Þjóðviljinn - 28.06.1984, Page 6
LANDtÐ
Fóstrur
2 fóstrur/þroskaþjálfar óskast til starfa viö
leikskólann Sólvelli Seyðisfiröi frá 15. ágúst.
Upplýsingar gefur forstöðumaöur í síma 97-
2350 eöa 97-2244.
FAGVERK S/F
Verktakafyrirtæki
Sími 26098
1. Sprunguviðgerðir með bestu fáanlegum efnum. Efni
þessi standast vel alkalísýrurog seltu, hefur mikla teygju
og góða viðloðun.
2. Gerum við steyptar þakrennur og berum í þær þéttiefni.
3. Þök: Tökum að okkur allar viðgerðir og breytingar á
þökum, þéttum bárujárn, skiptum um járn o.fl. (erum með
mjög gott þéttiefni á slétt þök).
4. GÍuggar: Sjáum um allar viðgerðir og breytingar á
gluggum. Kíttum upp glugga, setjum opnanleg fög, gler-
ísetningar o.m. fleira.
5. Málning: Önnumst alla málningarvinnu utan húss sem
innan.
Áhersla lögð á vönduð vinnubrögð og viðurkennd
efni, viðráðanleg kjör og góða þjónustu. Komum á
staðinn, mælum út verkið, sýnum prufur og send-
um skriflegt tilboð.
Vinsamlegast pantið tímanlega í síma 26098.
- Geymið auglýsinguna -
Borgarneshreppur
- Skrifstofustjóri
Starf skrifstofustjóra hjá Borgarneshreppi er laust til
umsóknar. Umsækjendur þurfa aö geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknir um starfið þurfa að berast skrifstofu Borg-
arneshrepps fyrir 5. júlí n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Borgarnesi 26. júní 1984.
Sveitarstjórinn í Borgarnesi.
Þakkarávarp
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem auðsýndu okk-
ur samúð hjálp og hlýhug við andlát og jarðarför eiginmanns
míns, sonar og föður
Guðbjarts Gíslasonar,
Ölkeldu
Guö blessi ykkur öll.
Ásdís Þorgrímsdóttir
Vilborg Kristjánsdóttir
Þorgrímur Vídalín Guðbjartsson
Vilborg Þórunn Guðbjartsdóttir
og systkini hins látna.
LATIÐ FAGMENN VINNA VERKIÐ
Sprungu-
og
Gerum föst verðtilboð yður
að kostnaðarlausu án skuldbindinga
af yðar hálfu.
Upplysingar í símum (91)666709
þak-
þétting
GEÐHJALP
Sjálfsvirðing
fyrirlestur og hópvinna verður laugardaginn
30. júní kl. 9-13 aö Bárugötu 11. Nánari upp-
lýsingar í síma Geðhjálpar 25990 í dag og á
morgun frá kl. 16 til 18.
Skólasetrið á Laugum i S-Þing.
Skógrœkt
Minningalundir
við skólana
Hér hreyfir Sigfús Jónsson bóndi á Einarsstöðum í
Reykjadalþeirri hugmynd, að eldri ogyngri nemend-
ur komi upp trjálundum við þá skóla þarsem þeirhafa
stundað nám.
Vorið 1983 boðuðu nokkrir
50 ára „Lauganemar", S-
Þing., búsettir í Reykjavík, til
nemendamóts á Hótel Sögu
síðasta sunnudag í maí. Eg,
bóndi norður í S-Þingeyjar-
sýslu, bundinn við lambfé og
kýr í vondri tíð í maí, gat þó
með engu móti hugsað mér
að þjóta frá búinu eins og á
stóð, suður á Hótel Sögu, þótt
gaman hefði verið að sjá
gömlu skólafélagana og
drekka með þeim kaffi.
Þess í stað hringdi ég til hr.
Hauks Ágústssonar skólastjóra á
Laugum og óskaði þess, að við 50
ára Lauganemar, mættum koma í
Laugaskóla 12. júní með 100
stykki af fallegum garðplöntum
og gróðursetja þær á fögrum stað
og gefa Laugaskóla sem minn-
ingalund eða vísi að skrúðgarði,
til minningar um veru okkar þar
fyrir 50 árum. Skólastjóri tók ósk
minni afar vel og kvað okkur
hjartanlega velkomna, ekki síst
þegarviðkæmummeðslíkagjöf. .
Þá talaði ég við Erling Davíðs-
son, ritstjóra á Akureyri, og bað
hann að skrifa fréttatilkynning-
una fyrir blöðin um nemenda-
mótið á Laugum, sem hann og
gerði.
Síðan hringdi ég í Finnlaug
Snorrason, sem er einn af okkur,
„gömlu unglingunum“, nú bú-
settur í Reykjavík, og bað hann
að boða þetta á nemendamótinu
á Hótel Sögu og gerði hann það.
Allir viðstaddir tóku þessu vel og
lögðu fram smá upphæð hver og
einn til kaupa á þessum plöntum.
Plönturnar pantaði ég svo hjá ís-
leifi skógarverði á Vöglum.
Síðan héldum við nemenda-
mótið á Laugum 12. júní, í
norðan illviðri, „gömlu ungling-
arnir“, víðsvegar að, þótt ekki
gætum við komið plöntunum nið-
ur fyrr en nokkrum dögum
seinna, þegar veður skánaði. All-
ir, sem mættu, lögðu sinn skerf í
plöntusjóðinn.
En þegar ég fann þennan eld-
lega áhuga hjá þessum gömlu
skólasystkinum mínum vaknaði
þessi hugmynd: Að gaman væri
að koma upp svona minninga-
lundum eða skrúðgörðum við
flesta, helst alla, skóla landsins,
þar sem aðstaða væri fyrir hendi.
Öllum viðstöddum fannst hug-
myndin frábær og þyrfti að koma
henni á framfæri sem fyrst.
Ég hreyfði þessu svo við Hauk
Jörundarson, fyrrum skólastjóra
á Hólum, og tók hann mjög vel í
að styðja að þessu við Hvann-
eyrarskólann. Þá hitti ég svo, í
fyrsta skipti, Bjarna Guðmunds-
son, kennara á Hvanneyri, nú að-
stoðarmann landbúnaðarráð-
herra. Hafði áður rætt við hann í
síma um þessa hugmynd. Hann
sagði mér að hann hefði þegar
nefnt þetta við Magnús skóla-
stjóra og Magnús Óskarsson
kennara og þeir báðir tekið hug-
myndinni vel. Vona ég, að þessir
ágætu Hvanneyringar kom i hug-
myndinni á góðan rckspöl, helst
strax í vor.
Vonandi taka sem flestir ráða-
menn skólanna, vítt og breitt um
landið, þessari hugmynd vel. Þá
munu nemendur, eldri sem yngri,
ekki láta sitt eftir liggja, slíka
tryggð, sem flestir hafa tekið við
þann skóla, þar sem þeir hafa
dvalið við nám.
Ekkert mun fljótvirkara og
heppilegra til þess að klæða ís-
land skógi frá fjöru til fjalls, en
einmitt þessi aðferð, þar sem
fjöldinn er virkjaður til sameigin-
legs átaks.
Sigfús Jónsson,
Einarsstöðum.
MUNIÐ
SKYNDI-
HJÁLPAR-
TÖSKURNAR
í BÍLINN
Ný iðnfyrirtœki
Nýiðnaður á Suðurlandi?
/ athugun er að koma á fót fyrirtækjum
í Vík og á Stokkseyri
Hjá frændum okkar Dönum og
fyrrum sameigendum og kóngi
með meiru er starfandi ágætt iðn-
ráðgjafarfyrirtæki, sem Scankey
A/S nefnist. Samtök sveitarfélaga
á Suðurlandi hafa fengið það til
að athuga möguleika á nýiðnaði
þar um slóðir. Árangur þessara
athugana hefur þegar sýnt sig í
álpönnusteypunni á Eyrarbakka,
sem um hefur verið getið hér í
blaðinu.
En fleira er í pokahorninu.
Scankey stakk upp á þremur fyr-
irtækjum í Vík í Mýrdal og verða
gerðir arðsemisútreikningar fyrir
tvö þeirra. Annað þeirra og hið
minna er talið muni veita 4-6
mönnum atvinnu. Gæti það hafið
störf í byrjun næsta árs. Hitt þyrf-
ti 5-15 manns að halda og gæti
trúlega tekið til starfa á árinu
1986. Loks er Scankey að athuga
um fyrirtæki á Stokkseyri.
Allt til þessa hafa ekki legið á
lausu upplýsingar um hverskonar
fyrirtæki þarna er um að ræða.
Fylling tímans er enn ekki komin.
-mhg
RAUÐI KROSS
ÍSLANDS
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 28. júní 1984