Þjóðviljinn - 21.06.1984, Page 24
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
21. júní 1984 136. tölublað 49. árgangur
Siglingar
Knörr til Islands
Norskur sœgarpur er lagður af stað í hnattferð
á knerri sem er nákvœm eftirlíking af
kaupskipi frá víkingatímanum.
Lagði af stað 17. júní og mun hafa viðkomu hér.
Það var 17. júní sl. sem siglinga-
maðurinn og norðurheim-
skautsfarinn Ragnar Thorset
lagði af stað í hnattferð sína á
skipi sínu Saga Siglar, sem er ná-
kvæm eftirlíking kaupskipa frá
vfldngatíð. Er skipið smíðað eftir
víkingaknerri sem fannst fyrir
nokkrum árum á botni Hróars-
keldufjarðar í Danmörku.
í áætlun þessarar stórmerku
ferðar er gert ráð fyrir því að sigla
til Ameríku með viðkomu í Fær-
eyjum, á íslandi og í Grænlandi.
Þaðan er haldið til Labrador og
Nýfundnalands og síðan eftir ám
og vötnum til Kanada og Banda-
ríkjanna allt suður til Mexíkó-
flóa. Knörrinn heldur síðan í
gegnum Panamaskurðinn úr á
Kyrrahaf og siglt sem leið liggur
til Ástralíu og þaðan upp Ind-
landshaf, gegnum Súesskurð og
inn á Miðjarðarhaf. Þá liggur
leiðin í gegnum ár og skipaskurði
Frakklands, komið við í Hollandi
og Belgíu og haldið til Álasunds
þar sem ferðin endar sumarið
1986.
Ragnar Thorset mun m.a. ætla
að sanna með þessu siglinga-
afreki að hinir gömlu knerrir vík-
inganna hafi verið afburða sjó-
skip og góðir siglarar. Ætlunin er
að taka fjórar kvikmyndir í ferð-
inni auk þess sem reiknað er með
að nokkrar bækur verði um hana
skrifaðar.
Á Saga Siglar er 8 manna
áhöfn, þar af tveir drengir 9 og 11
ára. Þá var ákveðið að ein norsk
kona yrði með í för. Áhöfnin er
norsk utan einn Bandaríkjamað-
ur og tveir Danir.
Skipasmiðurinn Sigurd
Björkedal í Björkedalen á Sunn-
mæri lauk við smíði knerrisins á
sl. ári. -J.J.E. Kúld
Knörrinn Saga á reynslusiglingu
skömmu áður en hann lagöi upp í
ferðina til fslands og áfram um-
hverfis hnöttinn.
Ragnar Thorset, hinn frækni sigl-
ingamaður og ferðagarpur.
Uppsögn
Brynjar
fær
greiddan
frestinn
„Mál þetta hefur verið leyst
með samkomulagi milii Brynjars
Jónssonar og Hafskips“, sagði
Skúli Thoroddsen lögfræðingur,
aðspurður um hvað liði máli
Brynjars Jónssonar verkamanns,
er fyrirvaralaust var vikið frá
störfum sínum hjá Hafskip, en
Brynjar hafði starfað þar í 5 ár og
var trúnaðarmaður Dagsbrúnar.
Að sögn Skúla Thoroddsen var
Brynjari sagt upp vegna þess að
hann var með bjórkassa á vinnu-
svæði Hafskips og taldi Hafskip
uppsögnina réttmæta og Brynjar
ætti því ekki rétt á uppsagnar-
fresti. Samkomulag hefur nú orð-
ið milli Brynjars og Hafskips.
Hafskip greiðir Brynjari sem
svarar þriggja mánaða launum
með eftirvinnu og orlofi.
Aðspurður um, hvort þetta
væri viðunandi lausn fyrir Brynj-
ar, sagði Skúli Thoroddsen, að
dómstólar hafi dæmt þannig í
svipuðum málum, að menn eigi
rétt á bótum sem svari uppsagn-
arfresti. „Hins vegar hefur það
aldrei gerst hér á landi, að menn
hafi verið dæmdir inn í störf sín
aftur“, sagði Skúli.
Þröstur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Dagsbrúnar,
kvaðst ekki vilja tjá sig um þetta
mál í blöðum.
Janus Guðlaugsson
Vinnum
ekki án
marka
ísland beið lægri
hlut gegn
Norðmönnum á
Laugardalsvellinum
í gœrkvöldi
„Gamla lögmálið er ailtaf í
fullu gildi, ef mörk eru ekki
skoruð, vinnum við ekki leiki.
Við fengum nokkur ágæt mark-
tækifæri sem ekki voru nýtt,
mark hefði lyft okkur upp og við
verðskulduðum allt annað en tap
í þessum leik“, sagði Janus Guð-
laugsson fyrirliði íslenska land-
liðsins í knattspyrnu er Þjóðvilj-
inn ræddi við hann eftir 0-1
ósigur gegn Norðmönnum á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi.
„Annars er ég ánægðastur með
baráttuna í liðinu, menn héldu
haus og gáfust aldrei upp. Þó kom
kafli í seinni hálfleik þar sem við
duttum dálítið niður og þegar
markið kom var ekki nægileg ein-
beiting fyrir hendi“, sagði Janus,
sem var besti leikmaður íslenska
liðsins í gærkvöldi.
Slgurður Grétarson snýr á norskan varnarmann í landsleiknum í gærkvöldi. Mynd: -eik
Sjá bls. 23
Akureyri
Húsmóðurstarf metið að verðleikum
Bœjarfulltrúi Sjálfstœðisflokksins: Píp og húmbúkk!
Afundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar i fyrradag var sam-
þykkt eftirfarandi tillaga: „Bæj-
arstjórn Akureyrar samþykkir
að frá og með 19. júní 1984 skuli
starfsreynsla húsmóður í 2 ár eða
meira metin til starfsaldurshækk-
unnar í allt að 4 ár við nýráðning-
ar hjá Akureyrarbæ. Bæjar-
stjórn felur kjaranefnd að móta
nánari tillögur í þessu máli og
leggja fyrir bæjarráð“.
Tillagan var samþykkt með
átta atkvæðum gegn einu. Tveir
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins sátu hjá, en Jón Sólnes greiddi
einn atkvæði á móti. Sólnes kall-
aði tillöguna „eitt af píp-málefn-
um Kvennaframboðsins“,
húmbúkk-mál sem það kastaði
fram í áróðursskyni til að vinna
gegn sídvínandi fylgi. Fyrsti
flutningsmaður tillögunnar Val-
gerður Bjarnadóttir taldi hins
vegar ummæli Jóns „píp sem ekki
væri svaravert“.
Flutningsmenn tillögunnar
voru þau Valgerður Bjarnadótt-
ir, Sigfríður Þorsteinsdóttir frá
Kvennaframboðinu, Helgi Guð-
mundsson, Alþýðubandalaginu,
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
Framsóknarflokki, Bergljót
Rafnar, Sjálfstæðisflokki, og Jór-
unn Sæmundsdóttir, Álþýðu-
flokki. þ.á.