Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 22
22 SÍÐA — ÞJOÐVILJINN Helgin 31. mars — 1. aprfl 1984 um helgina Sunnudaginn 1. apríl nk. frumsýnir Þjóðleikhúsið dagskrá sem heitir einfaldiega Tómasarkvöld. Dagskrá þessi er byggð á Ijóðum og æviatriðum Tómasar Guðmundssonar og er þar bæði upplestur og söngur, en lög eftir Sigfús Halldórsson og Gylfa Þ. Gíslason verða flutt. Herdís Þorvaldsdóttir hefur umsjón með dagskránni, en auk hennar koma fram þau Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, Edda Þórarinsdóttir, Guðrún Þ. Stephensen, Helgi Skúlason og Róbert Arnfinnsson; undirleikari á píanó er Bjarni Jónatanssson. Þetta er ijúf skemmtun, eins og menn geta ímyndað sér þegar Ijóð Tómasar eru annars vegar. gestir geta fengið létta máitíð á undan dagskránni og veitingar verða á borð boðnar meðan skemmtunin stendur. Aðgöngumiðaverð er kr. 325,- með máltíð, en kr. 150,- án máltíðarinnar. Dagskráin hefst stundvíslega kl. 20.30. Jasstónleikar á sunnudag: San Francisco blús band! Sunnudaginn 1. apríl heldur San Francisco blús bandið hljóm- leika í Sigtúni og er bandið hingað komið á vegum Jazzvakningar, klúbbs jazzáhugafólks. Félagar bandsins eru ekki alveg ókunnugir Islandi því gítarleikar- inn og söngvarinn Craig Horton kom hingað með Missisippi Delta blús bandinu fyrir tveimur árum og bassaleikarinn Larry James fyrir rúmu ári. Auk hans eru í bandinu Warren Cushenberry, Gene „Bird Legs“ Pittmann og Robert Denegal. Bændur athugið Framleiðum J.S. blásara á hagstæðu verði. Þeir sem áhuga hafa leggi inn pant- anir sem fyrst. Smíðum einnig vatns- túrbínur og tilheyrandi fyrir heimilis- rafstöðvar. Vélaverkstæði Jóns Sigurgeirssonar Árteigi sími 95-43538 S.-Þing. Eða eitt girnilegasta úrval af heimabökuð um kökum í bænum? Gerðu þö svo vel að heimsækja endur- nýjaðan og stórglæsilegan veitingasal okkar, — þótt ekki sé nema til að kynn- ast vinsæla setkróknum. Nýr matseðill! 4jóteL4lok Raudarárstig 18- Sími 28866 ÍS tónlist íslenska óperan: Rakarlnn i Sevllla eftir Rossini kl. 20 á laugardagskvöld. Örkin hans Nóa eftir Benjamin Britten, barnaópera, sýnd kl. 15 á sunnudag. Akranes: Sfmon H. ívarsson heldur gítartónleika í Fjölbrautaskólanum á sunnudag kl. 15. Á efnisskrá eru spænsk klassísk verk og flamenco-tónlist. Sigtún: San Francisco-blúsband heldur tón- leika á sunnudag á vegum Jassvakning- ar. leiklist Alþýðuleikhúsið: Vorkonur Alþýöuleikhússins sýna nýtt íslenskt verk, „Undir teppinu hennar ömmu“eftirNinu BjörkÁrnadótturkl. 21 á laugardagskvöld. Sýningar eru á Hótel Loftleiðum. Þjóðleikhúsið: Frumsýning á sunnudagskvöld kl. 20.30 á „Tómasarkvöldi" dagskrá byggöri á Ijóðum og æviatriðum Tómasar Guð- mundssonar. Skvaldur verður sýnt í 50. og allra síð- asta sinn kl. 20 á sunnudagskvöld. Amma þó! barnaleikrit eftir Olgu Guð- rúnu Árnadóttur sýnt kl. 15 á sunnudag. Sveyk í seinni heimsstyrjöldinni eftir Berthold Brecht kl. 20 á laugardags- kvöld. Leikfélag Reykjavíkur: Guð gaf mér eyra eftir Mark Meadoff kl. 20.30 á laugardagskvöld. Forsetaheimsóknin í allrasíðastasinn í Austurbæjarbíói kl. 23.30 á laugardags- kvöld. Hart í bak, eftir Jökul Jakobsson á sunnudagskvöld. 50. og síðasta sýning. Borgarnes: Dúfnaveislan eftir Halldór Laxness í leikstjórn Kára Halldórs. Síðasta sýning á laugardagskvöld í Samkomuhúsinu. Leikfélag Akureyrar: Um helgina eru síðustu sýningar á Súkkulaði handa Sliju eftir Ninu Björk Árnadóttur í Sjallanum á Akureyri. Leikurinn fjallar um iönverkakonuna Önnu (Sunna Borg) og unglingsdóttur hennar, Silju (Guðlaug María Bjarna- dóttir), átök þeirra og samskipti við fé- laga sína og ráðgjafa önnu (Edda V. Guðmundsdóttir). Alls taka 9 leikarar þátt í sýningunni. Auk þess flytja tón- listarmennirnir Inga og Ingimar Eydal tónlistina, sem er eftir Egil Ólafsson. Sýningin hlaut einróma lof gagnrýnenda og þótti leikstjórn Hauks Gunnarssonar og leikmynd Guðrúnar S. Haraldsdóttur njóta sín vel i hinu sérstæða andrúms- lofti Sjallans. Sýning verður í Sjallanum kl. 20.30 á sunnudagskvöld, og er það allra síðasta sýning á leikinn. Um næstu helgi frumsýnir svo LA barnaleikritið Kardlmommubæinn i leikstjórn Theo- dórs Júlíussonar. Mosfellssveit: Nú standa yfir sýningar á Saumastofu Kjartans Ragnarssonar sem Leikfélag Mosfellssveitar hefur sett upþ undir leik- stjórn Þórunnar Sigurðardóttur. 6. sýn- ing á leiknum var i gærkvöldi og 7. sýn- ing verður á sunnudagskvöldið í Hlé- garði. Þessi sýning hefur vakið athygli og enginn svikinn af að sjá hana. Hefjast sýningar kl. 21.00. Pantanir á miðum er hægt að gera í símum 66860, 66822 og 66195. myndlist Norræna húsið: Erla B. Axelsdóttir opnar sýningu sína á olíu og pastelmyndum í kjallara Norræna hússins í dag, laugardag. Sýningin stendur til 8. apríl og er opin kl. 14 - 22 um helgina og kl. 16 - 22 á virkum dögum, Mokka: Skúli sýnir 29 myndir unnar með vax- litum, aquarell-litum og vatnslitum. Gallerí Langbrók: Eva Vilhelmsdóttir sýnir skinnfatnað, Kolbrún Björgúlfsdóttir sýnir skartgripi úr leir og postulíni og Borghildur Óskars- dóttir sýnir keramik. Sýningin verður opnuð kl. 14 í dag laugardag og opin kl. 14-18 um helginaenkl. 12- 18ávirkum dögum. Llstmunahúsið: Sýning ( tilefni 65 ára afmælis Valtýs Péturssonar í Listmunahúsinu, Lækjar - g ötu. Á sýningunni 66 myndir unnar á árunum 1951-1957. Sýningin, sem er sölusýning er opin um helgina kl. 14 -18 og virka daga nema mánudaga kl. 10 - 18. Listasafn ASl: Sýning Vilhjálms G. Vilhjálmssonar, „Sjónarhorn'' er opin um helgina kl. 14 - 22 og kl. 16 - 22 virka daga. Ásmundarsalur: Sigurður Evþórsson sýnir málverk og teikningar (Ásmundarsal við Freyjugötu. Sýningin var oþnuð um síðustu helgi og stendur til 3. apríl. Hún er opin kl. 14 - 22. Hafnarborg: Gunnar Hjaltason gullsmiður, sýnir verk sín [ Hafnarborg, menningar- og lista- stofnun Hafnafjarðar Strandgötu 34, en húsiðgáfu hjónin Ingibjörg Sigurjóns- dóttir og Sverrir Magnússon Hafnar- fjarðarbæ á 75 ára kaupstaðarafmæli bæjarins. Þetta er fyrsta sýningin af fjór- um sem fyrirhugaðar eru fram á sumar. Sýning Gunnars Hjaltasonar er opin alla daga frá kl. 14 - 19 og er aðgangur ókeypis. KJarvalsstaðir: Rúrí, ívar Valgarðsson, Þór Vigfússon og Rúna Þorkelsdóttir sýna í báðum sölum Kjarvalsstaða um þessar mundir. Á sýningunni eru skúlþtúrar, teikningar og málverk. Hún er opin kl. 14 - 22 um helgar og kl. 10 - 22 virka daga nema mánudaga. Llstasafn fslands: Myndir eftir Edward Munch [ eigu safnsins, 17 að tölu, eru nú sýndar í Listasafninu. Safnið eropið laugardaga, sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 13.30- 16. Nýlistasafnlð: Helmut Federle, svissneskur listamaður sýnir teikningar og bókverk unnin á síð- ustu 5 árum í Nýlistasafninu viö Vatns- stíg. Federle er gestakennari við MH(, en hann á myndir á helstu söfnum í heima- landi sinu og í New Vork, þar sem hann hefur búið undanfarin ár. Bogasalur: I dag kl. 14 verður opnuð á vegum Germaníu sýning á verkum þýska lista- mannsins Gerdu Schmidt Panknin. Myndirnar hefur listamaðurinn málað á ferðum sínum um Island og Grænland á árunum 1980 og 1981. Sýningin verður opin daglega frá 14 -19 til 15. apríl. 1/3 út og afgangurinn á 7 mánuðum Verslunin CHiia Borgartúni 20. MINMM.MISJÚDIIK ÍSIFN/KIMH MI'SlM SIGFL'S SIGURHJARTAUSON Minningarkortin eru tilsölu ú eftirtöldurn stöðum: Bókubúð Múls og menningar Skrifstofu A Iþýðubundulagsins Skrifstofu Pjóðviljans Munið söfnunarútak í Sigfúsarsjóð vegnu flokksmiðstöðvar Alþýðubandalagsins ,rrnif*r étIIJINQWWaw ■ -• ...... NÚ líður mérvetl \ U.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.