Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 3. - 4. mars 1984 Fyrsta ástin er óviðjafnanlega töfrandi sökum fákœnsku sinn- ar. Charles Nodier „Þar sem Ijósið lífi glœðist“ Legsteinn Sigurðar Breiðfjörös í kirkjugarð- inum við Suðurgötu í Reykjavík Sigurður Breiðfjörð er þekktastur allra rímnaskálda fyrr og síðar. Sumir kaflar úr Númarímum eru með því besta sem ort hefur verið í rímnagerð. Hér er brot úr mansöng 3. rímu og einnig upphaf rímunnar sjálfrar. Móðurjörð hvar maður fœðist, mun hún eigi flestum kœr, þar sem Ijósið lífi glœðist og lítil sköpun þroska nœr? I fleiri lönd þó fengi drengir forlaganna vaðið sjó, hugurinn þangað þrengist lengi, er þeirra fögur æskan bjó. Mundi’ ég eigi minnast hinna móðurjarðar tinda há; og kœrra heim til kynna minna komast hugar flugi á? Jú, ég minnist, fóstra forna, á fjöllin keiku sem þú ber, í kjöltu þinni kveld og morgna kvikur leikur muni sér. Um þína prýði’ að þenkja og tala, það er tíðast gleðin mín; í högum fríðu hlýrra dala hjörð um skríður brjóstin þín. Smala hlýðinn hjarðar fjöldinn heim að líður stekkjunum, þar ég síð á sumarkvöldin sat í víðibrekkunum. „Ég byrjaði með munkunum á Munkaþverá, fórsvotil Víga-Glúmsí Myrkárdal og svo reyndi ég í tvö ár að búa á Myrká og kynntist þá djáknanum vel. En ég átti lítið, flosnaði upþ og fluttist á mölina". Sá sem þetta mælir er Steingrímur Eggertsson verkamaður á Akureyri. Við sáum hann fyrir tilviljun þar sem hann stóð fyrirutan „BarberShop" í Hafnarstrætinu og beið eftir því að rakarinn kæmi úr mat. Okkurfannst þessi silfurhærði öldungur svo myndrænn þar sem hann stóð upp á háum trétröppum við rakarastofuna að Ijósmyndarinn fórað smella og svo ávörpuðum við hann og Steingrímur lékáalsoddi. Hannsagðistverða83 ára gamall daginn eftir og ætla að láta snyrta sig svolítið. Við kynntum okkur sem blaðasnápa úr Reykjavík. Svo spurði hann okkur f rá hvaða blaði við værum og þegar við sögðum honum það lyftist á honum brúnin. Steingrímur hefur verið áskrifandi að Þjóðviljanum frá upphafi eða í rúmlega 47 ár. - Og þú hefur verið verkamaður hér á Akureyri síðan þú flosnaðir upp frá Myrká? - Já, og svo var ég í 11 ár á Hótel KEA til að reyna að sjá um að menn hefðu nóg að drekka og til að bera út skítinn eftir þá. - Og ert kommi? Rætt við Steingrím Eggertsson verkamann á Akureyri fyrir utan „Barber Shop“ Steingrímur: Ég er óforbetranlegur asni en held fast við mína skoðun. Ljósm.: Atli. „Finnst nóg um íhaldsblámanrí' - Lífið skapaði mig þannig. Lífsins skóli kenndi mér að verða kommúnisti og ég held mig við það meðan ég veit af mér. Megnið af mínum gömiu félögum eru nú ýmist komnir suður til Reykjavíkur eða horfnir: minn elskulegi vinur Einar Olgeirsson, Steinþór Sigurðsson og Eiríkssysturnar og ótal fleiri. Eg þvælist hérna ennþá tilgangs- laust. Ég hlýt að fara að komast suður á Höfðann. Ég lenti eina viku um hátíðarnar á spítalanum hér - fínasta hóteli landsins - en fór ekki suður fyrir Búðargilið í þeirri atrennu. - Hvað finnst þér um Þjóðviljann? - Már finnst nú nóg um íhaldsblámann í auglýsingum blaðsins og það mætti minnka svolítið skammirnar á Rússa. Stundum finnst mér ekkert vanta nema zebraíhalds- línuna á kjölinn. Ég er óforbetranlegur asni en held fast við mína skoðun. Finnst ykkur ég ekki vera kjaftfor? Þegar ég var unglingur var ég hálfmállaus af stami og varð þá oft að hætta í miðjum klíðum. En það hefur elst af mér og nú er ég að reyna að vinna upp það sem ég gat ekki sagt áður. Ég hef engu að tapa en hér áður fyrr hafði ég miklu að tapa í atvinnulegu tilliti. Okkur var sagt að við fengjum ekki vinnu í frysti- húsi KEA nema við gengjum í Framsókn- arfélag Akureyrar. Við vorum fimm saman og við neyddumst allir til að ganga í félagið því að annars vorum við bara á Guði og gaddinum. Ég var nú samt svo djarfur að lýsa því yfir um leið og ég gekk í Framsókn- arfélagið að ég mundi aldrei greiða þeim atkvæði í lífinu. Hinir eru nú allir komnir suður í kirkjugarð. Betur að ég væri kominn til þeirra í stað þess að vera að rífa kjaft framan í bláókunnuga menn (Og nú skelli- hlær Steingrímur). Ég vona að þið skrifið ekki skammir um mig þó að ég sé orðhvat- ur. - Þú kynnir líklega frá ýmsu að segja ef þú skrifaðir ævisögu þína? - Meðan Norðurland var gefið út hérna skrifaði ég einar 8 ritgerðir í blaðið og þær Vilborg Harðardóttir og Kristín Ólafsdóttir vildu fá meira og meira rugl. Og þeir voru að skrúfa á mig Gísli Jónsson menntaskóla- kennari, Magnús Ásmundsson læknir og fleiri að ég skrifaði ævisögu mína. Gísli sagði við mig: Þú ert skeleggur. Við kveðjum nú þennan eldhressa gamla baráttumann því að hann ætlar að fara að láta klippa sig og hann segir að lokum: - Drottinn minn dýri! Þetta verður nút meiri ritgerðin sem þið skrifið um mig - ef ég verð ekki dauður. Fóstra, já, mér féll í lyndi, faðmi á að hvílast þín; byggði’ ég þá með œsku yndi ofursmáu húsin mín. Hljótt er allt í auðu landi, ungbörn smá og menn í kör eiga kalt í aumu standi, ekkjur þrá sín misstu kjör. Ei er hreinum; hjörðum settur hagi firrður blóma sá, á akrareinum arfi sprettur, enginn hirðir kornin smá. Harmaklœði höfuð byrgja, heyrast kvœðin sorga þrenn, feður og mæður syni syrgja, systur brœður og konur menn. Tjörnin í Reykjavík um aldamót. Miðbæjar- skólinnerkominn til nægri en ekki Fríkirkjan.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.