Þjóðviljinn - 03.03.1984, Qupperneq 32

Þjóðviljinn - 03.03.1984, Qupperneq 32
DJOÐVIUINN Helgin 3. - 4. mars 1984 Fjármálaráðherra skipar nefnd til að rannsaka fjárlögin: Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er haegt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiöslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt-öll kvöld. 81333 81348 81663 1700 MILJÓNA GAT? „Vandinn er meiri en ég gerði ráð fyrir“ Þjóðviljinn hefur fyrir því öruggar heimild- ir að á fundi sínum með „Hulduhernum“ á Hótel Sögu í fyrradag hafi Albert Guðmundsson sagt að í fjárlögum ársins 1984 væri gat uppá 1,7 miljarða króna, sem er ekkert smáræði. Fjárlögin eru uppá rúma 14 miljarða króna. Þjóðviljinn innti Albert eftir þessu í gær. Hann vildi ekki staðfesta töluna, „maður skal alltaf fara varlega með tölur“, sagði fjármála- ráðherra. Síðan sagði hann: „Um árabil hafa aukafjárveitingar tíðkast, sem sett hafa fjárlög úr skorðum. Þetta er að mínum dómi lögleysa. Þess vegna setti ég á stofn nefnd hæfustu embættismanna og fjár- veitinganefndarmanna líka til að fá það fram hvort fjárlögin fyrir árið 1984 eru raunhæf eða ekki. Þetta hefur ekki verið gert áður.“ Hvað hefur þessi rannsókn leitt í ljós? „Það hefur komið í ljós að það er meiri vandi við að glíma en ég gerði ráð fyrir við gerð fjárlaga. Hve mikill hann er vil ég ekki tala um á þessari stundu og tölur skulum við fara varlega með.“ S.dór Albert um sérstakan þing- flokksfund Sjálfstœðismanna: SMAMAL Ég skil ekki þetta fjaðrafok út af jafn litlu og samrœmingu á launatöxtum Atlaga Sjálfstæðisflokksins að Albert Guðmundssyni, vegna þess að hann samræmdi kjör Dagsbrúnarmanna og BSRB-manna sem vinna sömu störf, hélt áfram í gær. Þá var óvænt boðaður þingflokksfundur hjá Sjálfstæðis- flokknum til að ræða mál Alberts. Þjóðviljinn spurði Albert Guðmunds- son að því hvort hann ætti von á vond- um móttökum þegar hann mætti þar? „Ég geri ekki ráð fyrir því. Ég skil ekki hvers vegna það ætti að vera.“ Nú hefur Þorsteinn Pálsson sagt þetta al- varlegt mál sem verði tekið föstum tökum. Óttastu ekki átök? „Nei, annars verð ég bara að bíða og sj á. “ Þú kvíðir þá ekkert fyrir þingflokksfund- inum? „Nei, nei, þetta er smámál. Ég geng til þessa fundar eins og allra annarra þing- flokksfunda. Ég tel ekki að ég sé að leggja út í neina orustu.“ Nú hætti Steingrímur Hermannsson við að halda ríkisstjórnarfund í morgun, þar sem ræða átti þetta mál. Ertu búinn að ræða við Steingrím síðan hann kom heim? „Já, við ræddum saman í dag og fór vel á með okkur.“ Hann hefur ekkert verið vondur við þig? „Hann Steingrímur? Nei, ekki aldeilis. Við ræddum bara málin í rólegheitum. Ég skil bara ekki þetta fjaðrafok út af jafn sjálfsögðu máli og samræmingu þessara taxta. Ósk um þessa samræmingu hefur legið á borði fjármálaráðherra í mörg ár. Það er svo ég sem framkvæmi þessa leiðréttingu, kannski vegna þess að ég skil málið betur en fyrirrennarar mínir.“ Þú hcfur haft um það stór orð að segja af þér ef fjárlagaramminn yrði sprengdur, þá myndir þú segja af þér. Hefur ramminn verið sprengdur? „Þessi samningur sem gerður var við ríkisstjórnina meðan ég var utan lands á ekki að sprengja rammann heldur er um að ræða fjármagns tilfærslur innan hans. Þeir sem gerðu þennan samning segja þetta og þetta var það sem beið mín þegar ég kom heim. Ég á eftir að sjá hvernig þetta er hægt, fyrr get ég ekki sagt að fjárlagaramm- inn sé sprunginn.“ Síðustu fréttir: Þorsteinn gefst upp / ályktun sem þingflokkur Sjálfstœðis- flokksins sendifrá sér að loknum fundi sín- um um kvöldmatarleytið í gœr var sérkjara- samningur Dagsbrúnar við fjármálaráð- herra harmaður en engar ákvarðanir teknar um aðgerðir gegn Albert. Þorsteinn Pálsson formaður flokksins sagði í útvarpsfréttum í gœr að þarmeð vœri málinu lokið innan Sjálfstœðisflokksins og eining komin á - enn einu sinni. „Komdu, við þurfum að ræðast við“, sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins þegar hann kom stormandi útúr þingflokksherbergi flokksins og tók í arm Alberts Guðmundssonar sem var að mæta á fundinn. Síðan hurfu þeir uppá efri hæð þinghússins tveir einir en þingmenn flokks- ins biðu á meðan. (Mynd: Atli). Búvöruverðshœkkunin 1. mars étur upp Fjórðung kauphækkunarinnar Enda þótt stutt sé um liðið síðan aðil- ar vinnumarkaðarins sömdu um 5% al- menna launahækkun í landinu hefur hún þegar rýrnað um 26-28%. Búvöru- verðshækkunin sem ákveðin var á fundi sexmannanefndarinnar í fyrra- dag hefur þessar afleiðingar í för með sér. Verðlagsgrundvöllur landbúnaðar- vara hækkaði um 6.039% en hann var síðast endurskoðaður í október á síð- asta ári. Stærstur hluti hækkunarinnar nú felst í 5.7% hækkun á launum bænda en auk þess vegur 7.9% hækkun á kjarnfóðri allmikið. Þá kemur 2.92% hækkun á verðlagsgrundvellinum, sem var ákveðin 1. október sl., út í verð- lagið nú, en henni var á sínum tíma frestað með niðurgreiðslum. Lítrinn af mjólk í fernum kostar nú 18.90 kr. í smásölu, kíióið af smjöri kostar 219.50 kr., 45% ostur kostar 189.90 kr. hvert kíló. Dilkakjöt í heilum eða hálfum skrokkum kostar eftir hækkunina 123.05 kr. kílóið en kostaði 116.45 kr. fyrir hækkun. Þess má geta að hækkun búvara er nokkuð meiri en sem nemur hækkun- inni til bænda vegna þess að niður- greiðslur lækka hlutfallslega nú. -v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.