Þjóðviljinn - 07.03.1984, Side 1
UOBVIUINN
„Þad a að stiga
skrefið til fulls
og stokkaupp
keppnisfyrir-
komulagið í
handboltanum,*'
segir stjórnar-
maður HSÍ
Siáll
Nýtt stórgat kemur í Ijós:
mars
miðvikudagur
49. árgangur
56. tbl.
900 miljónir króna
vantar í húsnæðismálin
Viðbót við fjárlagagatið
Engin lán útborguð í haust
Komið hefur í ljós að 900 miljónir króna
vantar í húsnæðislánakerfi ríkisins. Þetta er
um helmingur þess fjár sem áætlað var að lána
til húsnæðismála í ár. Blasir nú við að engum
húsnæðislánum verður úthlutað á síðari helm-
ing ársins ef þetta nýja stórgat í fjármálakerfi
ríkisins verður áfram óbreytt. Þetta 900 milj-
óna stórgat í húsnæðiskerfinu kemur til við-
bótar stóra gatinu í fjárlögum ríkisins sem fjár-
máiaráðherra kunngerði á mánudag. Samtals
nema þessi tvö stórgöt rúmlega þremur
milljörðum króna.
Sem kunnugt er var gerð sérstök fjáröflun í
haust er leið í formi sölu ríkisskuldabréfa til að
afla fjár til húsnæðismálalána kerfisins. Hún
mistókst og þar standa því eftir 200 miljónir
króna.
Gert var ráð fyrir að atvinnuleysistrygginga-
sjóður legði til 115 miljónir. Hann gat ekkert
lagt fram í fyrra og enn síður á þessu ári. Miklu
frekar að til hans vanti lausafé. Þessi upphæð
er því úr sögunni.
Gert var ráð fyrir 525 miljónum króna frá
lífeyrissjóðunum og er það 97% hækkun frá
fyrra ári. Á sama tíma hafa ráðstöfunartekjur
lífeyrissjóðanna aðeins hækkað um 6.7%. Það
er því borin von að lífeyrissjóðirnir geti lagt
fram meira en 400 miljónir króna og eftir
standa þá 125 miljónir kr.
Þá segir ríkisstjórnin að vanti að auki 269
miljónir króna uppá þá fjárhagsáætlun, sem
gerð var fyrir húsnæðismálakerfið. Þetta eru
samtals 709 miljónir króna sem vantar í Bygg-
ingasjóð ríkisins.
Þá er alveg eftir það sem vantar í Bygginga-
sjóð verkamannabústaða. Þar er um að ræða
sjóð sem átti að fá 575 miljónir króna á þessu
ári en aðeins eru til 406 miljónir kr. í hann. Þar
að auki mun hann skerðast um 20 til 30 miljón-
ir vegna ofætlana á getu lífeyrissjóðanna. Of-
aná bætist 60 miljón kr. yfirdráttur í Seðla-
bankanum um sl. áramót sem ekki hefur gerst
sl. ár.
Það er því ljóst að húsnæðiskerfið vantar
nærri 900 miljónir króna á þessu ári til að geta
annað lánaumsóknum og uppfyllt þá áætlun
um húsnæðismálalán sem gert var ráð fyrir.
-S.dór
„Þakka ykkur fyrir“, sagði Albert Guðmundsson fjármálaráðherra þegar Þjóðviljinn afhenti honum eintak af „Gatafjárlögum" hans í
alþingishúsinu í gær. Eins og sjá má eru götin bæði mörg og af ýmsum stærðum og sífellt fleiri göt koma í Ijós þegar betur er að gáð.
„Það er gaman að þessu. Segiði svo að menn hafi ekki humor“, sagði Albert. Hann tók „Gatafjárlögin" með sér á kaffistofu þingsins en á
morgun mun hann gera Alþingi grein fyrir stærð og gerð gatanna. - lg. Mynd-Atli.
Tímamót á Húsavík:
Nýir samningar
• Unglingataxtinn út
• Hœrri lágmarkslaun
• Hœrri viðmiðun
Enginn unglingataxti, engin viðmiðun undir
lágmarkslaunum auk þess sem stærstu vinnu-
staðirnir skrifuðu undir samning um hærri lág-
markslaun. Þannig var samningurinn sem
verkalýðsfélagið á Húsavík gerði við atvinnu-
rekendur á staðnum og samþykkti á fundi sínum
í gær.
Verkalýðsfélagið á Húsavík frestaði afgreiðslu á
heildarsamkomulagi ASI og VSÍ og freistaði þess í
stað að ná nýjum samningi við atvinnurekendur í
bænum.
Stærstu atvinnurekendurnir: kaupfélagið, bærinn
og frystihúsið, auk annarra smærri atvinnurekenda
féllust á að taka unglingataxtann út úr samningnum.
Enn fremur að viðmiðun yfirvinnu og álags yrði mið-
uð við lágmarksiaun í stað taxta þar fyrir neðan.
Auk þess samþykktu þrír stærstu atvinnurekend-
urnirað lágmarkslaun yrðu 13. taxti 1 með 12% álagi
eða 12.816 krónur. Á fundi verkalýðsfélagsins í gær
var samningurinn samþykktur með 39 atkvæðum. 10
greiddu atkvæði á móti þeim og 11 sátu hjá.
-óg
Idagfrumsýna
Þjóðleikhúsið og
íslenski dans-
flokkurinn ball-
cttinn Ösku-
busku.
Verkafólk
í Eyjum:
Beitti
„hæga-
gangsað-
ferðinni“
Sjá
viðtöl
bls.