Þjóðviljinn - 24.03.1984, Side 19
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
f ram 09
eried lit
Kerling
vill hafa
nokkuð fyrir
snúð sinn
Einu sinni var karl og kerling í koti
sínu, þau voru svo snauð, að þau áttu
ekkert til í eigu sinni nema snúð einn af
gulli á snældu kerlingar. Það var siður
karls, að hann fór dag hvern á veiðar
eða til fiskifanga til að afla þeim lífs-
bjargar. Skammt frá koti karls var hóll
einn mikill. Það var trú manna, að þar
byggi huldumaður sá, er kallaður var
Kiðhús, og þótti hann nokkur við-
sjálsgripur.
Einu sinni sem oftar bar svo við, að
karl fór á veiðar, en kerling sat heima,
eins og hún var vön. Af því að gott
veður var um daginn, settist hún út
með snældu sína og spann á hana um
hríð. Brá þá svo við, að gullsnúðurinn
datt af snældunni og valt nokkuð til,
svo að kerling missti sjónar á honum.
Hún undi þessu allilla og leitaði dyrum
og dyngjum, en allt kom fyrir ekki.
Hún fann hvergi snúðinn. Eftir það
kom karl heim, og sagði hún honum
áfall sitt. Karl kvað Kiðhús hafa tekið
snúðinn, og væri það rétt eftir honum.
Bjóst karl enn að heiman og segir kerl-
ingu, að hann ætlaði sér að krefja Kið-
hús um snúðinn eða eitthvað fyrir
hann. Við það brá heldur af kellu.
Karlinn gengur nú sem leið lá að hóln-
um Kiðhúss og ber þar lengi á og
óþyrmilega með lurk. Loksins svarar
Kiðhús:
„Hver bukkar mín hús?“
Karl segir:
„Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling
vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“
Kiðhús spurði hvað hann vildi hafa
fyrir snúðinn. Karl bað hann um kú,
sem mjólkaði fjórðungsfötu í mál, og
veitti Kiðhús honum þá bæn. Fór svo
karl heim með kúna til kerlingar.
Daginn eftir, er hún hafði mjólkað
kúna um kvöldið og morguninn og
hafði fyllt alla dalla sína með mjólk,
kom henni til hugar að búa til graut, en
þá man hún eftir því, að hún á ekkert
ákast á grautinn. Fer hún þá til karls og
biður finna Kiðhús og biðja hann um
ákast. Karl fer til Kiðhúss, ber á hólinn
með lurknum sem fyr. Þá segir Kiðhús:
„Hver bukkar mín hús?“
Karl segir:
„Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling
vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“
Kiðhús spyr hann, hvað hann vilji.
Karl biður hann að gefa sér út í pottinn,
því þau kerling sín ætli að elda sér
graut. Kiðhús gaf karli méltunnu.
Fór svo karl heim með tunnuna, og
gerir kerling grautinn. Þegar grautur-
inn var soðinn, settust þau að honum,
Vaá, svakalega er hún stór! - og hvergi pláss! Ljósm.: Christian Roger.
Halló aftur
Bakka 16. mars 1984
Héðan úr Bjarnarfirðinum er allt
gott að frétta, sól og blíða upp á hvern
dag. Bakkabærinn sést núna langt að,
því snjórinn hefur bráðnað svo mikið.
Krakkarnir í Klúkuskóla þvoðu sund-
laugina á mánudaginn og hafa legið í
bleyti síðan.
Þau eru annars að leggja af stað í
skólaferðaiag til Reykjavíkur á morg-
un, laugardag, svo að ef þið hafið rekist
á einhverja skrýtna fugla í höfuðstaðn-
um í vikunni áður en þetta birtist þá
vitið þið.... Nei, hvernig læt ég. Eg
ætlaði að segja ykkur af ferðalaginu.
Krakkarnir í skólanum hafa safnað sér
peningum, með því að gefa út og selja
skólablað, halda félagsvistir fyrir alla í
sveitinni og um daginn héldu þau
tombólu. Peningarnir eru síðan notaðir
til að færa skólann til Reykjavíkur í
eina viku. Auðvitað fá þau ekki venju-
legt frí í ferðinni, heldur eiga þau að
mæta í allskonar uppákomur,
safnferðir, leikhús, vinnustaðakynn-
ingu og bíó. Auk þess ætla þau að prófa
lyfturnar í Bláfjöllum. Hér er engin
lyfta þrátt fyrir mikinn snjó og marga
skíðamenn. Aðalnámið verður samt
bara að læra að rata í borginni, kunna á
strætó og að geta nýtt sér allt það sem
staðurinn hefur upp á að bjóða. Ykkur
hefur ekkert dottið í hug að safna pen-
ingum til að komast annað hvort til
Reykjavíkur eða fyrir borgarbúana að
skreppa hingað norður á hjara veraldar
í námsferð? Eða hvað?
Bless í bili
Lifið heil!!
Attí
karl og kerling, og átu eins og í þeim lá.
Þegar þau höfðu étið sig mett, áttu þau
enn mikið eftir í pottinum. Fóru þau þá
að hugsa sig um, hvað þau ættu að gera
við leifarnar, þótti þeim það tiltæki-
legast að færa þær sankti Maríu sinni,
móður Jesú. En fjótt sáu þau það, að
ekki var auðhlaupið upp þangað sem
hún var. Þeim kom því saman um að
biðja Kiðhús um stiga, sem næði upp til
himna, og héldu, að snúðurinn væri
ekki ofborgaður fyrir því. Karl fer og
ber á hólinn hjá Kiðhús. Kiðhús spyr
sem fyrr.
„Hver bukkar mín hús?“
Karl svarar enn:
„Karl er þetta, Kiðhús minn, kerling
vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn.“
Við það byrstist Kiðhús og segir: „Er
þá snúðskömmin aldrei borgaður?“
Karl bað hann því meir og kvaðst ætla
að færa Maríu sinni grautarleifarnar í
skjólum. Kiðhús lét þá til leiðast, gaf
honum stigann og reisti hann upp fyrir
karl. Varð nú karl glaður við og sneri
heim til kerlingar. Bjuggu þau sig svo
til ferðar og höfðu með sér grautar-
skjólurnar. En er þau voru komin æði-
hátt upp í stigann, tók þau að sundla.
Brá þeim þá svo við að þau duttu bæði
ofan og brutu í sér höfuðskeljarnar.
Flugu þá heilasletturnar og grautar-
kleimurnar um allan heim. En þar sem
heilaslettur karls og kerlingar komu á
steina, urðu úr þeim hvítar dröfnur, en
úr grautarkleimunum urðu hinar gulu,
og sjást hvorar tveggja enn þann dag í
dag á grjóti.
( llr Þjóðsögum Jóns Árnasonar)
* #
\
f /
í \
H
(xrmoniKuStrGi'tC’
nAr.QHtfr i'*'*- ...—
Æma.Sínfxi.....þ£^&jr^Á(kJLom....I,il „XilajrUs
^ ■4 ■~ “ t, pér y,>; á lij;
.JtbtoXásh*.—,g-9þ.
Jkfl.4íiL_£ja,........................cTét-vúr i
klUL-JBÍM i K f Uv r-jfcn 0 ^
-—JLg- \ þífitc
i
l ji tn ...............„
&
.k ».s C ^
stir:« ti
—_____tfarl -LaJLi
'Pyf* r 3 ¥&