Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 21
Helgin 24.-25. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 Skúli Óskarsson: „Sárt að horfa uppá að íþrótánni blœði út Til aö fylgja á eftir áform- um sínum um að koma hinu nýja „Jakabóli" við Frost- askjól í gagnið hafa lyft- ingamenn í Reykjavík gefið út kynningarbækling þar sem reifuð er saga þeirra og markmið. Skúli Oskarsson, hinn kunni lyftingamaður frá Fáskrúðsfirði sem kjör- ínn var íþróttamaður ársins 1978 og 1980 og setti heim- smet í kraftlyftingum, dýfir þar penna í blek og segir: „Frá upphafi lyftingaiökunar hérlendis hefur framgangi íþrótt- arinnar löngum verið ógnað af aðstöðuleysi. Þegar ég hóf lyft- ingaferil minn, þvældist maður úr einum hjallinum í annan. Það var sem svo að ef einhversstaðar var að finna hús sem taldist ónothæft til flestra hluta. þá fengum við lyftingamenn allra náðarsam- legast að koma lyftingastöngun- um okkar þar fyrir. Við höfðum t.d. aðstöðu í af- gömlu og niðurníddu frystihúsi (sænska frystihúsinu) en þaðan var okkur úthýst þar sem talið var að við eyðileggðum húsið nteð þungum lóðum okkar. Við stóð- um um síðir uppi með gamalt þvottahús í Laugardalnum sem viö urðum að byggja upp svo gott sem frá grunni. I því húsi, sem í fyllingu tímans var kall tð Jaka- ból, átti ég síðan mín bestu ár sem lyftingamaður. Hús þetta er nú að hruni komið vegna mikillar notkunar í gegnum árin. Hið lé- lega húsnæði hefur nú orðið til þess að sífellt erfiðara er að fá unga menn til að hefja iðkun lyft- inganna, og þar með taka við af gömlum brýnum eins og mér. Ég hef nú hætt keppni í lyfting- um eftir 13 ára stífan keppnisfer- il, en þykir sárt að horfa upp á að íþróttinni muni smátt og smátt blæða út vegna skorts á mannsæmandi æfingaaðstöðu. Ég vil því biðja þig, lesandi góð- ur, að taka vel á móti beiðni okk- ar lyftingamanna um aðstoð við að reisa íþróttinni varanlegt æf- ingahúsnæði. Skúli Óskarsson: „Sífellt erfiðara að fá unga menn i lyftingarnar". ,y erðum að • • snua vom 1 sókn til að halda lífi“ „Við erum í raun að berjast fyrir lífi okkar, það hefur orðið mikil stöðnun í okkar íþrótt og við höfum fengið fáa nýja lyftingamenn síðan heilsuræktarstöðvarnar fóru að spretta upp. Þær eru mikið boðlegri en það sem við höfum uppá að bjóða; til að halda lífi verðum við að snúa vörn í sókn og það ætlum við að gera með því að koma upp nýju „Jakabóli“ við Frostaskjól“, sagði Ólafur Sigurgeirsson, forsvarsmaður reykvískra lyftingamanna, í samtali við Þjóðviljann. „Jakaból" í Laugardal er eina verður 475 fermetrar að grunn- aðstaða lyftingamanna í Reykjavík flatarmáli og hýsir tvo æfingásali fyrir líkamsrækt og lyftingar, auk búningsklefa fyrir bæði kyn. „Kon- ur hafa ekki getað æft hér í Jaka- bóli vegna aðstöðuleysis en við vitum að áhuginn á þeim erj fyrir hendi. Ekki telst þetta meðal fegurri íþróttahúsum Reykjavíkurborgar en þarna, í Jakabóli í Laugardal, er eina aðsta&a Jyftingamanna í hörfuðborginni. Myndin talar sínu máli um ástand hússins. Mynd: -eik. dag og það þarf ekki að virða húsnæðið lengi fyrir sér til að sjá að það er ekki líklegt til að standa undir sjálfu sér lengi í viðbót. Lyft- ingamenn fengu Jakaból til um- ráða fyrir átta árum er þeir fóru framá að fá að byggja ofaná þvott- ahústóft við gömlu þvottalaugarn- ar í Laugardal. Það fékkst, húsinu var komið í nothæft stand með mikilli sjálfboðavinnu sem síðan hefur sífellt haldið áfram þar sem stöðugt hefur þurft að halda í horf- inu til að höllin hryndi ekki. Á síð- asta ári var síðan tvívegis kveikt í húsinu en lyftingamenn komu því jafnharðan í viðunandi stand á ný. Fyrir nokkru sóttu lyftingamenn um íóð fyrir nýtt æfingahúsnæði og hana fengu þeir við Frostaskjól eins og áður er vikið að, nánar til- tekið í einu horninu á félagssvæði KR-inga. Gísli Halldórsson, heiðursforseti ÍSÍ, teiknaði húsið og tók fyrstu skóflustungujia að því í september árið 1982. Búið er að steypa plötuna en nýbyggingin „Við höfum náð að leggja út 1,6 miljón króna í plötuna og kaup á stálgrindum í húsið. Stefnan er sú að hægt verði að æfa í nýja húsinu í haust og það verði síðan fullklárað 1985 en til þess þurfum við að ná í hálfa aðra miljón króna. Næsta skrefið er að leita til 20 vel stönd- ugra fyrirtækja um hvort þau vilji byggja þetta lyftingahús með okk- ur og leggja til þess 30 þúsund krónur hvert. Þau fengju áletraðan skjöld til minja, og að auki aðstöðu til líkamsræktar og æfinga fyrir sína starfsmenn. Til að ná endum sam- an yrði síðan leitað til minni fyrir- tækja og staðið fyrir söfnun meðal einstaklinga eða komið á fót happdrætti. Allmargir lyftinga- menn hafa lagt fram fé úr eigin vasa Ólafur útskýrir, Björn Hrafnsson fylgist með. Á myndinni sjást glöggt hrörnandi innviðir jakabólsins í Laugar- dal. Mynd: -eik. Ólafur Sigurgeirsson, Björn Hrafnsson og Björn Lárusson kynna áform reykvískra lyftingamanna. Mynd -eik. til byggingarinnar, 30 þúsund hver, en meira þarf til“, sagði Ólafur. Það kom fram hjá Ólafi og kol- legum hans, Björnunum Hrafns- syni og Lárussyni, að húsbyggingin sjálf yrði að mestu eða öllu leyti framkvæmd í sjálfboðavinnu og til þessþyrftia.m.k. 1000 vinnustund- ir. Þeir töldu að svipaður eða meiri tími lyftingamanna hefði farið í að reisa og viðhalda Jakabóli hinu gamla undanfarin ár. „Ekki gert ráð fyrir okkur“ „Fram til þessa hefur ekki verið gert ráð fyrir lyftingum í íslensku íþróttalífi, a.m.k. ekki í hinni opin- beru íþróttastefnu. Lyftingamenn hafa ætíð verið hornreka hvað að- stöðu varðar. f Svíþjóð er t.d. skylt að hafa lyftingatæki í öllum skólum og íþróttahúsum en hér á landi hafa ekki verið gerðar kröfur þar að lút- andi. í seinni tíð hafa að vísu komið fram litlir þrekklefar í íþróttahús- unum en þeir hafa hvorki verið fugl né fiskur og oftast hafa örlög þeirra orðið þau, að vera notaðir sem draslgeymslur. Asíðustu árum hef- ur komið fram hversu mikið fjöl- margar aðrar íþróttir geta hagnýtt sér lyftingarnar og frjálsíþrótta- menn hafa mikið æft hjá okkur undanfarin misseri. Gildi lyfting- anna er sífellt að koma betur og betur í ljós“, sagði Ólafur Sigur- geirsson. -VS Þarna, á KR-svæðinu, er platan undir hið nýja hús komin í jörð nlður. Til vinstri sjást vel sérstaklega járnstyrktir fletir sem eiga að þola ógnarþunga lyftingalóðanna sem skellt er niður.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.