Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 24.-25. mars 1984 >rAð elska er að fegra - að fegra er að elska. “ Anatole France. Guðmundur G. Hagalín. „Brosi ég og brosi“ Guömundur G. Hagalín er fyrst og fremst þekktur fyrir skáldsögur sínar og sagnabálka, ævisögu sína og ann- arra. En hann fékkst, einkum á yngri árum, við ljóðagerð og fyrir nokkrum árum gaf Almenna bókafélagið út ljóð- abókina Pá var ég ungur og skrifaði Tómas Guðmundsson formála. Við skulum líta á sýnishorn úr þessari bók. Regn Droparnir falla ú foldu, foldina snœvi hulda, foldina mína fögru, foldina elds og kulda. Leitast þeir við að leysa landið úr fjötrum mjalla, en seint gengur það, því sólin sefur að buki fjalla. Hulda, 1918. Brosi ég - Brosi ég og brosi, - bieik er mín kinn. - Á gœgjum er nóttin við gluggann minn. Brosi ég og brosi, brosi uð sjúlfum mér: ég leita þess og leita þess, sem löngu horfið er. Brosi ég og brosi blœðir mér inn - úr undinni, sem heltekur huga minn. Anna Sigurðardóttir er að vinna að sögu um nunnur á íslandi til siöa- skipta. „Klaustrin voru kvennaathvörf“ 234. [1543J. IkfcF Gizurar biskups til Hatdóru abbadisar' iTvírkjúLæ um hald á konu Bergs Ingimundarsonar. AM. 232. 8to bl. 60». Bréfabók Gizuror biskups I frumrili (LXXIX). AM. 266. Fol. bls. 37 —38. Bréfabók Gizurar biskups i afskript sira Haldórs i itojrkbolti 1654—57. Klausan um kuinnu Bergs j brefi abbadisar. Kiœra systir. heyri ec ad kuinna bergs jngemundarson- ar skuli dualizt hafa og enn uera þar hia ydur. £nn fyrirT þann skulld ad Jiad er ecki skiluadar sauk uid liennar mann. epter gudz laugum og landz þott liann ueiti henni. ouistum. med slaugum og audru illu. þa er þad minn fullkomligur uilie og radlagning ad þier halldit hana ecki leingur hia yd- ur. helidur ad þier siaid til suo hun komiz't aptur hingad úí sudursueitirnar. Verda þa einhuerier til ad leggia honum gott til. þess betra inul sem hun hefur til handa ad bera. annars (kann) hier uerda meira mal ut af. Enn eg uil yd- ur giarnan hid beztu til leggia. og þad eitt rad ieggia. sem ec ueit ad bezt muni gegna. Takid ydur J.ui ecki til ouilia þetta mitt skrif Jiui j iiuerh mata nd eg kann ad uera yd- ur tii goda skuli Jn'er mic ueluiliadafi lil finna. bis 'jmucis commendo uos omnipotenti dco. 1) Ilér kynm nð vi-rn Atl við slrn Eystrin l'nrJnrson, sein bnrn °'>i lieitmey Gizurnr biskups. Bréfiö frá Gissuri biskupi til abbadísarinnar í Kirkjubæjarklaustri. Anna Sigurðardótt- ir umsjónarmaöur Kvennasögusafnsins í viðtali við Þjóðvilj- ann: Anna Sigurðardóttir hefur verið að safna saman efni um íslenskar nunnur frá 1186 til 1550. Hún er manna fróðust um fjölda kvenna í klaustrum á íslandi og lifnaðarhætti þeirra. Við leituðum til hennar í framhaldi af heimsókn okkar til Karmelsystra sem sagt er frá í opnu blaðsinsídag. Á kaþólskum tíma voru fjölmörg klaustur á íslandi og þar af voru tvö nunn- uklaustur. Þau voru bæði af Benedikts- reglu, klaustrið í Kirkjubæ á Síðu, stofnað 1186 og að Stað í Reynisnesi í Skagafirði, stofnað 1295. Ég hef ekki orðið vör við fleiri nunnur en 14 í klaustrunum, segir Anna. Ég hef heim- ild um það að árið 1403, manndauðaárið mikla (Svartidauði) dóu 8 nunnur en 6 lifðu í Kirkjubæ. Þá hafa því verið 14 nunnur þar. Við siðaskiptin var þeim farið að fækka en fengu að vera í klaustrinu til æviloka. Trúlegt er að klaustrin hafi verið nokkurs konar kvennaathvarf þeirra tíma. Fáar heimildir eru til um það en bréf hef ég sem Gissur biskup (fyrsti lútherski biskupinn) skrifaði abbadísinni í Klaustri Halldóru Sig- valdadóttur föðursystur sinni. Þar skipar hann abbadísinni að láta konu nokkra lausa úr klaustrinu, vegna þess að „það er ekki skilnaðarsök við hennar mann þótt hann veiti henni óvistum með slögum og öðru illu“. Anna þekkti eina af Karmelsystrunum sem fóru til Hollands í fyrra. Það var systir Ólöf, sem hét Anne C. Kersbergen en Anna Hauksdóttir var hennar íslenska nafn. Sú skrifaði doktorsritgerð um Njálu en hún varð kaþólsk og gekk í klaustur. Karmelreglan er mjög ströng regla en slakað var á kröfunum hin síðari ár. Þegar ég talaði við systur Ólöfu fyrir fáum árum sagði hún mér að þær hefðu fengið leyfi til að tala við gesti sína undir fjögur augu. Áður máttu þær ekki tala við fólk nema í viðurvist hinna. Ég veit líka af því að Hall- dóra B. Björnsson, sem hafði kynnst systur Ólöfu á sjötta áratugnum, varð að tala við hana í gegnum rimla. í 19. júní árið 1956 var grein eftir Karm- elsystur. Heitir hún Bænagerð í Karmel- klaustri. Þar segja nunnurnar frá daglegu lífi sínu og m.a. geta þær þess að eftir messu sé heilagur Þorlákur Skálholtsbiskup ákall- aður landinu og þjóðinni til liðs. Anna hefur lesið ýmsar bækur til að afla fróðleiksmola í sögu nunna á íslandi. í heimildaskáldsögu eftir kaþólska konu segir abbadísin við nunnurnar þegar hún er að undirbúa undir síðustu vígslu: „Það er ekki auðvelt að vera nunna. Það er líf fórna og sjálfsafneitunar og gagnstætt náttú- runni. Fátækt, skírlífi og hlýðni, það erekki auðvelt". —jn Ef úst þína flyturðu ú eyðisker, þú muntu geta brosað, - brosað með mér! Fréttir, 5. júní 1918. Staka Pó að vetur klakuklóm kreisti blöð ú meiðum, verður alltaf eitthvert blóm eftir ú þínum leiðum. Blindsker, 1921. Brosi ég og brosi, bleik er mín kinn, en nóttin - hún grcetur við gluggann minn. Reykjavíkurhöfn á fyrri hluta aldarinnar. Bær- inn til vinstri mun vera Sölvhóll en hann var upphaf lega hjáleiga frá Arnarhóli. Þessi bær var reistur árið 1834 af Jóni Snorrasyni frá Engey sem átti sæti í fyrstu bæjarstjórn Reykjavík- ur 1836-1846 semfull- trúitómthúsmanna. Hann stóð fyrir austan Sambandshúsið og var rifínn uppúr 1930.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.