Þjóðviljinn - 11.02.1984, Blaðsíða 17
Helgin 11.-12. febrúar 1984 IÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
dægurmál (sígild?)
Hljómsveitin Yes....er hún til
enn? Óyes, og er aldeilis ekki á
þeim buxunum að leggja upp
laupana, ef marka má nýútkomna
plötu þeirra 90125 (’83). Hljóm-
sveitin var stofnuð árið 1968 af
þeim söngvara Jon Anderson (f.
’44) og Ghris Squire bassaleikara
(f. ’48).
Á mörgu hefur gengið og
mannabreytingar nokkuð tíðar í
gegnum árin, en þó svo oft hafi
óbyrlega blásið mót þeim köppum
og þeim jafnvel spáður dauði og
gleymska í komandi nútíð, mega
þeir hinir sömu spámenn éta sokka
sína.
Fílefldir og fullir orku ríða hetjur
aftur um héruð og bjóða allsráð-
andi sölumarkaði birginn, með
yndislega pottþéttri og snilldarinn-
ar vel gerðri plötu. Grúppan er í
dag skipuð, auk þeirra Jon og
Chris, þeim Trevor Rabin, gítar-
og hljómborðsleikara, Alan White
Grikkinn Vangelis og Jon Anderson hafa gefið út tvær stórar hljómpiötur
í sameiningu: Shorí Stories og The Friends ofMister Cairo. Vangelis er
annars þekktastur fyrir músík sína sem hann gerði fyrir kvikmyndirnar
Blade Runner og Chariots of Fire.
á trommur og ásláttarhljóðfæri og
Tony Key, hljómborð. Alhr eru
gæjarnir snillingar á sín hljóðfæri
og sanna það svo um munar, að
það lifir sem vel er gert og vandað
til.
Ekki er ólíklegt að platan hafi
komið þeim er þekkja almennt til
hljómsveitarinnar nokkuð á óvart,
því upprisnir og endurholdgaðir
leika þeir félagar ívið þungrokk-
aðri tónlist en áður, og þau
epísk-klassísk-rokkuðu tónverk, er
Yes gat sér í upphafi frægðarorð
fyrir að leika af þokkafullu ör-dulu
listfengi, er svo að segja horfið á vit
hugsjónarmissis sem fyigir ávallt
brevttum tímum.
Á sínum tíma lá söngvarinn Jon
undir töluverðu höggi fyrir það
sem kallað var „geldingslegan"
söng, og var þá vitaskuld átt við
háa og nokkuð óvenjulega „fal-
settó“ rödd hans. Sumir kunna að
merkja nokkuð augljós áhrif frá
söngstíl Jons í söngvara hljóm-
sveitarinnar Police, Sting, og
jafnvel ef vel er að gáð gætir einnig
áhrifa í tónlist hinna síðarnefndu
frá Yes. Oft greinir eingöngu hinn
vinsæli „reggí" taktur sem Police
brúkar oftlega, þessar tvær hljóm-
sveitir að.
Lag Yes, „Owner of a Lonely
Heart“ hefur, eins og flestum er
kunnugt, heyrst oftlega á öldum
Ijósvakans síðustu daga, og hefur
það náð feikilegum og jafnframt
verðugum vinsældum víða um ver-
öld. Mættu þó heyrast önnur lög af
þessari skífú, því ekkert er öðru
lakara. Piata þessi er frábær í einu
þriggjastafa orði. Öll lögin vönd-
uð, textar óvitlausir, hljóðfæra-
ieikur óaðfinnanlegur og síðast en
ekki síst sanna þessir ljúfu tón-
listarmenn það, að ekki eru karl-
menn menn með djúpvitund og
þroska að einhverju marki, nema
yfir þrítugt séu..-
Björk
CRUCIFIX ofl.
í FS í kvöld
Didda
Bandaríska anarkista-hljóm-
sveitin Crucifix heldur síðari
hljómleika sína hér á landi í kvöld í
Félagsstofnun stúdenta við Hring-
braut og hefjast þeir kl.22.00.
Einnig koma fram á hljómleikun-
um íslensku sveitirnar Vonbrigði,
Cosmo og Askur Yggdrasils, sem
er skipuð þeim Sigtryggi trommara
og Gulla úr Þey, Björk úr Tappan-
um, Árna og Torfa úr Vonbrigðum
og Diddu.
Gunnar Smári mundar hér hníf við samlokutilbúning handa tveim við-
skiptavinum í Bíslaginu. Ljósm. Atli.
ís og snarl í
Bíslagið nefnist lítili og huggu-
legur snarl-staður við Ingólfsstræti
í Reykjavík, nánar til tekið gegnt
Operunni sjálfri í Gamla bíói, eða,
enn nánar til tekið, miðja vegu
gegnt henni og veitingastaðarins
Arnarhóls.
Nýverið voru gerðar gagngerar
breytingar á Bíslaginu. Er nú hægt
að fá þar fjölbreytt girnilegt snarl
og ísrétti, t.d. snittubrauðssamlok-
ur, hvítt brauð eða gróft eftir
„smag og behag“ og 12 áleggsteg-
undir getur fólk valið um, heitar
samlokur fást í mörgum tilbrigðum
og Braggakökur með ljúffengum
Bíslaginu
fyllingum. „Eftirréttir“ eru t.d.
eplapæ, íspönnukökur, um 15
gerðir af frumlegum ísréttum,
mjólkurhristingur með ferskum
ávöxtum ýmiss konar og öllu þessu
má skola niður með öli, gosi, kakói
o.m.fl. ... að ógleymdu vatni vita-
skuld.
Bíslagið er opið virka daga frá
kl. 10 til 20, laugardaga 10 - 16, en
lokað á sunnudögum. Ekki má
gleyma að geta þess að allt brauðið
er smurt jafnharðan á staðnum, og
verðið á samlokunum er 40 til 6C
krónur.
§
—Já, nú bjóðum við úrvals ÍSFUGLS unghænur með 25% afslætti
— það munar um minna þessa dagana.
Unghænumar frá (SFUGL em tilvaldar í ýmsa pottrétti og við
látum fylgja eina gimilega uppskrift.
KRYDDUNGHÆNA FRÁ ISFUGL
Atvinna
Svæöisstjórn Vesturlands óskar að ráöa for-
stöðumann við nýtt sambýli fyrir fjölfatlaða á
Akranesi.
Menntun og starfsreynsla í þágu fatlaðra er
æskileg.
Umsóknir um starfið þurfa að berast fyrir 15.
febrúar til Svandísar Pétursdóttur, Bjarkar-
grund 35, 300 Akranesi, eða Snorra Þor-
steinssonar Borgarbraut 61 Borgarnesi, sem
einnig veitir allar nánari upplýsingar.
Svæðisstjórn Vesturiands
HRÁEFNI (fyrirfjóra)
1 Unghæna frá ISFUGL
Sítrónusafi, salt, persille
1 lltill laukur
1 púrra
1 msksalt
1 tskpiparkom
1 Ivatn
Matreiðslutími ca 2 klst.
Sósa:
3-4 dl síað unghænusoð
2 msk hveiti
1 dl rjómi
estragon, merian, salvie
sait og pipar eftir smekk
1. Nuddið unghænuna að utan
og innan með salti og
sítrónusafa. Setjið nokkrar
persille-greinar inn í
unghænuna.
2. Setjið unghænuna í pott með
vatni lauk og púrru. Sjóðið og
fleytið ofan af.
3. Bætið saltinru og
piparkomunum út í og látið
sjóða undir loki i 1 1/2 — 2
klst., þartil unghænan er
orðin meyr.
4. Síið soðið, sem nota á í
sósuna, í pott. Hellið hveiti óg
rjóma út í og hrærið vel. Látið
suðuna koma upp og bætið
tómatkrafti og kryddi að
smekk, einnig öriitið af salti og
pipar.
5. Takið haminn af unghænunni
og skerið hana i bita. Setjið
bitana i pottinn sem bera á
réttinn fram í og hellið sósunni
yfir.
BORIÐ FRAM MEÐ:
Hrísgrjónum eða soðnum kartöflum.
Fersku salati og sitrónudressing.
Verði ykkur að góðu.
ísfugl
Fuglasláturhúsið að Varmá
Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Símar: 91-66103 og 66766