Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 13
Helgin 31. mars — 1. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Altarisganga í Dómkirkjunni 1928 Mynd þessi birtist í blaðinu á sunnudaginn. Sögðum við að hún væri af sr. Bjarna Jónssyni sem erekki rétt. Myndin er af sr. Friðriki Hall- grímssyni í Dómkirkjunni. Hún er tekin við altarisgöngu vorið1928. Þjóðviljinnfékkí vikunni ýmsar upplýsingar um þessa mynd og um gaml- ar fermingarmyndir úr Frí- kirkjunni í Reykjavík sem einnig voru í blaðinu á sunnudaginn. Stúlkan sem heldur í hönd sr. Friðriks á myndinni er Stella Niel- sen. Hávaxin stúlka sem er þriðja frá vinstri heitir Hjördís Jónsdóttir og vinnur nú í Radíóbúðinni. Stúlkan sem er fremst í röðinni til hægri heitir Hulda og sú aftasta Valgerður. Þjóðviljinn hafði samband við Stellu Nielsen, sem stendur hjá prestinum. Hún er nú nýlega orðin sjötug, vinnur í ísbirninum og hef- ur gert það í 10 ár. Áður vann hún ýmis störf, t.d. við þjónustu í matar- og kaffiveislum á Hótel ís- landi, Hótel Borg, Bárunni, Al- þýðuhúsinu og víðar. Hún á eina dóttur, dótturdóttur og lang- ömmubarn. „Við vorum á 15. aldursári þegar við vorum fermdar. Myndin er frá altarisgöngunni sem ég held að hafi verið þriðjudaginn 30. apríl 1928. Fermingin sjálf var sunnudaginn 28. apríl. Helgi Helgason í Safna- húsinu tók myndina og gaf hana út á póstkorti. Á myndinni erum við allar í fermingarkjólunum okkar sem ein- ungis voru notaðir við ferminguna og altarisgönguna. Ég er aftur sú eina sem er með hárið eins og það var í fermingunni. Þá höfðum við það slegið og breiða silkislaufu í því. Stelpurnar voru með fléttað hárið við altarisgönguna og var ég mjög ósátt við að vera öðruvísi en þær og vildi breyta því. Áður en við gengum inn í kirkjuna bað ég mömmu um að lofa mér að flétta hárið til að ég væri eins og hinar. Þá kom sr. Friðrik þar að og óskaði endilega eftir að ég væri svona, það tæki sig betur út á myndinni. Á þessum árum fengu stúlkur hvíta fermingarkjóla og einnig annan kjól sem var kallaður eftir- fermingarkjóll. Um leið og komið var úr kirkjunni var skipt um kjól. Minn fermingarkjóll var geymdur eins og dýrgripur upp í skáp í mörg herrans ár.“ Stella sagði okkur að fátækari stúlkur hefður á þessum árum margar hverjar haft miklar áhyggjur af því hvernig fermingar- föt þær myndu eignast. Sr. Friðrik Hallgrímsson var 2. prestur við Dómkirkjuna í Reykja- vík árin 1925-1945 og dómprófast- ur 1941-1945. Sr. Bjarni Jónsson var skipaður 2. prestur við Dóm- kirkjuna 1910, dómkirkjuprestur 1924, dómprófastur 1945. Lausn fékk hann frá þessum störfum árið 1951. Sr. Bjarni varð vígslubiskup 1937 og sinnti því til æviloka árið 1965. Fermingarmyndir úr Fríkirkj- unni í Reykjavík sem komu í blað- inu um síðustu helgi voru einnig frá árinu 1928. Þær eru frá haustferm- ingu það ár. Soffía Eygló Jónsdótt- ir úr Kópavogi þekkti systur sína á henni. Hún situr fremst á myndinni og hét Valgerður Ósk Jónsdóttir. Hún lést í mars næsta ár, 14 ára gömul. Fleiri einstaklinga á mynd- unum þekkjum við ekki enn sem komið er. -jP Afgreiðslu- og sölustarf Óskum eftir aö ráöa ungan frískan starfs- mann til afgreiðslu- og sölustarfa í raftækja- verslun. Leitað er aö tæknilega sinnuðum manni eöa manni meö menntun á sviöi rafiðnaöar. Umsóknareyðublöð hjá starfsmannastjóra. Umsóknarfrestur til 6. apríl n.k. SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALO Tilkynning til Ci skattgreiðenda Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða reiknaðir að kvöldi föstudagsins 6. apríl n.k. Vinsam- legast gerið skil fyrir þann tíma. Fjármálaráðuneytið, 27. mars 1984 Svæðisstjórn Suðurlands um málefni fatlaðra Auglýsir lausar tvær stöður við meðferðarheimilið Lambhaga Selfossi, þroskaþjálfunarmenntun æskileg. Nánari upplýsingarveitir Kristín Guðmunds- dóttir forstöðukona, sími 99-1869. Umsóknir sendist til skrifstofu Svæðisstjórnar Suður- lands, Skólavöllum 1, Selfossi fyrir 10. apríl næstkomandi. Svæðisstjórn Suðurlands Sr. Friðrlk Hallgrímsson heldur í hönd Stellu Nielsen. BYGGUNG REYKJAVIK Aðalfundur Byggung Reykjavík heldur aöalfund aö Hótel Sögu Súlnasal mánudaginn 2. apríl, kl. 20.30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. I skipin í ferðaiögin kÁI í sumarhúsin ■ Á afskekkta staði ALDREIAFTUR MTÓLKURSKORTUR. G-MTÓLKIN GEVMISr VELOGLENGI en það er einmitt helsti kostur hennar þegar kaupa þarf mjólkurbirgðir tíl langs tíma - um borð í skipín, á afskekkta staði sem einangrast oft hluta úr árinu vegna samgönguerfiðleíka, eða í sumarhúsin. Með þetta í huga henta eínmítt eins lítra umbúðimar einkar vel. "W

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.