Þjóðviljinn - 28.06.1984, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Síða 1
ATVINNULÍF LANDÐ Fundur um álverið Fjárfestinginglapræði Rannsóknum ábótavant Míkill ótti kom fram um það á fundi um álver í Eyjafirði á Akureyri í fyrrakvöld að ekki væri staðið að náttúrufarsrann- sóknum eins og vera skyldi. Hitt virtist þó vega enn þyngra að menn töldu þá stórkostlegu fjár- festingu sem álverið kallaði á hreint glapræði miðað við aðra möguleika sem fyrir hendi væru í atvinnumálum ef fé fengist til þeirra. Fundurinn var haldinn í Sam- komuhúsinu, var fjölsóttur og stóð til að verða tvö um nóttina. Frummælendur voru Finnbogi Jónsson framkvæmdastjóri Iðn- þróunarfélags Eyjafjarðar, Þór- oddur Þóroddsson náttúrufræð- ingur og Valgerður Bjarnadóttir bæjarfulltrúi. Af háífu álvers- manna töluðu á fundinum Gunn- ar Ragnars forstjóri Slippstöðv- arinnar og Jón Sigurðarson fram- kvæmdastjóri SÍS og viku þeir af fundi að ræðum sínum loknum. Tryggvi Gíslason skólameistari sagði á fundinum að Eyfirðingar þyrftu umræðu og tón sem fólkið skildi, tal um áþreifanlega hluti, um allt það sem hægt er að gera í staðinn fyrir að setja 28 milljarða króna í álver og orkuver, þar sem ávinningur væri lítill sem enginn fyrir okkur. Undirskriftalistar álversand- stæðinga gengu á fundinum og skrifuðu flestir fundarmanna undir þá. Kl. 13.15 í gær lenti þota Alcan-hringsins á Akureyrar- flugvelli og tóku virðingarmenn í bænum á móti álfurstunum. Sam- kvæmt heimildum Þjóðviljans fengu þeir hlýjar móttökur á ó- menguðum sólskinsdegi. Þeir óku beint til fundar í Ráðhúsi bæjarins og seinnihluta dagsins spiluðu þeir golf með fyrir- mönnum bæjarins. í dag ætla þeir í lax. Þ.Á. Akureyri. Alcan-gestir og heimamenn við trjónu einkaþotu Alcan á Akureyrarflugvelli í gær. I hópnum eru auk forstjóra fyrirtækisins fulltrúar úr viðræðunefnd rikisstjórnarinnar og forystumenn á Akureyri. Það er greinilega fundað stíft kvölds og morgna á mörgum óiíkum fundum á Akureyri þessa dagana. Flug vallarhópurinn hefur greinilega verið á annarri skoðun en fundarmenn í Samkomuhúsinu. (Mynd GS.) Umrœður á Akureyri til kl. 2 um nóttina: 28 miljarðar í álver og orkuver. Daginn eftir lenti Alcan á Akureyrarvelli. Golfí gœr - lax í dag. Tsjatsjatsja! Danskennarar deila Annað félagið „þungt í vöfum og soldið staðnaðu hitt stofnað „í fljótrœðU Hvaða próf hefur danskennari? Hvað er dans? Á gljáfægðum gólfum dansskólanna stíga nettir fætur fögur spor en kennarar hugsa hver öðrum þörfina, og þegja ekki lengur. A tvítugsaf- mæli Danskennarasambands ís- lands er stofnað annað félag, Fé- lag danskennara, og sættir ekki í sjónmáli. Hermann Ragnar Stefánsson er formaður DSI og sagði Þjóð- viljanum að hann teldi nýja fé- lagið stofnað í fljótræði. Þetta væri mestanpart fólk sem ekki væri með fullgild réttindi, tæki hálft próf og færi síðan að kenna. Danskennaramenntun hérlendis tekur fjögur ár. í Danskennara- sambandinu eru 33 félagar, segir Hermann Ragnar, „og aðeins þrír eða fjórir fóru úr DSÍ í nýja félagið. Við í DSÍ höfum verið að reyna að byggja þessa dans- menntun upp og vernda starfs- heitið. Dæmi eru um fólk sem kemur heim úr námi próflaust eða með pungapróf, eins og það heitir á sjónum, og setur upp dansskóla. Þetta er ekki nógu gott.“ Hermann sagði að félagsmenn í nýja félaginu hefðu ekki reiknað með því að alþjóðasamband danskennara viðurkennir bara eitt félag í hverju landi, en aðild að því væri nauðsynleg til að fá nýja dansa, til að láta prófa sig erlendis og til að fá hingað viður- kennda prófdómara. Bára Magnúsdóttir er gjald- keri nýja félagsins, sem stofnað var í aprfl. Formaður er Sigurður Hákonarson en er ekki á landinu. Bára vildi ekki láta hafa mikið eftir sér þar sem hún hefði ekki verið í DSÍ. Hún sagði þó að í nýja félaginu væru um 30 manns, „flestallir fyrrverandi DSÍ- félagar"; yngri skólastjórar væru þeirra megin. Bára sagði að sér skildist að innan DSÍ hefði verið áralöng óánægja og ekki góður félagsandi, meiningarmunur um fagleg málefni. Menn vildu hafa aðgang að erlendum prófdómur- um án hafta. í gamla félaginu væri töluvert af fólki sem hefur hætt störfum, „og félagið þungt í vöfum og að margra mati soldið staðnað". Tvær undirnefndir hafa þegar verið settar á fót til að ná sáttum en í deilu danskennara gengur hvorki né rekur. -m Lyfjamálið Skorturinn bitnaði á sjúklingum Tilraunir Einars Birnis stór- kaupmanns, eiganda lyfjafyrir- tækisins G. Ólafsson h.f. til að koma sökinni á skorti á sérlyfjum fyrirtækisins yfir á erlenda lylj- aframleiðendur eru ekki trúverð- ugar, segir Kristján Linnet yfir- lyfjafræðingur Borgarspítalans í athugasemd við skrif Einars Birnis í Þjóðviljanum í fyrradag. Kristján segir jafnframt að lyfjaskorturinn hafi bitnað á sjúklingum. Sjá bls. 3 og 17.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.