Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 27
Helgin 31. mars - 1. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 27
Rannsóknarnefnd sjóslysa prófaði sjálfvirka
þrýstibúnaðinn á íslandsmiðum fyrir 5 árum
Nákvæmlega
sama verkfærið
segir Þórhallur Halldórsson um þrýsti-
búnaðinn í Olsen-sleppibúnaðinum
Sá sjálfvirki þrýstibúnaður við
losun gúmbjörgunarbáta sem
Vélsmiðja Ol. Olsen í Njarðvík-
inn kynnti á dögunum og Siglinga-
málastofnun hefur viðurkennt
er ekki alveg nýr af nálinni hér-
lendis. Á árunum 1979 og 1980 lét
Rannsóknarnefnd sjóslysa gera
athuganir á samskonar þrýsti-
búnaði um borð í tveimur vertíð-
arbátum, Þórunni Sveinsdóttur
VE, og Orra ÍS. Var markmið
athugarinnar að kanna hvort
þessi þrýstibúnaður þyldi ágjöf
og íslenska vetrarveðráttu, en al-
þjóðlega siglingamálastofnunin
IMCO hafði samþykkt þennan
sleppibúnað í skip þegar árið
1974, en siglingamálastofnunin
hérlendis vildi ekki viðurkenna
búnaðinn.
„Jú, þetta er nákvæmlega sama
verkfærið og við vorum að gera
athuganir með á sínum tíma
nema hvað núna er búið að setja
yfir þrýstibúnaðinn sérstakan
kassa til að tryggja að þetta opn-
ist ekki. í okkar athugunum kom
aðeins einu sinni fyrir að sleppi-
búnaðurinn opnaðist á þilfari, en
það var í einu mesta fárviðri sem
hefur geisað hér í lengri tíma“,
sagði Þórhallur Halldórsson
framkvæmdastjóri Rannsóknar-
nefndar sjóslysa í samtali í gær.
Gúmbátarnir blási
strax upp
Að sögn Þórhalls er nú unnið
að endurskoðun á reglugerð fyrir
sjálfvirkan sleppibúnað um borð
í fiskiskipum. Leggur nefndin til
að öll skip upp að 200 tonnum
verði með sjálfvirka búnaðinn frá
Olsen eða Sigmundi, en öll stærri
skip verði skylduð til að hafa
sjálfvirkan þrýstibúnað í minnst
einum af þeim björgunarbátum
sem ekki er í gálga.
Nokkrar deilur eru uppi um
hvort björgunarbátarnir eigi að
blása upp um leið og þeir skjótast
frá skipum. „Nefndin leggur
Sjálfvlrkur þrýstibúnaður fyrir gúmbjörgunarbáta um borð í Þórunni
Sveinsdóttur VE fyrir 5 árum síðan.
mikla áherslu á að svo verði því
við höfum dæmi um það að menn
hafi farist við að draga fangalínu
bátanna út, en línan er 25 m löng
og bátarnir opnast ekki fyrr en á
síðustu fetunum. Menn benda á
að hætta sé á að bátarnir eyði-
leggist við það að opnast strax en
menn verða að athuga að nú eru
bátarnir komnir í gálga út í kant
og ekkert á að vera fyrir þeim. Ég
vil ekki standa að ákvörðun um
annað en að bátarnir opnist um
leið, en hvað verður það veit ég
ekki“, sagði Þórhallur Halldórs-
son.
íslandsmótið í handknattleik
Forskot FH-
inga breikkar
Menntamálaráðherra
sáttur við „frið“
kj ar nasprengj unnar
FH náði í gærkvöldi fjögurra
stiga forystu í úrslitakeponinni um
Islandsmeistaratitilinn í hand-
knattleik með sigri á St örnunni,
32-25. Leikið var í Digranesi í Kóp-
avogi og á undan unnu Valsmenn
Víking 26-22.
Helgi þarf
jafntefli
Skákmótinu í Neskaupstað lýkur
á sunnudag og verður síðasta um-
ferðin tefld kl. 10 til 15. Úrslit úr
10. og næstsíðustu umferð urðu
þau að jafntefli varð hjá Guð-
mundi og Wedberg, Helga og
Schússler, Knezevic og McCam-
bridge, en í bið fóru skákir Mar-
geirs og Jóhanns, Róberts og
Lombardys. Biðskákir verða tefld-
ar kl. 14 í dag.
Helgi teflir við Wedberg á
sunnudag og þarf jafntefli til að ná
öðrum áfanga að stórmeistaratitli.
ídagkl. 15.15 teflir Guðmundur
Sigurjónsson almennt fjöltefli í Eg-
ilsbúð.
A.
Valur var ávallt skárri aðilinn gegn
Viggó-lausum Víkingum og var 11-
10 fyrir f hléi. Valur náði fimm
marka forystu fljótlega í seinni
hálfleik og sigrinum varð ekki ógn-
að eftir það. Júlíus og Jakob voru
bestir Valsmanna en Sigurður var
áberandi bestur Víkinga. Júlíus
skoraði 7 mörk fyrir Val, Stefán 7
og Jakob 4. Sigurður skoraði 7 fyrir
Víking, Ólafur 4 og Hilmar 3.
Stjarnan kom mjög á óvart gegn
FH og leiddi 15-11 fyrir hálfleik og
jafnaði síðan 16-16. Jafnræði rfkti
þar til á lokamínútunum að FH
komst þremur mörkum yfir og við
það sprungu baráttuglaðir Garð-
bæingarnir. Kristján og Pálmi voru
bestir FH-inga en Gunnar var yfir-
burðamaður hjá Stjörnunni. Krist-
ján skoraði 9 marka FH, Pálmi 7,
Atli og Þorgils Óttar 5. Gunnar
gerði 9 mörk fyrir Stjörnuna og
Hermundur 4. FH hefur því 8 stig,
Víkingur 4, Valur 4 en Stjarnan-
ekkert.
Þór Vestmannaeyj um þarf að-
eins tvö stig úr átta elikjum til að
komast í 1. deild eftir sigur á
Gróttu, 26-25, á Seltjarnarnesi í
gærkvöldi. Breiðablik er sömu-
leiðis komið með annan fótinn í
fyrstu deild, lék stórvel gegn Fram
og sigraði 26-22.
-Frosti/VS
Síðastliðinn fimmtudag var fram
haldið umræðum í sameinuðu
þingi um þingsályktunartillögu
Guðrúnar Agnarsdóttur og þing-
manna úr öllum flokkum um
friðarfræðslu í skólum. í umræð-
unum lýsti Ragnhildur Helgadótt-
ir, menntamálaráherra yfir því, að
hún væri tillögunni andvíg. Mun
sumum hafa komið sú afstaða ráð-
herrans á óvart, öðrum ekki.
Ráðherrann kvað viðhorf flutn-
ingsmanna tillögunnar byggjast á
mismunandi forsendum og vera af
ýmsum toga. Markmiðin væru því
óljós og ekki hægt að samþykkja
slíka tillögu. Sagðist ekki telja að
skólar ættu að hafa með höndum
fræðslu um vopnabúnað og óhæfa
að fara inn í skóla með mál, sem
orkuðu tvímælis í pólitískum
deilum.
Guðrún Agnarsdóttir þakkaði
menntamálaráðherra fyrir að lýsa
þó yfir skoðun sinni á tillögunni en
afstaða ráðherrans ylli sér von-
brigðum. Eftirtektarvert væri að í
ræðu sinni hefði Ragnhildur Helg-
adóttir ekki vikið einu orði að
kjarnorkuógninni, sem mannkynið
óttaðist þó meira en allt annað.
Hún virðist sátt við „frið“ kjarn-
orkusprengjunnar. Besta vörnin
gegn óttanum er þekkingin.
Hvernig eiga unglingar að mynda
sér skoðun ef ekki má fjalla um
deilumál?, spurði Guðrún Agnars-
dóttir. Vonandi endurskoðar
menntamálaráðherra þessa af-
stöðu sína.
Jón Baldvin Hannibalsson tók
einnig til máls, talaði lengi og fór
með himinskautum vítt og breitt
um heimsbyggðina. Vék ræðumað-
ur m.a. að Rússum, sem þekktir
væru að því, að gera af sér allar þær
varnmir og skammir, sem upphugs-
anlegar væru í mannlegu samfé-
lagi. Þess er ekki hægt að krefjast
af neinum kennara að hann veiti
börnum og unglingum fræðslu um
hin stærstu, pólitísku ágreinings-
mál okkar tíma, sagði Jón Baldvin.
Steingrímur J. Sigfússon lýsti
yfir fylgi sínu við tillöguna og kvað
andstöðu við hana vera sér
óskiljanlega. Kjarni málsins væri
sá, sagði Steingrímur, að um tvær
leiðir er að velja: leið vopna og
hótana, hernaðarbandalögin, eða
samkomulag um afvopnun. Rakti
Steingrímur ýmis dæmi um sam-
skipti þjóða og þegna, útávið og
innbyrðis og benti á afleiðingarnar
þess hvor leiðin hefði verið valin:
leið átaka og ofbeldis eða leið
friðsamlegs samkomulags.
Byggingarsamvinnufélagið
Aðalból
í Reykjavík auglýsir til úthlutunar í nýjum byggingar-
flokki 19 íbúðir. íbúðirnar eru í sambýlis- og raðhúsum
í nýjum miðbæ í Kringlumýri. Umsóknir skulu berast
félaginu í síðasta lagi 13. apríl nk.
Allar upplýsingar á skrifstofu félagsins, Lágmúla 7 í
Reykjavík, símar 82966 og 33699.
Athugið að B.S.A.B. er öllum opið.
Stjórnin.
Halldór Blöndal flutti skringi-
lega ræðu en fór með gott kvæði
eftir Grím Thomsen.
Árni Johnsen féll frá orðinu - og
eru út af fyrir sig tíðindi.
- mhg.
Esther Jónsdóttir,
varaform. Sóknar:
F y rir-
spurn
til samn-
inga-
nefndar
Ég er búin að vera í yfir 25 ár í
Sókn og þykist þekkja hag Sókn-
arfélaga. Félagar mínir eru nú þeir
einu sem enga kauphækkun fá um
næstu mánaðamót. Ég skora á
samninganefndina að gera eitthvað
til þess að semja. Hún hefur haldið
einn einnar klukkustundar langan
samningafund síðan hún tók við.
Formaður nefndarinnar hefur að
því er mér hefur verið sagt í fríi
síðan hann tók við. Ég hlýt að
spyrja hvað er maðurinn að gera?
Esther Jónsdóttir,
varaformaður
Starfsm. félagsins Sóknar.