls- dóttir, Lilja Guðrún Þorvalds- Edda Björgvinsdóttir óræð á svipinn. dóttir, Pálmi Gestsson, Sigurð- ur Sigurjónsson og Örn Árna- son. Upptöku stjórnaði Andrés Indriðason. -mhg Útvarp nýársdag kl. 22.35 Sólrún Bragadóttir. Bergþór Pálsson. Ljóðasöngur í útvarpssal Á nýársdagskvöld fáum við að kynnast tveimur nýjum söngvurum, þeim Bergþóri Pálssyni, bariton, og Sólrúnu Bragadóttur, sópran. Þau munu syngja ljóðasöngva eftir innlenda og erlenda höfunda og er þetta frumraun þeirra í út- varpi. Þau Bergþór og Sólrún stunda bæði söngnám við Tón- listarskólann í Bloomington í Indianafylki í Bandaríkjunum og hafa numið þar á annað ár. Bæði hafa þau fengið hlutverk í óperum, sem færðar verða upp í skólanum í vetur. -mhg Hallur Friðrik Pálsson Borgarnesi Fœddur 9.2. 1942 Dáinn 22.12. 1983 Að morgni 22. desember var bjart og fagurt veður í Borgarnesi, jólaljósin voru að koma upp fleiri og fleiri hvern dag sem nær dró jólahátíðinni. Eftirvænting og gleði var ríkjandi í hugum okkar. En þá kemur fregn um að látinn sé vinur, um borð í skipi sínu í er- lendri höfn. Jólaljósin dofna og í stað gleði og eftirvæntingar göngum við um hljóð og döpur. Það er tæpast hægt að trúa því að ekki verði framar bankað og sagt hæ, hó, eins og gerðist svo oft er Hallur var heima. Hallur Friðrik Pálsson verður til moldar borinn frá Borgarneskirkju í dag. Hann var fæddur 9. febrúar 1942 í Borgarnesi, sonur hjónanna Jakobínu Hallsdóttur og Páls Stef- ánssonar. Hann ólst upp í foreldra- húsum hér í Borgarnesi ásamt syst- ur sinni Vigdísi. Við bræðurnir kynntumst Halli ekki að ráði fyrr en upp úr 1960 er leiðir lágu saman í starfi og leik. Þá | strax urðu til þau vinabpnd sem aldrei rofnaði þráður í. Það er margs að minnast um góðan vin og áhugamál voru mörg sameiginleg. Hallur var um margt sérstæður drengur, skapgerð hans var ein- staklega Ijúf og mild. Hann lagði ætíð gott til allra sem hann þekkti og tók ekki undir er einhverjum var hallmælt. Hallur gat verið glett- inn og gert grín með sérstæðum hætti. f því sambandi eru minnis- stæðar veiðiferðir ef illa gekk, þá brá hann ætíð á glens og gerði gott úr hlutunum, gerði áætlun um næstu ferð og þá skyldi það takast. Hallur unni mjög hvers kyns sport- veiði og átti góðan búnað til þeirra hluta og nutu þá vinir þess oft. Hann var góður veiðimaður, gæt- inn og athugull og öðrum gleggri er teknar voru ákvarðanir um hvert skyldi farið hverju sinni. Margar sjóferðir fórum við sam- an á bát hans, bæði til veiða og skemmtunar, m.a. fór annar okkar með honum kringum landið í sjó- ralli 1978, það var skemmtileg ferð en erfið. Margar voru ferðirnar hér fram á flóann er rennt var fyrir fisk eða farið í lunda, ógleymanlegar. Hann geislaði af gleði hann Hallur er glitti í lúðu í sjóskorpunni. Sjó- leiðir hér fyrir Mýrum eru vand- farnar, víða eru sker og boðar. Hallur rataði þessar leiðir öðrum betur og naut þar góðrar Ieiðsagnar föður síns frá fyrri árum. Hann var og gætinn og athugull sjómaður. Hallur fór ungur að heiman og lá þá leiðin út í hinn stóra heim á farmskipum. Sjómennsku stundar hann svo samfellt um mörg ár, eða allt þar til hann verður fyrir slysi er skip hans fékk á sig brotsjó hér suður af landinu. Hallur slasaðist mjög alvarlega og vegna óveðurs leið langur tími þar til hann komst undir læknishendur. Á ótrúlega skömmum tíma náði Hallur sér eftir slysið með hjálp góðra lækna og án efa hefur hans ljúfa geð og jákvæð dómgreind hjálpað þar mikið til. Það hlýtur að vera mikið áfall fyrir ungan mann að standa allt í einu uppi með ör í andliti, skerta sjón og þrek. En hann yfir- vann sín vandamál með stakri prýði og aldrei vottaði fyrir bitur- leika. Nú er leiðir skilja er efst í huga þakkir fyrir allt sem þú varst okkur og okkar fjölskyldum. Við kveðj- um þig með söknuði góði vinur. Móður hans og systur og öðrum ástvinum vottum við dýpstu samúð og biðjum góðan guð að vernda þau og styrkja. Halldór Brynjúlfsson, Brynjólfur Brynjúlfsson og fjölskyldur. Fjölbrauta skólinn í Breiðholti Skólastarf Fjölbrautaskólans í Breiðholti á vorönn 1984 hefst með almennum kennarafundi miðvikudag- inn 4. janúar kl. 9.00-16.00. Fimmtudag 5. janúar verða nemendum Dagskóla F.B. afhentar stundatöflur frá kl. 9.00-15.00. Sama dag verður deildarstjórafundur kl. 9.00-12.00 og sviðsstjórafundur kl. 14.00-16.00. Bóksala skólans verður opin kl. 10.00-15.00. Föstudaginn 6. janúar verður sérstök kynning ný- nema á skólanum kl. 9.00-16.00. Þann dag verður bóksala skólans einnig opin frá kl. 14.00-16.00. Innritun í Öldungadeild F.B. svo og val námsáfanga fer fram 4. og 5. janúar frá kl. 20.00-22.00, einnig 6. janúar frá kl. 18.00-20.00. Kennsla í skólanum hefst mánudaginn 9. janúar sam- kvæmt stundatöflum nemenda í dagskóla og öldunga- deild. Skólameistari Fyrir hönd Innkaupanefndar sjúkrastofnana er óskað eftir tilboðum í eftirtaldar sjúkrahúsavörur fyrir sjúkrahús- og heilsugæslustofnanir á höfuðborgar- svæðinu og víðar: 1. Útboð nr. 2976/83 - Skurðstofuhanskar o.fl. gerðir hanska. 2. Útboð nr. 2977/83 - Pappír á skoðunarbekki og munnþurrkur. Söluverð útboðsgagna er kr. 500.- per sett. Útboðs- gögn eru afhent á skrifstofu vorri og skal tilboðum skilað á sama stað eigi síðar en kl. 11.00 f.h. föstudag- inn 27. janúar n.k. og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra bjóðenda. Innkaupastofnun rikisins Borgartuni 7, Rvlk. Minninga- þættir Bókaforlag Odds Björnssonar hefur sent frá sér nýja bók eftir Jón Gísla Högnason frá Læk, og nefn- ist hún Gengnar leiðir. í bókinni eru minningaþættir 8 samferða- manna. Jón Gísli hefur áður tekið saman safnrit með frásögnum al- þýðufólks, en sjaldan hefur honum tekist að laða fram jafn samstætt safn aðlaðandi persóna. Með hans eigin orðum er þetta „lífsreisa um langvegu, sem farin var af þeim, sem geta glaðst og fundið til“. ^ UMFERÐARMENNING STEFNULJÓS skal jafna gefa ÞJÓÐHÁTÍÐAR- -Ak SJÓÐUR auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 1984. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977 er tilgangur sjóðsins „að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til Frið- lýsingarsjóðs til náttúruverndar á vegum Náttúruverndarráðs. b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til varð- veislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menningarverð- mæta á vegum Þjóðminjasafns. Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b). Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.“ Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar 1984. Eldri umsóknir ber að endurnýja. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðs- stjórnar, Sveinbjörn Hafliðason, í síma (91) 20500. ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.