Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 19
Helgin 31. mars - 1. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 Úr grein eftir Hallgrím Jónasson er hann reit í 2. hefti Tímarits Máls og menningar 1949 Fólkið á hröðum flótta undan lög- reglu og hvítliðum. Laust grjót má sjá á víð og dreif um völlinn. I gegnum gasmökkinn Lögregla og hvítlfðar láta til skarar skríða fyrir framan alþingishúsið (Úr kvikmynd Sveins Björnssonar). Frá átökunum 30. mars 1949. Lögreglan í vígahug (úr kvikmynd Sveins Björnssonar). Ætli við, sem lifað höfum undanfarna daga, gleymum nokkurn tíma 30. mars 1949? Ekki meðan við munum þjóðerni okkar, tungu okkar. Ekki meðan okkur tekur í viðkvæma strengi við minningar þessa dags. Tvennt brennir sig inn í vitund mína, öllu öðru fremur. Tvær myndir. Þær vaxa fram, stækka, spenna yfir skynsvið hugans,blasa við augum, skarpar eins og brennidepill í safngleri. Þær standa hlið við hlið með þunnan húsvegg milli sín. Þó skilur þær heilt haf, regingeimur, óbrúað djúp. Ég er að koma frá vinnu minni. Hef ekki gegnt útboði hinna óttafullu í Alþingishús- inu, hef hvorki hug á að vinna þeim illt né gott. Ég stend á hlið við dómkirkjuna og horfi vestur yfir manhafið á götunni. Fólkið stendur þar í þéttum hnapp, aragrúi, þús- undir. Það hefur beðið Alþingi - fulltrúa sína - um eitt, aðeins eitt, að lofa þjóðinni sjálfri - fólkinu, sem landið byggir, að ráða örlögum sínum í skapaþyngstu spursmáli eigin tilveru. Það biður um þjóðaratkvæða- greiðslu í herbandalagsmálinu. Allt í einu koma þúsundir handa á loft, ekki krepptar, ógnandi hendur, heldur uppréttar hendur - eins og í bæn. Og hver er þeirra bæn? Leigið ekki ættjörð okkar í hendur er- lendu valdi. Svíkið ekki ísland! Öðru megin þessa mikla massa, upp við Alþingishúsið, stendur vopnað baráttulið ríkissjórnarinnar með reiddar kylfur. Hin- um megin óróagjarn unglingalýður, sem varpar aur að þinghúsinu. Hvað getur þetta fólk gert, eða rétta sagt spurt: Hvað vill það hingað? Það biður þess eins, að á því sé ekki níðst, að helgustu réttindi þess sé ekki fótum troðið, að þjóðin sé ekki ofurseld því valdi, sem hún óttast og vænir um óheilindi af biturri reynslu. Hin myndin er innan úr þinghúsinu. Stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar og hún sjálf, umkringd verndurum sínum, hinum kylfubúnu. Sektartilfinning og lamandi hræðsla er aðalsmerki þeirra í dag. En hvað hræðast þeir mest? Mannfjöldann úti fyrir með uppréttar hendur, í hrópandi áskorun, bæn? Naumast. Gegn honum og boðsgesí- um sínum hafa þeir gas- og kylfuliðiö. Hræðast þeirunglingalýðinn, sem kastar að þeim skít af fyrirlitningu óábyrgrar æsku? Finna þeir dóm þjóðar sinnar í þessum fá- víslegu, vansæmandi brekum reykvískra unglinga? Ef til vill. Eða hræðast þeir sjálfa sig mest? Flækjunet þau, sem um þá eru snúin af slungnu, erlendu valdi. Skuggi seks manns er ægilegur, þegar hann minnir á framin óhæfuverk, og blasir hvarvetna við skelfdum hug og augum hins seka. En þeir rétta líka upp hendur - á móti- umbjóðend- um sínum utan dyra, drepa óskir þeirra og bænir skjálfandi höndum í atkvæðagreiðslu um mál, sem varða kann líf, velferð og til- veru lítillar þjóðar, er þráir það mest að fá að lifa í friði og vilí ekki lána land sitt fyrir vígvöll í átökum stórvelda um ólík hagkerfi og heimsyfirráð. Þessar tvær myndir, aðskildar þunnum múrvegg, standa mér skýrastar fyrir augum þennan dag. 1 gegnum gasmekki horfa þær við mér í hvössu ljósi, óafmáanlegar, þrungnar ömurleik mikilla skapa - og bregða birtu yfir lýðræði íslendinga - í framkvæmd. Lengi munu þau í minnum hin djörfu og sönnu orð síra Jakobs Jónssonar, í útvarps- guðþjónustu þetta sama kvöld, 30. mars, sem m.a. lutu að því, að vant væri milli að sjá, hverjir væru sekari um siðlausa fram- komu og beitingu ranglætis, þingmennirnir innanhúss, er láta vildu land sitt falt og vógust á með ljótustu orðleppum tungunn- ar, eða strákalýðurinn, sem kastaði að þeim skarni af götunni. Þessi orð hins mæta kennimanns voru eins og egghvasst kastljós inn í blekkinga- moldviðrið, sem valdhafarnir létu þyrla út um byggðir landsins - yfir raunveruleg ætl- unarverk og sanna atburði dagsins. Þau komu stjórnarliðinu á óvart. Þau brugðu á það birtu. í glampa fárra orða sá þjóðin myndir, sem hún mun seint gleyma. Haligrímur Jónasson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.