Þjóðviljinn - 24.03.1984, Qupperneq 7
Helgin 24.-25. mars 1984 11 ÞJÓÐVIIJINN - SH)A 7.
Það er búið að filma mig dauða“
Það er búið að Ijósmynda
mig nóg, það er búið að
drepa mig með öllum þess-
um upptökum, segir Marlene
Dietrich 82 ára gömul í
heimildarkvikmynd um ævi
sína og kvikmyndaferil sem
nýgerð er. í myndinni svarar
hún spurningum sem Max-
imilan Schell leggur fyrir
hana - og með fylgja Ijós-
myndir og atriði úr ýmsum
kvikmyndum hennar.
Petta er einskonar „síðasta
segulband Marlene".
Henni dettur ekki í hug að hrósa
myndum sínum: Nei, ég hefi engan
áhuga á að horfa á sjálfa mig. Og
svona myndir eins og Blái engillinn
þar sem ég sit á tunnu og syng „Ich
bin von Kopf bis Fuss“, það get ég
ekki hlustað á, þetta er bara hlægi-
legt.
Aðrar glefsur úr myndinni geta
t.d. verið á þessa leið:
XX
Ég hefi aldrei blandað saman
einkalífi mínu og atvinnu. Engum
hefur tekist að troða sér inn í einka-
líf mitt.
XX
Og verið ekki að sýna mér kven-
frelsisbaráttuna. Ég held hún sé
tengd við penisöfundina. Þær eru
ekki með þetta dinglumdangl og
það er þeirra ógæfa, ekki satt?
XX
Ég hefi ekki nennt að leita uppi
liðna tíð, skoða hvar ég var fædd og
þesshátar. Það sem skiptir mig máli
er hvað ég þarf að gera í dag og á
morgun, ég hefi aldrei litið um öxl.
Ég var leikkona, ég vann í myndum
mínum, svo voru þær búnar.
Og ég geri greinarmun á ást og
sexi. Allir halda að ég hafi haldið
við Ernst Hemingway. En það var
aldrei. Ég elskaði hann, honum
þótti vænt um migog ég á öll bréfin
frá honum, sem eru lokuð inni í
banka í New York. Ég veit ekki
hvað ég á að kalla þessa ást okkar,
en hún kemur sexi ekkert við, ekk-
ert við kynlífi.
XX
Nej, það var ekki hugrekki af
mér að fara frá Þýskalandi eftir
valdatöku nasista. Við skildum
ekkert í pólitík, en auðvitað vorum
við á móti nasistum. Við vissum um
fangabúðirnar, um börnin sem
voru drepin. Og þarf þá mikið hug-
rekki til að vita með hverjum mað-
ur stendur?
XX
En ég þekki Þjóðverja, ég er
sjálf Þjóðverji. Þeir vildu leiðtoga
og þeir fengu hann. Því þannig
erum við Þjóðverjar. Við sögðum
við Hitler: Æ, það er svo gott að
það er kominn foringi. Sem segir
mér gerðu þetta eða hitt, eldaðu,
opnaðu dyrnar og svo framvegis.
þannig var ég líka alin upp.
XX
Nei, ég óttast ekki dauðann.
Maður ætti að vera hræddur við
lífið en ekki dauðann. Þá veit mað-
ur ekki neitt lengur. Ég hefi veri í
stríðinu og þegar ég hugsa um alla
þá sem voru drepnir, þá veit ég það
er ekki mögulegt að þeir svífi um
áfram lifandi. Auk þess trúi ég ekki
á æðri máttarvöld. Éða - ef þau eru
til - þá er það klikkað (mesc-
Imgge)- áb tók saman.
XIX. ráðstefna MÍR
Aðalfundur Menningartengsla íslands og Ráðstjórn-
arríkjanna, sem jafnframt er 19. ráðstefna MÍR, verður
haldinn í MÍR-salnum, Lindargötu 48, laugardaginn
24. og sunnudaginn 25. mars 1984. Fundurinn hefst
báðadaganakl. 14. SérlegirgestirMÍRáráðstefnunni
verða tveir af forystumönnum Félagsins Sovétríkin -
ísland, þeir Orest Vereiskí listmálari og Ivan I. Danilk-
in, ritari Sambands verkafólks í matvælaiðnaði í So-
vétríkjunum. Flytja þeir ávörp og frásagnir áfundinum.
MÍR-félagar eru hvattir til að fjölmenna.
Félagsstjórn
Þú lest þaö í Þjóðviljanum
Áskriftarsíminn: 81333
Laugardaga
kl. 9—12: 81663
DWÐVUJINN
Prentstofa W42Ö66
G. Benediktssonar
ánýjumstað.
Nýbýlavegi 30
a m
Viö erum flutt meö alla okkar starfsemi
úr Bolholti 6 aö Nýbýlavegi 30 í Kópavogi. <hamrabqrg
Prentun og bókband veröur áfram um sinn
aö Skemmuvegi 8 (sfmi 74848)
--- NÝBÝLAVEGUR
H í
BÍLASÍNING
UM HELCINA - íNYJUM CLÆSILECUM SYNINCARSAL OKKAR
Laugardag frá ki. 10 - 5 — Sunnudag frá kl. 1 - 5
1984 ÁRCERÐIRNAR FRÁ
MITSUBISH I
MITSUBISHI
MITSUBISHI
COLT - COLT TURBO
SPACE WACON
CALANT TURBO - CALANT STATION____
LANCER - SAPPORO - TREDIA______
PAJERO TURBO DIESEL - PAJERO SUPER WACON
L 300 SENDIBÍLL - L 300 MINI BUS
I '
HEIMILISDEILDIN VERÐUR OPIN
SAMTÍMIS BÍLASÝNINCUNNI
IhIhekia
Laugavegi 170 -172 Sír
HF
Sími 21240