Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Blaðsíða 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3. - 4. mars 1984 íþróttir 1. deildarkeppni karla í handknattleik í brennidepli Breytinga eróskað! Tvö síðustu ár hefur verið keppt eftir nýju fyrirkomulagi í deildakeppni karla í handknattleik. Að lokinni hinni hefð- bundnu deildakeppni fer fram úrslitakeppni fjögurra efstu liða 1. deildar um meistaratitilinn en fjögur neðstu liðin leika úrslitakeppni um áframhaldandi sæti í deildinni. Það sama á sér stað í 2. deild og í efri hluta 3. deildar. Alls staðar taka liðin stigin úr forkeppninni með sér í úrsiitakeppnina, nema, þau fjögur sem leika um íslandsmeistaratitilinn. Þau byrja stiga- keppni upp á nýtt. Margir hafa orðið til að gagnrýna þetta fyrirkomulag og finna því flest til foráttu. Óumdeilanlegt er, að áhorfendum á leiki 1. deildar hefur snarfækkað, þ.e.a.s. á leiki í forkeppn- inni, enda reynast þeir margir hverjir afar marklitlir. Ekki bætir úr skák í vetur að strax um áramót var ijóst að tvö lið skáru sig nokkuð úr á botninum og þurfa þau á hálfgerðu kraftaverki að halda til að bjarga sér frá falli í úrslitakeppn- inni. Við leituðum álits ieikmanna, forráðamanna eða þjáifara úr öllum átta liðum 1. deildar á núverandi fyrirkomulagi og í Ijós kom að enginn þeirra er sáttur við það. Breytinga er óskað og sex liða úrvalsdeild með fjórfaldri umferð nýtur mestra vin- sælda. Svörin fara hér á eftir. _ „Erum að eyði- leggja allt með eigin klaufaskap íí „Fyrirkomulagið er vonlaust, keppnin um meistaratitilinn er bara mánaðarmót, annað skiptir ekki máii. I 7-8 mánuði af hand- boltavcrtíðinni hafa hvorki leik- menn né áhorfendur áhuga á hand- bolta, þetta er að drepa sig sjálft. Handknattleiksíþróttin er að koðna niður í höndunum á okkur, í handknattleiksforystunni erum við að eyðileggja allt með eigin klaufa- skap“, segir Ólafur Jónsson, leik- maður og stjórnarmaður í hand- knattleiksdeild Víkings. „Úrslitakeppnin sjálf er í lagi. Hún er erfið og reynir á leikmenn og félög. Forkeppnin er hins vegar að eyðileggja allt og mál númer eitt er að liðin taki stigin með sér úr henni í úrslitakeppnina, þannig að leikirnir um veturinn hafi ein- hverja þýðingu. Það mætti einnig hafa fyrirkomulagið þannig að lið- in fjögur sem fara í úrslitakeppnina taki með sér stigin úr innbyrðis leikjum þessara fjögurra liða. Varðandi hugmyndir um 6 liða deild þá er hægt að taka hana útúr umræðunni á þessu stigi. Hún yrði aldrei samþykkt, lakari lið 1. deildar og 2. deildarliðin legðust gegn slíkri tillögu og hún yrði kol- felld.“ Björn Pétursson „Engin spenna fram eftir vetri“ Ólafur Jónsson „Það var í raun sama hvert fyrir- komulagið er, besta liðið stendur uppi sem sigurvegari að lokum. Þá mótast afstaða manna í þessu máli eftir stöðu þeirra félaga í hvert skipti. En þegar litið er hlutlaust á málið er ljóst að engin spenna er í mótinu fram eftir vetri. Síðan fer fram hálfgert hraðmót í lokin á ein- um mánuði. Það mætti alveg eins snúa þessu við, leika forkeppnina sem hraðmót að haustinu og láta síðan úrslitakeppnina ná yflr nokk- urra mánaða tímabil,“ segir KR- ingurinn gamalkunni Björn Péturs- „Skásti kosturinn í dag er senni- lega úrvalsdeild sex liða þó hann sé ekki algóður. Númer tvö væri að hafa áfram átta liða deild en leika þrefaldaumferð, 21 leik'álið. Kerf- ið sem notað er í dag er meingallað, en ef stigin erulátin fylgja íúrslita- keppnina eins og gert er í fallbar- áttunni og neðri deildunum þá er ávallt hætta á að upp komi staða eins og í vetur þegar FH er með algera yfirburði. Íslíku tilfelliværi útslitakeppnin aðeins formsat- riði.“ Leggjum fram tillögu um sex liða deild CC „Alveg glatað“ „Fyrirkomulagið eins og það er í dag er alveg glatað og ég vil ekki fyrir nokkra muni að því verði haldið áfram“, sagði Ein- ar Sveinsson hjá handknatt- leiksdeild Þróttar. „Ég er hlynntur sex liða úr- slitadeild með fjórfaldri umferð þannig að hvert lið fái 20 leiki. Tvö neðstu liðin eiga að falla. Þá vil ég eindregið að aftur verði tekin upp sú niðurröðun að leiknir verði tveir 1. deildar- leikirkarla á kvöldi, ekki karla- og kvennaleikur saman eins og nú er gert.“ „Þessar „turneringar“ eru al- gjört píp, það er orðið alltof mikið af leikjum og áhorfendum fer stór- fækkandi. Þetta er ekki orðið neitt annað en peningaaustur fyrir fé- iögin og núverandi fyrirkomulag nánast útilokar landsbyggðarlið frá þátttöku“, segir Guðmundur Lárusson hjá handknattleiksdeild KA á Akureyri. „Ég er hlynntur því að gamla „Það er verið að drepa algerlega niður áhugann á handknattleik hér á landi með núverandi fyrirkomu- lagi“, scgir Geir Hallsteinsson þjálfari FH. „Á ársþinginu í vor munum við FH-ingar lcggja fram tillögu um að stofnuð verði úrvalsdeild með sex liðum og leikin fjórföld umferð. Það er nóg að leika 20 deildarleiki á keppnistímabilinu, að viðbættum bikar- og Evrópuleikjum. Ef þessi tillaga nær ekki fram að ganga þá höfum við aðra til vara; ef „Ef haldið verður áfram á þess- ari braut verður búið að leggja nið- ur íslenskan handknattleik innan lagið verði tekið upp, 14 leikir sem fari fram jafnt og þétt yfir veturinn. Það mætti síðan búa til aukakeppni í lokin fyrir efstu liðin, meistara- keppnisem þó væri óháðöllumtitl- um. Það er útí hött að nú hefur FH haft algera yfirburði í 1. deildinni í vetur en gæti haeglega misst af meistaratitlinum. Eg er á móti 6 liða deild, hún myndi algerlega kæfa utanbæj arfélögin; þau eiga leikið verði með sama fyrirkomu- lagi þá fylgi stigin úr forkeppninni með í úrslitakeppnina. Með því móti skiptir hver leikur reglulega máli og ekki leikið fyrir hálftómum húsum eins og þróunin hefur verið síðustu tvö ár. I ár segja menn sem svo, hvað hefði verið gaman að slíkri úrslitaképpni þegar FH er með 9 stiga forskot. Ég spyr, hvers vegna á að refsa liðum fyrir að ná slíkum árangri? Það verður að sýna sanngirni. Þá vil ég að reynt verði að skipu- leggja keppnina betur. Landsliðs- tveggja, þriggja ára. Tíu mánaða kcppnistímabil er alltof mikið, menn hætta að nenna að standa í vart nokkra möguleika á að komast í hóp þeirra sex efstu. Þá eru dómaramálin kapítuli útaf fyrir sig. Við þurfum að borga 5000 krónur fyrir dómara að sunn- an á hvern heimaleik en sunnanlið- in eru með leiðindi ef dómari af landsbyggðinni er settur á þeirra heimaleiki. Þarna verður að gera eins og í fótboltanum, leggja allar dómaragreiðslur í einn sjóð sem síðan deilist jafnt niður." þjálfari fái meiri ítök í skipulagn- ingu keppnistímabilsins og reynt verði að fá landsleiki á ákveðnum tímabilum. Forkeppnin verði klár- uð fyrir áramót og landsliðið æfi síðan í janúar, febrúar og mars en á meðan fari fram mót fyrir 1. deildarliðin þar sem þau leika án landsliðsmannanna. Varðandi bikarkeppnina legg ég til að þar verði leikið heima og heiman ef 20 leikja deildin verður samþykkt. Það eru ekki lengur nein vandræði með hús og jafn- framt fyndist mér réttlátt að leika þessu. Núna erum við t.d. að vinna okkur upp í þriðja skipti á keppnis- tímabilinu, þetta er útí hött hjá áhugamönnum“, segir Jón Pétur Jónsson, hinn leikreyndi leikmaður Vals. „Ég er hlynntur 6 liða deild sem keyrð er með jöfnum hraða allan veturinn. Það á að gera keppnina meira spennandi með því að láta Jón Pétur Jónsson Geir Hallstelnsson tvo úrslitaleiki í bikarkeppninni, heima og heiman.“ tvö neðstu liðin af þessum sex falla beint, þá verður endurnýjunin í deildinni mikil og ekki útséð um hverjirfalla löngu fyrir jól. Úrslita- keppnin eins og nú er getur verið ágæt sem slík en það er forkeppnin sem er útí hött. Þá finnst mér of mikil áhersla lögð á landsliðið og það þjónar engum tilgangi að gera 15-20 daga hlé á keppni hér heima vegna landsleikja við Frakkland og Sviss. Undirbúningurinn er alltof viða- mikill. þegar Danir urðu fjórðu í HM 1978 hittust leikmenn ekki fyrr en þremur vikur fyrir lokakeppn- ina. Við erum hvort sem er alltaf að rembast við að komast í hóp 6-12 bestu þjóða heims, árangurinn verður ekki meiri, hversu mikið sem æft er. Við erum ekki nema 240 þúsund manna þjóð, það verð- ur að taka tillit til þess. Deildakeppnin á að vera númer eitt, tvö og þrjú, gott landslið bygg- ist á góðri deild en ekki öfugt“. „ Þessar turneringar eru algjört píp “ „ Menn hætta að nenna þessu cc

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.