Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 27
Helgin 24.-25. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Tveir nýir bankastjórar að Útvegsbankanum Jónas Rafnar stóð upp fyrir Lárusi Jónssyni Bankaráð Útvegsbanka ís- lands ákvað á fundi sínum í gær að ráða tvo nýja bankastjóra, þá Lárus Jónsson formann fjár- veitingarnefndar Alþingis og Ólaf Helgason aðstoðarbanka- stjóra Utvegsbankans. Nýju bankastjórarnir taka til starfa 1. júní í sumar og koma í stað Ár- manns Jakobssonar og Jónas- ar G. Rafnar. Auk þeirra Lárus- ar og Ólafs verður Halldór Guð- bjarnarson áfram bankastjóri og Reynir Jónasson aðstoðar- bankastjóri. Guömundur Karlssön formaður bankaráðs Útvegsbankans sagði í samtali við Þjóðviljann í gær að of- angreindar breytingar á manna- haldi í bankanum hefðu ekki verið lengi á döfinni. Sérstaka athygli vekur að Jónas Rafnar skuli segja upp starfi sínu þar sem hann er að- eins 63 ára gamall og hefðir fyrir því innan bankakerfisins að banka- stjórar gegni störfum allt fram að sjötugu. Eins og greint var frá í fjölmiðl- um mistókst formanni Sjálfstæðis- flokksins að tryggja Lárusi Bankaráð Útvegsbanka íslands við upphaf fundar i gær þar sem þeir Jónas Rafnar og Ármann Jakobsson sögðu upp störfum en Lárus Jónsson og Ólafur Helgason voru ráðnir í staðinn. Ljósm. eik. Jónssyni bankastjórastöðu í Bún- aðarbankanum í síðasta mánuði. Jónas Rafnar er tengdafaðir Þor- steins Pálssonar formanns flokks- ins og telja menn að með því að standa upp úr stól sínum nú bjargi hann heiðri tengdasonarins sem þar með hefur orðið við kröfu flokksins um að útvega Lárusi bankastjórastöðu. Lárus Jónsson hefur verið þing- maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra frá árinu 1971 en varaþingmaður frá 1963. Jónas Rafnar var áður þing- maður sama kjördæmis. Frá því núverandi ríkisstjórn tók við hefur Lárus verið formaður fjárveiting- arnefndar Alþingis. Ólafur Helgason hefur starfað í Útvegsbankanum um langt árabil, síðast sem aðstoðarbankastjóri. Hann var m.a. útibússtjóri í Vestmannaeyjum um nokkurra ára skeið og hafði m.a. með mál- efni útibúanna að gera eftir að hann fluttist til Reykjavíkur. - v. 9 bæjarstarfsmannafélög hafa samið Enginn unglinga- taxti í Kópavogi í nýjum kjarasamningi ;em Starfs- mannafélag Kópavogskaups aðar hefur gert við launanefnd sveitart laga er sú breyting gerð frá almennu samningun- um að hinn sk. unglingataxti er ekki tekinn inn. Var samin sérstök bókun þar sem m.a. segir að þar sem enginn starfsmaður kaupstaðarins er undir 8. launaflokki sé ekki ástæða til að hafa unglingataxtann inni í samningnum. Hins vegar kemur þessi breyting til góða þeim sem gegna afleysingastörfum hjá Kópavogskaupstað. Samningar Starfsmannafélagsins voru til umræðu á félagsfundi í fyrradag en skriflegri atkvæðagreiðslu lýkur í dag. Með samningi starfsmanna Kópa- vogsbæjar hafa 10 bæjarstarfsmannafé- lög nú gert samninga en 9 félög innan BSRB hafa enn ekki gengið frá samkomulagi við launanefnd sveitarfc- laga, sem fer með samningsumboðið fyrir hönd sveitarstjórna. Sex félaganna hafa þegar afgreitt samningana og þeir alls staðar verið samþykktir. í Reykjavík sögðu 719 já en 462 nei, eins og fram kom í Þjóðviljanum í fyrra- dag. A Akureyri sögðu 171 já en 48 nei. í Mosfellssveit sögðu 16 já en 4 nei. í Lokatölur hjá BSRB Lokatölur í atkvæðagreiðslu ríkisstarfsmanna innan BSRB liggja nú fyrir. 11.997 voru á kjörskrá en 9.682 neyttu at- kvæðisréttar síns eða 80.7%. Já sögðu 5,596 eða 57.8% og nei sögðu 3.846 eða 39.7% Auðir og ógildir seðlar voru 240 eða 2.5%. - v. Hafnarfirði var samningurinn sam- þykktur með 86 atkvæðum gegn 54. f Garðabæ sögðu 46 já en 3 voru á móti. Á Seltjarnarnesi var samningurinn samþykktur með 31 atkvæði gegn 7. Hjúkrunarfélag íslands gerði samn- ing við Reykjavíkurborg fyrir hönd hjúkrunarfræðinga hjá borginni. Var sá samningur samþykktur naumlega með 72 atkvæðum gegn 70. - v. Siglingamálastofnun: Úttekt á sjóslysum á síðustu 30 árum Siglingamálastofnun fyrirhug- ar að framkvæma úttekt á öllum sjóslysum hér við land á síðustu 30 árum. Hér er að sjálfsögðu mjög viðamikið starf, en eigi að síður þarft. Þessi ákvörðun kem- ur í kjölfar þeirrar miklu um- ræðu sem átt hefur sér stað í landinu að undanförnu um ör- yggismál sjómanna, en sem kunn- ugt er hefur komið í Ijós að þar er víða pottur brotinn. Þá er fyrirhuguð síðar á árinu ráðstefna á vegum Siglingamál- astofnunar urn öryggismál sjó- manna, þar sem allir er málið varðar munu koma saman og ræða það. Við athugun sem Siglingamál- astofnun gerði á þeim 8 bátum, smíðuðum í Þýskalandi á árunum 1956-1960 og farist hafa var búið að skipta um vélar í þremur þeirra, en ýmsar aðrar breytingar höfðu verið gerðar á þessum skipum. - S.dór Neisti í nýjum búningi Fylkingin ber ekki ábyrgð opin- berlega á fjórmenningunum Neisti málgagn Fylkingarinn- ar er kominn út í nýjum bún- ingi. A síðasta miðstjórnar- fundi Fylkingarinnar var ákveðið að breyta útliti blaðsins og minnka brotið. Nokkrar deilur urðu m.a. um þessi áform á miðstjórnarfundinum en meirihlutinn hafði sitt fram. í hinum nýja Neista er stutt frétt- ayfirlit, grein um ríkisstjórn verka- lýðsflokkanna, andstöðuna í Pól- landi, viðtal við fyrrvrandi blaða- fulltrúa Bishops á Grenada, um Nicaragua og E1 Salvador, um Kissinger-skýrsluna, byltinguna á Kúbu. Þá er í Neista grein eftir Má Guðmundsson um samdrátt og atvinnuleysi. Þá er grein um miðst- jórnarfund Fylkingarinnar, þar sem klofningurinn var staðfestur. í lok þeirrar greinar segir höfundur- inn Árni Sverrisson um miðstjórn- arfélagana fjóra, Guömund Hallvarðsson, Ragnar Stefánsson, Birnu Þórðardóttur og Rúnar Sveinbjörnsson, sem sögðu sig úr Fylkingunni: „Það leiðir hins vegar af úrgöngu þeirra úr Fylkingunni, að þessir fjórir félagar eru ekki lengur talsmenn Fylkingarinnar og hún ber ekki lengur pólitíska ábyrgð á framgöngu þeirra, störf- um-og málflutningi í pólitískum samtökum og opinberlega“. Neisti á að koma út átta sinnum á ári og kostar áskriftin 400 krónur fyrir hálft ár. Næsta tölublað kem- ur út í apríl. -óg Fellt að slyðja unga bændur sérstaklega Steingrímur J. Sigfússon flutti tvær breytingartillögur við stjórnarfrumvarp um breytingar á lausaskuldum bænda í föst lán, sem afgreitt var frá neðri deild Alþingis í fyrradag, og voru þær báðar felldar. Breytingarnartillögurnar voru svohljóðandi: 1. Lánveitingar samkvæmt lögum þessum skulu sérstak- lega miða að því að leysa fjár- hagsvanda þeirra bænda sem nýlega hafa byrjað búskap, staðið í gagngerri uppbyggingu eða endurbótum á bújörð sinni eða búa við sérstaklega erfiðan fjárhag vegna fjölskylduað- stæðna. 2. Innlánsstofnunum er skylt að taka við bankavaxtabréfum er gefin verða út samkvæmt lögum þessum. Seðlabankinn endurkaupir þessi bréf. - - ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.