Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 24.03.1984, Blaðsíða 19
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 f ram 09 eried lit Kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn Einu sinni var karl og kerling í koti sínu, þau voru svo snauð, að þau áttu ekkert til í eigu sinni nema snúð einn af gulli á snældu kerlingar. Það var siður karls, að hann fór dag hvern á veiðar eða til fiskifanga til að afla þeim lífs- bjargar. Skammt frá koti karls var hóll einn mikill. Það var trú manna, að þar byggi huldumaður sá, er kallaður var Kiðhús, og þótti hann nokkur við- sjálsgripur. Einu sinni sem oftar bar svo við, að karl fór á veiðar, en kerling sat heima, eins og hún var vön. Af því að gott veður var um daginn, settist hún út með snældu sína og spann á hana um hríð. Brá þá svo við, að gullsnúðurinn datt af snældunni og valt nokkuð til, svo að kerling missti sjónar á honum. Hún undi þessu allilla og leitaði dyrum og dyngjum, en allt kom fyrir ekki. Hún fann hvergi snúðinn. Eftir það kom karl heim, og sagði hún honum áfall sitt. Karl kvað Kiðhús hafa tekið snúðinn, og væri það rétt eftir honum. Bjóst karl enn að heiman og segir kerl- ingu, að hann ætlaði sér að krefja Kið- hús um snúðinn eða eitthvað fyrir hann. Við það brá heldur af kellu. Karlinn gengur nú sem leið lá að hóln- um Kiðhúss og ber þar lengi á og óþyrmilega með lurk. Loksins svarar Kiðhús: „Hver bukkar mín hús?“ Karl segir: „Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“ Kiðhús spurði hvað hann vildi hafa fyrir snúðinn. Karl bað hann um kú, sem mjólkaði fjórðungsfötu í mál, og veitti Kiðhús honum þá bæn. Fór svo karl heim með kúna til kerlingar. Daginn eftir, er hún hafði mjólkað kúna um kvöldið og morguninn og hafði fyllt alla dalla sína með mjólk, kom henni til hugar að búa til graut, en þá man hún eftir því, að hún á ekkert ákast á grautinn. Fer hún þá til karls og biður finna Kiðhús og biðja hann um ákast. Karl fer til Kiðhúss, ber á hólinn með lurknum sem fyr. Þá segir Kiðhús: „Hver bukkar mín hús?“ Karl segir: „Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“ Kiðhús spyr hann, hvað hann vilji. Karl biður hann að gefa sér út í pottinn, því þau kerling sín ætli að elda sér graut. Kiðhús gaf karli méltunnu. Fór svo karl heim með tunnuna, og gerir kerling grautinn. Þegar grautur- inn var soðinn, settust þau að honum, Vaá, svakalega er hún stór! - og hvergi pláss! Ljósm.: Christian Roger. Halló aftur Bakka 16. mars 1984 Héðan úr Bjarnarfirðinum er allt gott að frétta, sól og blíða upp á hvern dag. Bakkabærinn sést núna langt að, því snjórinn hefur bráðnað svo mikið. Krakkarnir í Klúkuskóla þvoðu sund- laugina á mánudaginn og hafa legið í bleyti síðan. Þau eru annars að leggja af stað í skólaferðaiag til Reykjavíkur á morg- un, laugardag, svo að ef þið hafið rekist á einhverja skrýtna fugla í höfuðstaðn- um í vikunni áður en þetta birtist þá vitið þið.... Nei, hvernig læt ég. Eg ætlaði að segja ykkur af ferðalaginu. Krakkarnir í skólanum hafa safnað sér peningum, með því að gefa út og selja skólablað, halda félagsvistir fyrir alla í sveitinni og um daginn héldu þau tombólu. Peningarnir eru síðan notaðir til að færa skólann til Reykjavíkur í eina viku. Auðvitað fá þau ekki venju- legt frí í ferðinni, heldur eiga þau að mæta í allskonar uppákomur, safnferðir, leikhús, vinnustaðakynn- ingu og bíó. Auk þess ætla þau að prófa lyfturnar í Bláfjöllum. Hér er engin lyfta þrátt fyrir mikinn snjó og marga skíðamenn. Aðalnámið verður samt bara að læra að rata í borginni, kunna á strætó og að geta nýtt sér allt það sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Ykkur hefur ekkert dottið í hug að safna pen- ingum til að komast annað hvort til Reykjavíkur eða fyrir borgarbúana að skreppa hingað norður á hjara veraldar í námsferð? Eða hvað? Bless í bili Lifið heil!! Attí karl og kerling, og átu eins og í þeim lá. Þegar þau höfðu étið sig mett, áttu þau enn mikið eftir í pottinum. Fóru þau þá að hugsa sig um, hvað þau ættu að gera við leifarnar, þótti þeim það tiltæki- legast að færa þær sankti Maríu sinni, móður Jesú. En fjótt sáu þau það, að ekki var auðhlaupið upp þangað sem hún var. Þeim kom því saman um að biðja Kiðhús um stiga, sem næði upp til himna, og héldu, að snúðurinn væri ekki ofborgaður fyrir því. Karl fer og ber á hólinn hjá Kiðhús. Kiðhús spyr sem fyrr. „Hver bukkar mín hús?“ Karl svarar enn: „Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“ Við það byrstist Kiðhús og segir: „Er þá snúðskömmin aldrei borgaður?“ Karl bað hann því meir og kvaðst ætla að færa Maríu sinni grautarleifarnar í skjólum. Kiðhús lét þá til leiðast, gaf honum stigann og reisti hann upp fyrir karl. Varð nú karl glaður við og sneri heim til kerlingar. Bjuggu þau sig svo til ferðar og höfðu með sér grautar- skjólurnar. En er þau voru komin æði- hátt upp í stigann, tók þau að sundla. Brá þeim þá svo við að þau duttu bæði ofan og brutu í sér höfuðskeljarnar. Flugu þá heilasletturnar og grautar- kleimurnar um allan heim. En þar sem heilaslettur karls og kerlingar komu á steina, urðu úr þeim hvítar dröfnur, en úr grautarkleimunum urðu hinar gulu, og sjást hvorar tveggja enn þann dag í dag á grjóti. ( llr Þjóðsögum Jóns Árnasonar) * # \ f / í \ H (xrmoniKuStrGi'tC’ nAr.QHtfr i'*'*- ...— Æma.Sínfxi.....þ£^&jr^Á(kJLom....I,il „XilajrUs ^ ■4 ■~ “ t, pér y,>; á lij; .JtbtoXásh*.—,g-9þ. Jkfl.4íiL_£ja,........................cTét-vúr i klUL-JBÍM i K f Uv r-jfcn 0 ^ -—JLg- \ þífitc i l ji tn ...............„ & .k ».s C ^ stir:« ti —_____tfarl -LaJLi 'Pyf* r 3 ¥&

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.