Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 11
Helgin 31. mars - 1. aprfl 1984 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 11
bókmenntir
Ferlið mikla
Franz Kafka: Réttarhöldin. Bókaútgáfa
Menningarsjóðs 1983, Ástráður
Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson
þýddu.
Káserað
Flókin og mikil skáldverk geta
verið svoleiðis vaxin að umfjallanir
um þau verði hlálegar á síðum dag-
blaðs. RáðiÖ sem þá má grípa til
nefnist káserí þ.e.a.s. skrafgrein.
Ef höfundar blaðagreina ætla að
taka verk eins og Réttarhöldin al-
varlega verða þeir kannski svo al-
varlegir að skrif þeirra lenda í sam-
keppni við jarðarfarir og sjúk-
dómsskýrslur þunglyndissj úklinga
sem afþreyingarefni.
Kafka: er ekki einhver goðsagna
kenndur hljómur bundinn þessu
nafni? Eitt sinn stóð ég í fornbóka-
verslun og blaðaði í fallega bund-
inni bók, og hét hún Die Kafka-
Literatur. Þetta hugði ég mundu
verða góð fjárfesting, - Kafka allur
í einni bók; spottprís. En viti
menn, ekki reyndist þetta vera
skáldskapur heldur eitthvað allt
annað. Af kaupum varð ekki. Nú
liðu enn nokkur ár og aftur stóð ég í
fornbókaverslun með skruddu í
hendi, Die Kafka-Literatur og
reyndist vera eftir sænska lands-
bókavörðinn. Nújá hugsaði ég, og
mundi ekki par, er loksins búið að
safna því í eina bók sem hefur verið
skrifað um kallinn? En ekki var nú
svo vel. Þeir sem lásu ágæta kynn-
ingu Ástráðs Eysteinssonar á Kaf-
ka í Tímariti Máls og menningar í
fyrra vita að þessi bók frá 1961 hef-
ur að geyma 5000 titla á bókum og
ritgerðum um Kafka og verk hans.
Heimsfélög og
til dœmis Hafsteinn
Þar með lendir skáldið á bás með
James Joyce. Þetta eru meistarar
margræðninnar. Stórvirki James
Joyce, Ulysses, verkar á nútímann
eins og Fjallið Eina, segir Halldór
Laxness í Skáldatíma. Hann skrifar
að bók Joyce hafi uppurið súrreal-
ismann og náð því hámarki í raun-
sæisstefnu í skáldskap þar sem bók
hættir að vera skáldverk, Ulysses
heyri aðeins „undir bókmenntir í
sama skilningi og kálfur með fjór-
um höfðum undir náttúrufræðina.
Það mundi prýða slíkan kálf ef
hann gæti staðið á grundinni og
bölvað fjórraddað; og einmitt
þetta gerir kálfurinn hjá James Jo-
yce“.
Það er mjög til ksemmtunarauka
þegar menn fara að stofna félög,
gefa út ársfjórðungsrit og halda
minningarhátíðir um svo marg-
slungin skáld. Þar næst hápunktur
í ástundun bókmenntafræði og þar
nálgast hún mest að verða fjar-
stæða (frá sjónarmiði vísinda) og
kokkteilboð (frá sjónarmiði menn-
ingarstarfsemi). Mér hefur oft
dottið í hug, úr því stofnað er Jam-
es Joyce heimsfélagið og vonandi
líka Franz Kafka heimfélagið,
hvort ekki sé orðið mál að gefa út
tildæmisársrit Hafsteinsguðmunds-
sonafélagsins. Hver veit nema
margræðni Hafsteins og fleiri
góðra manna sé ótæmandi? Sjálfur
vildi Kafka láta henda þessu skáld-
sagnadóti sínu en var svikinn.
Annars er mér fjarri skapi að
grínast með Kafka, samvisku-
saman kontórista sem fæddist fyrir
hundrað árum og bráðum einu bet-
ur. Samkævmt algengri kafkatúlk-
un leið skáldinu alltaf frekar illa
yfir því að geta ekki helgað sig rit-
störfum eingöngu. Sumir telja að
Réttarhöldin séu saga af því hvern-
ig samviskan stríðir á hann einmitt
fyrir að stunda ritstörfin of lítið og
auk þess fyrir að bregðast hjú-
skaparskyldu sinni.
Firring, bara
fáein sundtök
Vita ekki allir núorðið um hvað
Réttarhöldin fjalla? Þau eru saga af
manni sem er handtekinn en fær að
ganga laus, ákærður fyrir eitthvað
sem hann veit ekki hvað er og telur
sig saklausan. Svo lendir hann í
málaferlum sem standa í eitt ár uns
dag nokkurn er farið með hann út
fyrir borgina og hann drepinn eins
og hundur.
En þetta er semsé bara umgerð-
in. Málaferlin eru innra uppgjör
sakbitins manns og undir for-
merkjumtilvistarstefnu, endaþetta
víti honum kannski að mestu sjálf-
skapað; hann lætur jafnvel drepa
sig án þess að veita teljandi mót-
spyrnu. Stundum er bókin lesin út
frá trúarsjónarmiði og er sú leið
kannski einna frjóust. Kafka var
Árni
Sigurjónsson
skrifar
gyðingur.Bók þessi fjallar umlífs-
vandann á svo grundvallandi hátt
að það nálgast óhjávkæmilega trú-
arsviðið. Onnur algeng túlkunar-
leið er þjóðfélagsleg, og er þá efni
sögunnar m.a. skoðað í ljósi skrif-
ræðisins í byrjun fyrra stríðs er
hún var samin.
Fyrir tíma iðnvæðingarinnar
stendur maðurinn frammi fyrir
náttúru sem er fjandsamleg og
illviðráðanleg. í þróuðu auðsamfé-
lagi verður náttúran viðráðanlegri
salir tækniframfara, og þá er það
félagsleg kúgun sem tekur á sig
hlutverk óskiljanlegra og ógnvæn-
legra náttúruafla í formi ofvaxins
skrifstofuveldis eins og Kafka bjó
við. Mynd Réttharhaldanna af firr-
ingunni er markvissari eri flestar
aðrar. Þau eru sagan um Ferlið
mikla, vélina sem malar okkur og
kremur og sem við starfrækjum
sjálf. Firringin er birtingarmáti
kúgunar sem virðist óskiljanleg og
sprottin frá náttúrunni, enda held-
ur samfélagsskipulag sem ein-
kennist af firringu því ævinlega
fram að það sé í samræmi við nátt-
úruna. Já, - nú er ég víst farinn að
Frans Kafka
troða túlkunarmarkvaðnn svo mál
er að linni.
Önnur bók eftir Kafka kom út
fyrir síðustu jól, Hamskiptin, í
endurútgefinni þýðingu Hannesar
Péturssonar. Hamskiptin og Rétt-
arhöldin eru verulegur fengur fyrir
íslenska bókmenningu, og skal sér-
staklega þakkað að þeim fylgja eft-
irmálar sem vandað er til.
Árni Sigurjónsson.
Þjónusta
á þekkingu
Skipadeild. Sambandsins Jlutti í Jyrra um 450
þúsund lestir af alls kyns vörum milli 106 hafna
innan lands og utan — allt Jrá Grænlandi til
Nígeríu.
Sambandsskipin sigla reglulega til Jjölda hajna
í Evrópu og Ameríku — en þjónusta okkar nær
um heim allan með samvinnu við sérhæjða
Jlutningsaðila á sjó og landi.
Þarjtu að koma vörumJráAkureyri tilAbuDhabi
eða Jrá Barbados til Borgarness? Við sjáum um
það.
Þjónusta okkar er byggð á þekkingu.
SK/PADEILD
SAMBANDS/NS
SAMBANDSHÚSINU REYKJAVÍK SÍMI 28200