Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 15
Helgin 3. - 4. mars 1984ÍWÓÐVILJINN - SÍÐA15/ Kannski ættum við konur að sjá til þess að dætur ókkar fái fá önnuríeiktæki en tölvur? „Allt nýtt sent kemur fram hafa karlarnir í hendi sér - þar til búið er að gera störfin einhæfari. Þá eru þau fengin konum í hendur.“ Kenningar um konur og tækni Sveinbjörg hefur kynnt sér kenningar, sem konur hafa sett fram á sviði félagsvísinda um konur og tæknina. Konur eiga afar erfitt uppdráttar á hvers kyns tæknisvið- um og kemur þar tvennt til: And- staða karla og hefðbundin kyn- skipting starfa og áhugamála. Dæmi um þetta eru teiknimyndir af heimskum konum, sem sumum rit- stjórum (körlum) dagblaða finnst feikifyndnar. En teiknimyndirnar benda einmitt gjarnan á heimsku kvenna á tæknisviðinu. Þessu gríni fylgir nokkur alvara. Vegna andstöðunnar veigra konur sér við að fara út á svið, sem ekki eru álitin við þeirra „hæfi“. Þær konur sem það gera eru frávik frá hinu venjubundna og þær þurfa að vera feikilega sterkar, segir Sveinbjörg. Sá styrkur er ekki öllum gefinn. Aðrar konur, sem velt hafa fyrir sér kenningum um þetta, segja að konur ættu að láta sér fátt um finn- ast. Þær eigi að upphefja kvenna- störfin - ábendingar feminista skerpi aðeins muninn á milli karla og kvenna, að það sé óþarfi og raunar misskilningur. Konur gegni líka ábyrgðarmiklum störfum og við eigum að tala um þau - segja þessar konur. „Þetta er vel skiljanlegt og ég vil endilega að störf kvenna séu meira metin en þau eru núna, einnig af konum“, segir Sveinbjörg. „Þarna eigum við við að etja tvo hluti, sem við þurfum að breyta, en er mjög erfitt: Annars vegar að fá konur til að gera sig meira gildandi á tækni- sviðinu, og hins vegar að berjast fyrir því, að kvennastörfin verði meira metin en þau eru nú“. Að byrja nógu snemma Mismunandi afstaða kynjanna til tækninnar kemur fram þegar í bernsku. Stelpum eru fengnar dúkkur til að leika sér með og öll þeirra leikföng miða að því að innræta þeim viðhorf eins og um- hyggju, vernd, ástúð, þ.e.a.s. við- horf sem lúta að innra sálarlífi fólks. Strákarnir fá bíla, verkfæri og yfirleitt allt annað en stelpurnar fá. Þeirra innræting miðar að því sem er ytra með fólki - vinnunni. „Við þurfum að hefja markvissa innrætingu-meðal foreldra, á leik- skólum og í skólakerfinu“, segir Sveinbjörg. „Það verður að rjúfa þetta hefðbundna uppeldismunst- ur, því það steypir framtíð kvenna í svo mikla hættu“. Og Sveinbjörg segir: „Það hefur mikið áunnist í jafnréttismálum á síðustu árum - miklu meira en al- menningur gerir sér grein fyrir, þótt auðvitað höfum við ekki náð eins langt og við höfum vonað. All- ur þessi ávinningur er í hættu. Ef konur verja ekki sinn hlut og þá í gegnum vinnumarkaðinn, sé ég að- eins fram á hrörnun í jafnréttismál- um“. Að lokum má geta þess, að 17 prósent nemenda í tölvunarfræð- um við Háskóla íslands eru konur. Sveinbjörg segist hafa fundið afar fáar konur hjá tölvufyrirtækjum borgarinnar í öðrum störfum en við símavörslu og þess háttar. Engin kona kennir á tölvu í þeim einka- skólum sem Sveinbjörg athugaði. ast Öflugt skáklíf á Seltjarnarnesi Meistaramót hefst í dag Meistaramót Taflfélags Seltjarn- arness hefst í dag, laugardag, kl. 14.00. Tefldar verða 7 umferðir í tveimur riðlum, í A-riðli tefla tíu stigahæstu menn mótsins en í B- riðli verður teflt eftir Monrad og er riðillinn opinn öUum. í A-riðli verða vegleg peninga- verðlaun í boði fyrir þrjá efstu menn og í B-riðli fær sigurvegarinn 1.000 kr. í sinn hlut auk þess sem hann öðlast rétt til að tefla í A-riðli að ári liðnu. Einnig verða veitt peningaverðlaun fyrir fegurstu skákina. Teflt verður á laugardögum kl. 14.00, þriðjudögum kl. 19.30 og á fimmtudögum kl. 19.30. Teflt verður í Valhúsaskóla á Seltjarnar- nesi. Þeir sem ekki hafa látið skrá sig vinsamlegast mæti timanlega. Tilvalin tœkifœris gjöf Soda Stream tækið er tilvalin gjöf við öll tækifæri. Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. • • • Sól hf. Þverholti19, sími 91-26300 Umboðsmaður á Akureyri Heildverslun Valdimars Baldvinssonar s.f. Tryggvabraut 22, sími 96-21344. ■■ / s' s ■ FERMINGARBORÐ VEITINGAMANNSINS1984 Veislueldhús Veitingamannsins býður að venju glæsilegt en ódýrt fermingarborð Fyrir aðeins 390 kr. á mann bjóðum við: LÉTTSTEIKTAN NAUTAVÖÐVA FRAMREIDDAN með remúlaðisósu, spergilkáli og maískorni. GRILLSTEIKTA KJÚKLINGA með strákartöfium, rósakáli og gulrótum. REYKT GRÍSALÆRI með rauðkáli, grænum baunum og ananas. LAMBAKÓRÓNU FRAMREIDDA með blómkáli, hrásalati og rjómasósu. LAXARÖND skreytta m.a. með rækjum, eggjum, aspas ásamt chentillysósu. Þér er ekki sama hver matreiðir fyrir þig og gesti þína. Fyrsta flokks hráefni og margra ára reynsla Lárusar Loftssonar tryggir þér veislumatinn eins og þú vilt hafa hann. Allt kemur tilbúið beint á veisluborðið. Upplýsingar í síma 86880 eftir kl. 13.00 dag- lega, einnig á laugardögum. V VEISLUELDHÚS VEITINGAMANNSINS HF.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.