Þjóðviljinn - 11.02.1984, Qupperneq 27
Helgin 11.-12. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍ0A '27
Verðlagsráð er
blekkingarstofnun
segir Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins
Fiskverð hœkkar um 4% # Aflatryggingasjóður
allur fœrður útgerðarmönnum
Frásögn Þjóðviljans af umræðum í Verðlagsráði daginn áður en
fiskverðsákvörðun var tekin.
,J>að má öllum Ijóst vera hvers-
konar blekkingarstofnun yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins er
orðin, þegar allir aðilar, bæði við
sem hlunnfarnir erum og líka þeir
sem hyglað er láta bóka eftir sér
mótmæli“, sagði Óskar Vigfússon
formaður Sjómannasambandsins,
er Þjóðviljinn ræddi við hann í gær
eftir að fiskverðshækkun um 4% lá
fyrir og sú staðreynd að Aflatrygg-
ingasjóður, sem fær tekjur af
óskiptum afla og er ætlaður til að
bæta upp hjá bæði sjómönnum og
fiskiskipum, sem verst gengur, er
tekinn og hann alfarið færður til
útgerðarmanna.
„Varðandi fréttatilkynningu
sjávarútvegsráðherra um ráðstaf-
anir í fjárhagsmálum sjávarútvegs-
ins í framhaldi af fiskverðsákvörð-
un vil ég segja þetta: Ég er ekki á
móti skuldbreytingu í útgerðinni
sem er ætlað að létta undir með
skuldugum útgerðarmönnum, en
varðandi annað og þó alveg sér-
staklega breytinguna á Aflatrygg-
ingasjóði, þá mótmæli ég henni
harðlega. Sjómenn munu allir mót-
mæla þeirri grundvallarbreytingu
sem þarna á sér stað. Sjómenn eiga
hlutdeild í Aflatryggingasjóði,
enda greiða þeir í hann, en nú á að
taka alla peninga sjóðsins og færa
inná stofnfjársjóð fiskiskipa á
reikning hvers útgerðarmanns,
miðað við aflamagn sem skip hans
leggur upp. Áður var það verkefni
sjóðsins að aðstoða þá sem verst
gekk, nú á að verðlauna þá sem
bestur gengur. Ég mótmæli þessu
því harðlega og þeirri árás á kjör
sjómanna sem fiskverðsákvörðun-
in og hliðarráðstafanir þess eru.
Sjómenn munu áreiðanlega íhuga
sinn gang vandlega á næstunni“,
sagði Óskar Vigfússon.
I ráðstöfunum í fjárhagsmálum
sjávarútvegsins, sem sjávarútvegs-
ráðherra birti í gær er tilkynnt um
skuldbreytingar útgerðaraðila, þar
í ráðstöfunum í fjárhagsmálum
sjávarútvegsins, sem sjávarútvegs-
ráðherra birti í gær er tilkynnt um
skuldbreytingar útgerðaraðila, þar
sem öllum skuldum, hvort heldur
sem þær eru í vanskilum eður ei er
breytt í langtímalán og séð um að
greiðslubyrðin lækki verulega á
næstu árum, eins og segir orðrétt í
fréttatilkynningu ráðherra.-S.dór
Stolið frá
• S
• •
sjomonnum
í bókun Óskars Vigfússonar formanns Sjómannasambands íslands í
Verðlagsráði sjávarútvegsins í gær, vegna nýs fiskverðs, kemur fram
mjög hörð og alvarleg ásökun á hendur útgerðarmönnum þar sem
segir:
Einnig vil ég leggja áherslu á að tími er kominn til þess að véfengja
upplýsingar um afkomu fiskvinnslunnar þar sem vitað er að ýmsir
fiskkaupendur bjóða mun hœrra verð fyrir fiskinn en gildandi verð-
lagsráðsverð, auk annarra fríðinda.
Þó undantekningar séu þar á ganga slíkar yfir- eða undirborðs-
greiðslur í flestum tilfellum beint til útgerðar og framhjá skiptum við
sjómenn.
Þá má fullyrða að sú alvarlega þróun sem nú á sér stað í útflutningi á
ferskum fiski ígámum er bein afleiðing aflágu fiskverði hér á landi. Sá
milliliðagróði sem fœs' íþessu sambandi er beinlínis fenginn á kostnað
sjómanna með óeðlilegu skiptaverði og er til stórskaða fyrir það fólk
sem ífiskiðnaði vinnur og í stórum hópum gengur atvinnulaust vegna
hráefnisskorts.
Aföllu þessu er Ijóst aðfiskverð er ákveðið mun lœgra en efni standa
til. Það vekur furðu og verður að teljast skoplegt að vísindaleg markaðs-
viðmiðun skuli gefa sömu niðurstöðu og launarammi ríkisstjórnarinn-
ar.
Það er óhjákvœmilegt að draga þá ályktun að ríkisstjórnin taki
ákvörðun öðrum til eftirbreytni. Því hlýt ég að mótmæla.
Dularfullur atburður á Eyjamiðum:
Plast bobbingarnir
komu brenndir upp
Þegar skipverjar á Vestmannaey
VE voru að draga inn trollið nú í
vikunni kom í ljós að plast bobbing-
ar á því voru brenndir, eða litu út
fyrir að hafa lent í miklum hita.
Skipverjar gerðu jarðfræðingum
viðvart ef hugsanlegt væri að um
neðansjávargos væri að ræða á
þessum stað, sem er um 11 sjómílur
SA af Surtsey. Þarna er mikið dýpi
eða um 300 metrar.
Guðmundur Sigvaldason jarð-
fræðingur sem hefur aðeins skoðað
málið sagðist ekki trúaður á að um
gos væri að ræða, en auðvitað væri
ekki hægt að fortaka það. Eitthvað
er það fyrst bobbingarnir koma
brenndir upp, sagði hann í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur sagði í gær að engir jarð-
skjálftar hefðu verið merkjanlegir
sem gætu bent til þess að þarna
væri eitthvað að gerast. Ragnar
sagðist hafa fengið skeyti frá skip-
verja á Vestmannaey VE þar sem
segir:
„Vorum að toga um það bil 11-
12 mílur SA af Surtsey, þar sem
snardýpkar og er mikið gjáasvæði.
Komu þar upp bobbingar, sem
virtust hafa lent í miklum hita, litu
út eins og brunnir en hafa ekki lek-
ið til eins og við bráðnun. “ Það skal
tekið fram að um var að ræða
bobbinga á vörpu þeirra skipverja
á Vestmannaey, en ekki bobbinga
sem legið höfðu á botni.
Guðmundur Sigvaldason sagði
að jafnvel þótt þarna væri um neð-
ansjávargos að ræða væri afar hæp-
ið að það næði uppá yfirborðið, þar
sem þarna er 300 m dýpi. Þá benti
hann líka á að þetta svæði væri utan
við sprungusvæðið á þessum slóð-
um, þannig að allt væri þetta held-
ur dularfullt en full ástæða til að
skoða málið nánar og fylgjast vel
með því sem kynni að gerast.
-S.dór
Herlögreglan á Vellinum aðsópsmikil vegna nauðgunarkœru:
Starfsmenn Aðalverktaka
í nauðgunarábendingu
,JÞað hefur verið farið víða og
leiddir fyrir konuna allmargir
menn“, sagði Þorgeir Þorgeirsson
lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli
í samtali við Þjóðviljann í gær.
Umfangsmikil rannsókn og leit
að meintum nauðgara hefur farið
fram á Keflavíkurflugvelli síðustu
daga, eftir að bandarísk kona bú-
sett á Vellinum kærði ungan ó-
kunnan mann fyrir nauðgun. Kon-
an segir manninn hafa talað ensku
með útlendum hreim og hefur ver-
ið teiknuð mynd af manni eftir lýs-
ingu konunnar og birt í hersjón-
varpinu.
Áð sögn Þorgeirs hafa tugir
manna verið teknir í yfirheyrslu
stór hluti þeirra íslenskir starfs-
menn á Vellinum. Þá hefur verið
farið með konuna víða í óbeinar
sakbendingar og sl. þriðjudag fóru
tveir bandarískir herlögreglumenn
með hana í mötuneyti Aðal-
verktaka í hádeginu þar sem starfs-
menn voru mældir út, en um 500
íslendingar voru þá í mötuneytinu.
Þjóðviljinn hefur fregnað að
mikill urgur sér í íslendingum sem
starfa á Vellinum vegna þeirra
rannsóknaraðferða sem beitt er við
leitina að hinum meinta nauðgara
telja sig niðurlægða af lögreglu
einkum bandarísku herlögregl
unni. Segja menn að munur sé en
þegar íslenskar stúlkur hafa kært
bandaríska hermenn fyrir nauðgun
á Vellinum.
Ath. hefst á mánudag
Þ
J
O
Ð
L
E
G
U
R
F
R
Ó
Ð
L
E
I
K
U
R
HANDBÆKUR — LJOÐABÆKUR — ISLENSKAR SKALDSOGUR — PLOTUR
M
Y
N
D
L
I
S
T
A
R
B
Æ
K
U
R
BOKAMARKAÐUR
í Bókabúö
Máls og menningar
Þúsundir íslenskra
og erlendra öndvegisbóka
á lágu tilboösverði
ERLENDAR SKALDSOGUR — MATREIÐSLU BÆKUR — BARNABÆKUR