Þjóðviljinn - 24.03.1984, Qupperneq 28
UQtMjjNN Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími 81663
Stjóm Dagsbrúnar kom saman í gær til að ræða efni hins nýja samnings við VSÍ. Mynd-eik.
Umtalsverðar kjarabætur
Stórfelld hœkkun á fjölmarga starfshópa
Unglingataxtinn felldur út
Lœgstu taxtar felldir niður.
Afturvirkni til 21. febrúar
Starfsaldurshœkkun og sérkjaraviðrœður
hafnarstarfsmanna
Samninganefnd Dagsbrúnar náði
fram umtalsverðum kauphækkun-
um og kjarabótum umfram kjara-
samninga ASÍ og VSÍ, í þeim heildar-
kjarasamningi við VSÍ sem undirrit-
aður var snemma í gærmorgun. Þá
hafði samningafundur staðið yfir
sleitulaust f rá þvi síðdegis á
fimmtudag.
Forystumenn Dagsbrúnar vörðust
allra frétta af innihaldi samningsins í
gær, þar sem gert hafði verið sam-
komulag um að efni hans yrði ekki
kynnt fyrr en á félagsfundi sem Dags-
brún hyggst halda á morgun.
Síðdegis í gær skrifuðu Reykjavíkur-
borg og Vinnumálasamband sam-
vinnufélaga undir samhljóða samning
og VSÍ við Dagsbrún.
Samkvæmt upplýsingum Þjóðviljans
eru meginatriðin í samkomulagi
Dagsbrúnar og VSÍ þessi:
• Unglingataxtinn hefur veríð felldur
út.
• Nokkrír lcegstu launataxtarnir hafa
verið felldir niður.
• Hafnarverkamenn og ýmsir aðrir
starfshópar fá verulegar kjarabcetur
umfram samninga ASÍ og VSÍ.
• Sérstök launahœkkun er eftir 15 ára
starfsaldur.
• Sérkjaraviðrœðum við hafnarstarfs-
menn skal lokið innan mánaðar.
• Kjör Dagsbrúnarstarfsmanna hjá rík-
inu hafa verið samrcemd kjörum
þeirra sem eru í öðrum verkalýðsfé-
lögum sem þýðir í ýmsum tilfellum
Landanir skuttogara í kvótakerfinu:
Frystihúsin sjálf
vigta kassafiskinn
Verðum að treysta á heiðarleika manna, segir
Þórður Eyþórsson í sjávarútvegsráðuneytinu
Sá háttur hefur verið hafður á
við löndun á fiski í kössum úr tog-
urunum að ekki hefur verið farið
á bílavogirnar við hafnirnar,
heldur látið duga að telja kassana
uppúr togurunum og hefur það
verið gert í frystihúsunum. Nú er
aftur á móti kominn kvóti á hvert
skip og þá bjuggust menn við því
að farið yrði að vigta uppúr tog-
urunum í frystihúsin og starfs-
menn frystihúsanna, sem flest
hver eiga togarana, látnir telja
kassana og segja til um hvaða
fisktegund er í þeim.
Býður þetta ekki uppá misferli
eftir að kvótakerfi er komið á?
Þessa spurningu lagði Þjóðviljinn
fyrir Þórð Eyþórsson í sjávarút-
vegsráðuneytinu. Hann sagði að
vissulega gætu menn reynt að
svindla í þessu eins og öðru. Aft-
ur á móti hefði eftirlit með þessu
verið hert og væru nú 14 eftirlits-
menn að störfum við að fylgjast
með að farið væri eftir settum
reglum. Til að byrja með yrði
sami háttur hafður á sem fyrr og
treyst á heiðarleika manna. Þá
benti hann á að í frystihúsunum
sæju löggiltir vigtarmenn um að
vigta uppúr kössunum og starfs-
menn Framleiðslueftirlitsins
fylgdust líka með málinu.
Er ekki hætta á að gefinn verði
upp annar fiskur en þorskur eftir
að kvótakerfið er komið á?
„Sannast sagna óttumst við
það og því erum við að reyna að
efla eftirlitið, þótt við getum
gulltryggt það að farið sé eftir
settum reglum. Ef mikill mis-
brestur verður á því að menn geri
það verður að sjálfsögðu að grípa
til annarra ráða“, sagði Þórður.
-S.dór
verulega launahcekkun Dagsbrúnar-
manna.
• Samningarnir eru afturvirkir að
samningstíma ASÍ og VSÍ, 21.febrúar
sl.
Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri
Dagsbrúar sagði í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að vissulcga hefði Dagsbrún
ekki fengið öllum sínum kröfum fram-
gengt að þessu sinni. „En við hefðum
ekki skrifað undir nema vegna þess að
við töldum okkur hafa náð sæmilegum
árangri“, sagði Þröstur.
zJSi
Bókagerðarmenn sömdu á
hádegi í gær:
,,Frábrugðiö
ASÍ'VSÍ í
veigamikl-
um atriðum44
Alþjóðamótið í Neskaupstað
Helgi enn með forystu
Sjá bls. 26
„Ég myndi telja þennan
samning okkar í veigamikl-
um atriðum frábrugðinn
þeim samningi sem ASÍ og
VSÍ gerðu“, sagði Þórir Guð-
mundsson starfsmaður Fé-
lags bókagerðarmanna, í
samtali við Þjóðviljann eftir
að bókagerðarmenn höfðu
skrifað með fyrirvara undir
samning við prentsmiðju-
eigendur í húsakynnum
Ríkissáttasemjara skömmu
eftir hádegið í gær.
Trúnaðarmannaráð bóka-
gerðarmanna kom saman til
fundar síðdegis á fimmtudag og
þá um kvöldið hófst aftur samn-
ingafundur milli deiluaðila og
stóð hann sleitulaust fram yfir
hádegi í gær. Fundur um hina
nýju samninga hefur verið boð-
aður á Hótel Borg kl. 14.00 í
dag.
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans náðu bókagerðarmenn
fram veigamiklum breytingum
á samningi ASÍ og VSÍ. Ung-
lingakaupið hefur verið fellt
niður. Töluverð hækkun fékkst
á lægstu flokka, samningarnir
eru afturvirkir og júníhækkun
hjá ASÍ/VSÍ kemur strax til
greiðslu hjá bókagerðar-
mönnum auk þess sem samdist
um ýmis önnur sérkjaraatriði.
->g-