Þjóðviljinn - 31.03.1984, Síða 28
Helgin 31. mars — 1. apríl 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Hvernig eru skattrannsóknarmenn í stakk búnir
að mœta tölvuvœðingu í bókhaldi fyrirtœkja
og margvíslegum möguleikum á misferli?
Þurfum að geta
sínnt þessu betur
segir Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri
- Við höfum reynt að fylgjast
með þessu eins og við höfum getað,
en það vantar þar talsvert uppá.
Við þyrftum að hafa meiri mann-
skap í því að fylgjast með því sem er
að gerast á markaðnum, fylgjast
bæði með þeim forritum sem verið
er að selja og þeim sem verið er að
búa til, sagði Garðar Valdimarsson
skattrannsóknarstjóri í samtali við
Þjóðviljann aðspurður um hvernig
starfsmenn embættisins væru í
stakk búnir að mæta þeirri tækni
sem nú hellist yfir við tölvubókhald
fyrirtækja og býður uppá margvís-
legt misferli eins og nýlegt dæmi
hefur sannað.
- Ég vona að þetta mál gefi til-
efni til þess að menn horfist í augu
við það að við þurfum að hafa að-
gang að þessari nýju tækni hvort
sem það er með sérlærðum
mönnum hér hjá embættinu eða
með aðgangi að þeim annars staðar
í kerfinu.
Hefur ríkið möguleika á því að
keppa við vinnumarkaðinn um
þessa sérlærðu menn í tölvubók-
haldi?
- í>að hefur ekki verið. Mönnum
sem hafa góða bókhalds-, skatta-
og tölvukunnáttu eru boðin miklu
hærri laun á almenna markaðnum.
Það er borin von að við getum
haldið þeim.
Hvernig er eftirliti með tölvu-
svindli háttað erlendis?
Tölvusvik hafa verið vaxandi
vandamál sem menn hafa brugðist
við með ýmsum hætti. í Bandaríkj-
unum fara skatteftirlitsmenn í fyr-
irtæki og fá aðgang að tölvudisk-
unum til að prófa þá, annað
hvort í tölvu fyrirtækisins eða tölvu
Garðar Valdimarsson: Það kostar
mannskap og meiri peninga að fylgj-
ast með tölvuforritum i bókhalds-
kerfum.
skattsins. í Danmörku var fyrir
nokkrum árum settur á stofn sér-
stakur 5 manna hópur kerfisfræð-
inga hjá danskaTolleftirlitinu, sem
fer með söluskattseftirlit. Þeir fóru
í fyrirtæki og prófuðu forritin og þá
kom í ljós að víða skiluðu þau ekki
því sem til var ætlast samkvæmt
lögum.
Menn voru með ýmsar skýring-
ar, annað hvort að þetta væri óvart
og misskilningur eða þeir hreinlega
játuðu að hafa unnið forritin í þess-
um tilgangi.
Því má bæta við að flestir í hópn-
um voru hættir innan tveggja ára,
höfðu verið keyptir yfir í einkageir-
ann. Þeir náðu engu að síður mikl-
um árangri og starfið heldur áfram
með svipuðum hætti.
Mun ykkar starf hér ekki fara að
þróast frekar út á þessar brautir?
- Það segir sig sjálft að við erum
farin að skoða bókhald sem er
mikið meira fært í tölvu en áður. Þá
hafa fyrirtæki verið að selja undan-
farin ár ákveðin bókhaldskerfi og
við þurfum að geta sinnt því betur
að fylgjast með þessum forritum og
gera okkar athugasemdir þar sem
það á við. Þetta kostar allt meiri
mannskap og peninga.
Grunar þig að það sé töluvert um
tölvumisferli í bókhaldi hér?
- Ég þori ekki að fullyrða um
það. Eg á ekki von á að það sé
mikið um að það sé beinlínis forrit-
að inn í tölvurnar, við áttum kann-
ski ekki von á-þessu. En einmitt
þetta að kanna forritin er lítt kann-
að svið hjá okkur.
Hvernig fer svona bókhalds-
svindl fram eins og þið komuð upp
um?
- Ég vil ekki fara út í það mál
sérstaklega þar sem ennþá er unnið
að rannsókn þess, hvaða aðilar
hafa komið þarna nálægt og hver
ábyrgð þeirra verður.
Segir það sig ekki sjálft að þegar
einn aðili er kominn svona langt
með þessa hluti að líklega séu víðar
pottur brotinn?
- Það er erfitt að fullyrða um það
en ég held að þá sé samt ástæða til
að leggja meiri áherslu á að við
getum sinnt þessum málum, sagði
Garðar Valdimarsson skatt-
rannsóknarstjóri. -lg/-ÁI.
Tölvusvlk hafa hvarvetna verið vaxandl vandamál og brugðlst hefur verið
við með ýmsum hætti.
Samtök til verndar Fjalakettinum:
Stofnfundur á
sunnudag á HB
Fundarstjóri er Ólafur B. Thors
Nk. sunnudag, 1. aprfl verður haldinn á Hótel Borg stofnfundur sam-
taka til að stuðla að verndun Fjalakattarins. Fundurinn hefst kl. 16 og er
Ólafur B. Thors forstjóri og fyrrum borgarfulltrúi í Reykjavík fundar-
stjóri.
Það er 5 manna undirbúnings-
nefnd sem til fundarins boðar, en
hún er úr hópi 59 menninganna
sem fyrir skömmu rituðu borgar-
stjórn og menntamálaráðherra
Ellefu friðarhreyfingar sameinast
Friðarvika á páskum
Fjölbreytt dagskrá í Norrœna húsinu 14.-23. apríl
Ellefu friðarhreyfíngar hér á landi hafa ákveðið að efna til mikillar
friðarviku á páskum, dagana 14.-23. aprfl nk. Hefur verið unnið að
undirbúningi þessara aðgerða undanfarna tvo mánuði og er nú verið að
smíða dagskrá þar seih m.a. verða tónleikar. myndlistarsýningar, bók-
menntakynningar, umræðurfundir og fleira. Mun dagskrá friðarvikunn-
ar fara fram í Norræna húsinu og verður nánar kynnt síðar.
Ávarp friðarvikunnar er svo-
hljóðandi: „Við skorum á Banda-
ríkin og Sovétríkin og önnur kjarn-
orkuveldi að gera samkomulag um
stöðvun kjarnorkuvígbúnaðar og
hefja kerfisbundna afvopnun.
Meðan unnið er að slíku samkomu-
lagi ætti hvergi að koma fyrir
kjarnorkuvopnum eða tækjum
tengdum þeim.
Slíkt samkomulag gæti orðið
fyrsta skrefið til allsherjar afvopn-
unar, sem er lokatakmark friðar-
baráttu“.
Samtökin sem starfað hafa að
undirbúningi friðarvikunnar eru
þessi: Friðarsamtök listamanna,
Friðarhreyfing íslenskra kvenna,
Friðarhópur kirkjunnar, Samtök
lækna gegn kjarnorkuvá, Samtök
eðlisfræðinga gegn kjarnorkuvá,
Friðarhreyfing framhaldsskóla-
nema, Hin óháða friðarhreyfing
framhaldsskólanema, Friðarhópur
einstæðra foreldra, Samtök her-
stöðvarandstæðinga, Samtök um
friðaruppeldi og Friðarhópur
fóstra. Oðrum samtökum sem geta
fallist á ofangreint ávarp friðarvik-
unnar sem samþykkt var á fundi
undirbúningshóps 28. mars sl. og
sem starfa að friðarmálum verður
gefinn kostur á aðild að friðarvik-
unni. Segir í frétt frá hópnum að sú
stuðningsaðild yrði í formi undir-
skriftar ávarpsins og yfirlýsingar
um stuðning við friðarvikuna. Þá
er ætlunin að gefa slíkum stuðn-
ingshópum tækifæri til beinnar
þátttöku í starfsemi vikunnar.
Beiðnir um stuðningsaðild að
friðarvikunni á páskum þurfa að
berast til Sigrúnar Valbergsdóttur
á skrifstofu Bandalags íslenskra
leikfélaga Hafnarstræti 9 fyrir 5.
aprfl nk. Þar er síminn 16974. -v.
áskorun um að vernda húsið. A
fundinum gerir nefndin grein fyrir
störfum sínum og hugmyndum um
tilhögun og fjáröflun til að standa
straum af kostnaði við verndun og
kaup Fjalakattarins. Þá verður
borin upp tillaga um stofnun sam-
takanna og að henni samþykktri
um nafn þeirra og fyrstu stjórn.
í fréttatilkynningu frá hópnum
er bent á að skammur tími sé til
stefnu í þessu máli hjá borgaryfir-
völdum, en sl. fimmtudag sam-
þykktibygginganefnd fyrir sitt leyti
að heimila niðurrif hússins. Það er
þó borgarstjórn sem á síðasta orðið
í því efni og miklu skiptir að vitn-
eskja um þann málatilbúnað sem
þegar er í gangi komist skemmsta
leið til þeirra sem áhuga hafa á mál-
inu.
Undirbúningsnefndina skipa:
Björg Einarsdóttir, Finnur Björg-
vinsson, Sigurður G. Tómasson,
Erlendur Sveinsson og Helgi Þor-
láksson.
Varðberg hafnaði aukaaðild
Stjórn Varðbergs hefur ákveðið að samtökin taki
ekki þátt í friðarviku um páskana. Þau samtök sem
höfðu undirbúið dagskrána buðu Varðbergsmönnum
aukaaðild með vísan til þess að hún hefði verið mótuð
af þeim áður en Varðberg kom til sögu. Jafnframt var
öllum samtökum sem hug hafa á heimiluð aukaaðild
að friðarvikunni fram til 5. aprfl. Auk Varðbergs
höfðu Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna
og MÍR óskað eftir aðild að friðarvikunni.
-e.k.h.