Þjóðviljinn - 03.03.1984, Page 30
30 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN: Helgin 3. - 4. mars 1984
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miöstjóm Alþýöubandalagsins er boðuö til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl. 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins veröa m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum:
Góðir félagar - Hreppsmálaráð
Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum
verða sem hér segir fram á vor:
Mánudagur 5. mars. Umræðuefni: Umhverfismál.
Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staða mála, Dagheimili og Safna-
stofnun.
Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál.
Mánudagur 16. apríl. Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og
sameiningarmál.
Fundirnir verða haldnir að Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30
stundvíslega.
Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt
skína. -Stjórnin.
Alþýðubandalagið Akranesi
Bæjarmálaráð
Alþýðubandalagið á Akranesi heldur bæjarmála-
ráðsfund mánudaginn 5. mars kl. 20.30 í Rein.
Fundarefni:
1) Fjárhagsáætlun 1984.
2) Önnur mál.
Stjórnin
Almennur félagsfundur - Keflavík
Almennur félagsfundur verður haldinn í Stangveiðihúsinu við Suður-
götu, mánudaginn 5. mars kl. 20.30. Dagskrá 1) Erindi miðstjórnar.
2) Önnur mál. Gestir fundarins verða frá Æskulyðsfylkingu Alþýðu-
bandalagsins. Auk þess lítur Úlfar Þormóðsson við. Allir velkomnir. -
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Spilakvöld
Þriðjudaginn 6. mars verður síðasta kvöldið í
þriggja kvöldaspilakeppni að Hverfisgötu 105, og
hefst kl. 20 stundvíslega.
Þeir sem ekki hafa haft tök á að koma á fyrri
kvöldin eru velkomnir, því veitt eru verðlaun fyrir
hvert keppniskvöld.
Skúli Alexandersson, alþingismaður, kemur í kaff-
ihléi og spjallar við mannskapinn. - Nefndin.
Skúlj
Alþýðubandalagið:
Stjórn LAL og annað
áhugafólk um landbúnað;
(tengslum við miðstjórnarfund sætum við lagi og hittumst á Hverfis-
götu 105, sunnudaginn 4. mars kl.10 árdegis. -Stjórnin.
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágr.
Viðtalstími Garðars Sigurðssonarverður n.k. laugardag kl. 15.00 að
Kirkjuvegi 7, Selfossi. -Stjórnin
Alþýðubandalagið
Austur-Skaftafellssýslu
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsins í A-Skaftafellssýslu verður haldinn
laugardaginn 3. mars kl. 14.00 í húsi Slysavarnafélagsins á Höfn í
Hornafirði.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar fjölmennið. stjornin
Vinsamiega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Valþór eða Álfheiði. Ritstj.
Æskulýðsfyíking Alþýðubandalagsins
Fræðslufundur um Kúbu
Fyrirhugað er að halda fræðslufund um Kúbu 15. mars nk. að Hverfis-
götu 105 Reykjavík. Nánar auglýst síðar. - Æskulýðsfylking AB.
Öllum þeim sem urðu til að auka gleði mína á
afmælisdaginn sendi ég bláu geislana mína.
Ási í Bæ.
Sœludagarnir
í Breiðholti_____________
Yfir 1000
manns
voru með
- Sæludögum Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti lauk í gær-
kveldi með meiriháttar
skemmtikvöldi. „Þetta hefur tekist
alveg stórkostlega og það er mál
manna að þetta séu bestu sæludag-
ar frá upphafi“, sagði Jóhann Hlíð-
ar Harðarson formaður Nemend-
afélagsins í viðtali við Þjóðviljann í
gær.
- Yfir þúsund manns hafa verið
með af miklum áhuga, en þetta er
fjölmennasti skólinn í landinu.
Kennarar hafa og sýnt mikinn
áhuga á þessu starfi okkar og marg-
ir fleiri hafa Iagt hönd á plóginn og
heimsótt okkur.
- Yfir þrjátíu verkefni voru í
gangi sem nemendur völdu sér.
Þannig má nefna sem dæmi kynn-
ingu á námi eftir að fjölbrauta-
skólanámi lýkur, skreytingu
skólans, tölvukynningu, eiturlyf og
ýmislegt fleira. Hér hef ég aðeins
drepið á örfá atriði en þessa viku
hefur verið iðandi líf í skólanum,
hæfileg blanda mötunar og virkni,
sagði Jóhann Hlíðar að lokum. Á þönum. Halldór Hlíðar Harðarson formaður Nemendafélagsins hefur
-óg átt annasama daga. (Ljósm. — Atli).
Snj óflóðavarnir
Hjörleifur Guttormsson spyr fél- efla varnir gegn snjóflóðum í sam- frá 4. júlí 1983 til 22. febrúar 1984
agsmálaráðherra um snjóflóða- ræmi við ályktun Alþingis frá 2. þegar snjóflóð féllu í Ólafsvík?
varnir: apríl 1981,varlögðniður4. júlísl.? 3. Hvað er fyrirhugað af
2. Hvað var gert varðandi stjórnvöldum um framtíð þessara
1. Hvaða ástæður voru til þess snjóflóðavarnir á vegum fél- mála?
að nefnd, sem átti forystu um að agsmálaráðuneytisins á tímabilinu -mhg
Góður afli í Eyjum
Nú er farið að bera á þorski í afla urinn. Einnig hafa trollbátar
Vestmannaeyjabáta. Áður var fengið mjög góðan ýsuafla eða um
aflinn mjög ufsaborinn, en þeir 10-20 tonn í hali.
sem best þekkja til segja að fyrst
komi ufsinn, síðan komi þorsk- Magnús frá Hafnarnesi.
Kavíar úr
loðnu-
hrognum
Hrognataka úr loðnunni er
hafin. Það eru Japanir sem
kaupa hrognin og eru mjög
vandfýsnir á að allt sé í lagi;
engar málningarflögur í lestum
bátanna enda á að framleiða
kavíar úr hrognunum austur
þar.
Magnús frá Hafnarnesi
Verkalýðsfélagið á Höfn
Andstaða gegn
samningunum
Ákveðið að krefjast viðrœðna um betri samning
Á fundi Verkalýðsfélagsins
Jökuls á Höfn í Hornafirði í fyrra-
kvöld var ákveðið að taka ekki
afstöðu til samninga ASI og VSI
en leita þess í stað eftir viðræðum
við atvinnurekendur á Höfn um
endurbætur á samkomulaginu.
Sigurður Hannesson formaður
Jökuls sagði að þessi afgreiðsla
hefði farið fram einróma og að
mikil óánægja hefði jafnframt
komið fram með heildarsamn-
inga ASÍ og atvinnurekenda.
Sérstaklega hefðu fundarmenn
lýst andstöðu við ákvæðið um
skerðingu á kaupi unglinga á
aldrinum 16-18 ára. Sigurður
bjóst við að viðræður við atvinnu-
rekendur á Höfn gætu hafist fljót-
lega eftir helgina.
-v.