Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 31.03.1984, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 31: mars - 1. apnl 1984 L IANDSVIRKJUN STAÐA REKSTRARSTJÓRA Staða rekstrarstjóra Landsvirkjunar er laus til um- sóknar. Staðan veitist frá 1. júlí 1984 að telja og er umsóknarfrestur til 1. maí nk. Umsóknir sendist for- stjóra Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 108 Reykja- vík. Umsókn skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf umsækjanda auk annarra upplýsinga sem hann telur máli skipta. 31. mars 1984 LANDSVIRKJUN dægurmál E IANDSVIRKJIIN ÚTBOÐ Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í byggingu 4. áfanga Kvíslaveitu, í samræmi við útboðsgögn 5205. Miðað er við að Ijúka verkinu á tveimur árum (1984 og 1985). Helstu magntölur áætlast þessar: Skurðgröftur Stíflufylling Vegafylling Borun vegna þéttunar Efjudæling Einnig er óskað eftir tilboðum í undirbúning á stíflu- grunnum við Þórisvatn í samræmi við útboðsgögn 1501. Því verki skal Ijúka á þessu ári. Helstu magntölur áætlast þessar: Gröftur Borun vegna þéttunar Efjudæling Útboðsgögn 5205 vegna 4. áfanga Kvíslaveitu verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík, frá og með miðvikudeginum 4. apríl 1984 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 1.000 fyrir fyrsta eintak en kr. 300 fyrir hvert eintak þar til viö- bótar. Útboðsgögn 1501 vegna stíflugrunna við Þórisvatn verða afhent á sama stað frá og með mánudeginum 9. apríl 1984 gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 500 fyrir fyrsta eintak en kr. 150 fyrir hvert eintak þar til viðbótar. Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar í Reykjavík fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 25. apríl 1984, en sama dag kl. 15.00 verða þau opnuð á Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, að viðstöddum bjóð- endum. Reykjavík, 31. mars 1984 LANDSVIRKJUN. 1.050.000 m3 150.000 m3 80.000 m3 1.400 m 55 m3 64.000 m3 3.200 m 500 m3 AUGLYSING um aðalskoðun bifreiða og bifhjóla í Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppum og á Seltjarnar- nesi 1984. Skoðun fer fram sem hér segir: Kjósar-, Kjalarnes- og Mosfellshreppur: Mánudagur 9. apríl þriðjudagur 10. apríl miðvikudagur 11. apríl fimmtudagur 12. apríl Skoðun fer fram við Hlégarð í Mosfellshreppi. Seltjarnarnes: Mánudagur 16. apríl þriðjudagur 17. apríl miðvikudagur 18. apríl Skoðun fer fram við félagsheimilið á Seltjarnarnesi. Skoðað verðurfrá kl. 8.15-12.00 og 13.00-16.00 alla framantalda daga á báðum skoðunarstöðunum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir því, að bifreiðagjöld séu greidd, að vátrygging fyrir hverja bifreið sé í gildi og að bifreiðin hafi verið Ijósa- stillt eftir 1. ágúst sl. Athygli skal vakin á því að skrán- ingarnúmer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma ökutæki sínu til skoðun- ar á auglýstum tíma, verður hann látinn sæta sekt- um samkvæmt umferðarlögum og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til þess næst. Þetta tilkynnist öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu, Bæjarfógetinn á Sel- tjarnarnesi 29. mars 1984. Einar Ingimundarson. Dálítið popp Af hverju einkennist popp- bransinn af jafnmikilli yfirborðs- mennsku og raun ber vitni hér á landi sem annarstaðar? Það má segja að engilsaxnesk áhrif ráði ríkjum hjá popp-grúppum ung- um íslenskum, bæði tón- og tískulega, og væri það vel ef að- eins blessunarlegri fyrirmynd og inniviðameiri sætu í fyrirrúmi en þessi linnulausu tískudauðyfli sem virðast eiga greiða leið uppá pallborðið hjá ungu fólki í dag. Það er sama hvað í eyrum VONBRÍGÐÍ í BORGINNI Vonbrigði standa fyrir tónleikum/balli á Hótel Borg í kvöld, laugardagskvöldið 31. mars. Vonbrigði hafa nú verið starfandi í 3 ár og er merkilegt hve margir sjá enn fyrir sér ungu hljómsveitina með lagið Reykja- vík ó Reykjavík í myndinni Rokk í Reykjavík, en tónlist Vonbrigða hefur að sjálfsögðu þróast á þeim tíma sem liðinn er frá því sú mynd var tekin upp. Þeir gagnrýnendur sem sótt hafa tónleika Vonbrigða að undanförnu hafa lýst aðdáun sinni á þessari þróun og þeim þéttleika sem tónlistin býr yfir. Tvær aðrar hljómsveitir koma einnig fram á þessum tónleikum, Lojpippoa og Spojsippus, sem hafa verið starfandi í áratug, en aðeins spilað á örfáum tónleik- um. Lojpippos og Spojsippus eru aðeins tveir menn; Tóti sér um hljómgervlana og Sveppurinn áslátt. Svart hvítur draumur er svo þriðja' hljómsveitin sem koma mun fram á hljómleikum/balli þessu. Borgin verður opnuð kl. 9 - uppákomur byrja um kl. 11 - ballið stendur til kl. 3. glymur, allt virkar það jafn flatt og dautt þegar upp er staðið. Gildir par einu um hvað er að ræða, Bara-flokk, Mógó-Hómó, Dúkkulísur o.s.frv.. Eiga þessar sveitir sammerkt ásamt ótal öðrum að spila inni- haldslítið ómelódískt diskópopp, öllu er fleytt áfram á yfirborðs- mennskunni, haldið er fast í tóm- an titil og púff! - nafnið er dautt fyrir næsta sauðburð. Sú listsköpun sem á hvað sterk- astan máta höfðar til fólks er án efa tónlistin.’ En til þess að hún hrífi þarf hún að skapast af ein- lægni, verulegri þörf. Undirrituð skapp að gamni í Saf- arí fyrir rúmlega viku síðan og hlýddi þar á spilverk þriggja popp-sveita, þær Dúkkulísur, Djellísystur og hljómsveitina Dá. Ekki get ég logið því til að and- rýmd og kraftur hafi svifið yfir vötnum oglítiðfórfyrireinlægn- inni langþráðu! Þar riðu þær dúkkur fyrstar á vaðið með fremur fátt gott sér til framdráttar og minna en Iítið í pokahorninu. Má ég biðja um gömlu góðu húmorelsku Grýl- urnar. Þá tróðu upp allt í plati systur úr djellí og þóttu öllu líf- legri og skemmtilegri, reyndu ekki að segja neitt af viti og gerðu það vel. Söngkonan er krútt. Endahnútinn batt dágóð grúppa, ný af nálinni og tvímæla- laust sú andríkasta þetta kvöld. Gott nafn Dá. Frumtónar bassa og trumba seiddu fram ryþma okkar magíska eðlis í takt við ein- faldleikann og naflinn tók ósjálf- rátt að dansa. Hanna Steina er indversk slanga á sviðinu og syng- ur með höndunum, systir Diddú- ar og sem hún að springa af mús- ík. Mættum við fá meira að heyra. Cj) „Pax vobis“ fœr viðurkenningu í Finnlandi Fyrir skömmu var haldin sam- norræn popphljómlistarhátíð í Finnlandi og fengu fulltrúar ís- lands, hljómsveitin Pax Vobis, sér- staka viðurkenningu fyrir frammi- stöðu sína. Aðeins ein önnur hljómsveit hlaut slíka viðurkenn- ingu, sænska rokkhljómsveit, En Pax Vobis mun hafa þótt nýstárleg- ust og öruggust í sinni músik. Við landar þeirra munum innan stuttr- ar tíðar geta hlýtt á afurðir þeirra drengja, því að á hverri stundu kemur út hljómplata með félögum í „Friði yðar“. A.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.