Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 17
Helgin 31. mars - 1. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 ísfirðingar: Reisa tónlistarskóla Æskja liðveislu Framundan er mikið átak við byggingu tónlistarskólahúss á Isa- firði. Þessi gamli draumur er nú að verða að veruleika. Arkitektar eru nú að vinna að teikningum og von- ast er til að hægt verði að hefja framkvæmdir nú í vor. Félag um byggingu fyrir tón- listarskóla á ísafirði hefir verið stofnað og hefir unnið að ýmis- konar fjáröflun s.s. kabarettsýn- ingum, kökubasar, kaffisölu og torgsölu, en stærri fjáraflanir verða að koma til. Góður og gegn ísfirðingur stakk' upp á því að leitað yrði til brott- fluttra ísfirðinga,sagðist hann oft hafa orðið þess var hve mikinn hlý- hug þeir bæru til heimahaga sinna. Vitað er að út um allt land eru ís- firðingar sem vilja leggja þessu málefni lið. Hægt er að senda pen- inga inn á ávísanareikning við úti- bú Landsbanka íslands á ísafirði nr. 21550 á nafn Bygginarsjóðs Tónlistarskóla ísafjarðarc/o. Póst- hólf 149, ísafirði. Hingað til hefir kennsla í þessum tæplega tvö hundruð nemenda skóla farið fram á 12-15 stöðum í bænum, er ólíklegt að kennarar endist mikið lengur við að kenna við slíkar aðstæður. Starf og umfang skólans er án alls efa fyrst og fremst að þakka eldhuganum Ragnari H. Ragnar og konu hans Sigríði, en þau hafa starfað við skólann frá árinu 1948, og hefir heimili þeirra verið undir- lagt jafnt helga daga sem virka, vegna skólahaldsins. I frétt frá stjórn byggingarsjóðs Tónlistarskólans segir að með sam- einuðu átaki megi koma þessu mikla menningarmáli í höfn og gera ísafjörð að stærri og betri bæ. -GFr Sykur Hveiti Smjörlíki/Ljóma Kakó/Holland Flórsykur Púöursykur Ijós ogdökkur Rúsínur Kúrenur Döölur pressaðar Lyftiduft/Royal Kókosmjöl/Júbó Súkkulaðihjúpur /Opal Mikið úrval af kökuskrauti og kryddi Lausar stöður hjá Reykjavíkurborg Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. Deildarfulltrúa hjá Trésmiðju Reykjavíkurborgar. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi unnið við tölvur. Upplýsingar veitir rekstrarstjóri Trésmiðju í síma 18000. Starfsfólk í heimilisþjónustu aldraðra hjá félagsmálastofnun. Vinnutími eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir for- stöðukona í síma 18800. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00 mánudaginn 9. apríl 1984. ÚTBOÐ Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í Bláfjallaveg. Helstu magntölur eru: Lengd 14,0km Fylling og burðarlag 108.000 m3 Verkinu skal lokið 30. okt. 1984. Útboðsgögn verða afhent hjá aðalgjaldkera Vega- gerðar ríkisins, Borgartúni 5, 195 Reykjavík, frá og með 2. apríl 1984 og kosta kr. 1.000.00. Skila skal tilboði í lokuðu umslagi merktu nafni útboðs til Vega- gerðar ríkisins, Borgartúni 7, 195 Reykjavík fyrir kl. 14.00 16. apríl 1984. Reykjavík í mars 1984. Vegamálastjóri. Frá Menntamálaráðuneyti íslands um styrkveitingar árið 1984. Samkvæmt fjárveitingu á fjárlögum verða á árinu veittir eftirfarandi styrkir úr Menningarsjóði íslánds: Útgáfa tónverka. Til útgáfu íslenskra tónverka verða veittir einn eða fleiri styrkir en heildarupphæðin er kr. 35.000.00. Um- sóknum skulu fylgja upplýsingar um tónverk þau sem áformað er að gefa út. Dvalarstyrkur llstamanna. Veittir verða 8 styrkir að upphæð kr. 20.000.00 hver. Styrkir þessir eru ætlaðir listamönnum sem hyggjast dveljast erlendis um a.m.k. tveggja mánaða skeið og vinna þar að listgrein sinni. Umsóknum skulu fylgja nákvæmar upplýsingar um fyrirhugaða dvöl. Þeir.sem ekki hafa fengið sams konar styrk frá Menntamálaráði síðastliðin 5 ár ganga öðru jöfnu fyrir við úthlutun. Styrkur til fræðimanna. Styrkur þessi er til stuðnings þeim sem stunda fræði- störf og náttúrufræðirannsóknir. Samkvæmt ákvörð- un Alþingis er heildarupphæð kr. 30.000.00. Umsókn- um skulu fylgja upplýsingar um þau fræðiverkefni sem unnið er að. Umsóknir um framangreinda styrki skulu hafa borist Menntamálaráði Skálholtsstíg 7 Reykjavík fyrir 27. apríl nk.. Nauðsynlegt er að nafnnúmer fylgi umsókn- inni. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Menningarsjóðs að Skálholtsstíg 7 í Reykjavík. ÓDÝRARI barnaföt bleyjur leikföng ,VCa' lVjp^ seWort' •s' Dúllci Snorrabraut

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.