Þjóðviljinn - 28.06.1984, Side 7
LANDIÐ
Karlakórinn Hreimur. Mynd: Arnar.
Söngför
Þingeyskir söngmenn
til Færeyja
Guðmundur Norðdahl söngstjóri gefur tóninn. Mynd: Arnar.
Þingeyingar hafa löngum verið
þekktir af öflugri menningarstarf-
semi og þann 28. júní n.k. ætlar
karlakórinn Hreimur að leyfa
frændum vorum færeyskum að
njóta þingeyskrar menningar.
Karlakórinn Hreimur saman-
stendur af tæplega 40 vöskum
körlum, bændum og bifvélavirkj-
um og auk þess hefur kórinn
innan sinna raða vígslubiskup
sem hlýtur að teljast fátítt. Kórfé-
lagar þurfa sumir hverjir að koma
langan veg til æfinga að Hafralæk
hvar kórinn hefur aðsetur. Að
sögn Þórarins Jóns Illugasonar
kórformanns láta Hreimsmenn
vegalengdir ekki aftra sér.
Hreimur var stofnaður í janú-
armánuði 1975 og verður því 10
ára í janúar n.k. Fyrstu stjórn-
endur kórsins komu alla leið frá
Tékkóslóvakíu en frá árinu 1978
hefur sá ágæti menningarfrömuð-
ur, Guðmundur Norðdahl, stýrt
kórstarfinu. Á þeim tæpu 10
árum sem kórinn hefur starfað
hefur hann víða um Norðurland
farið og haldið marga söngkons-
erta. í Færeyjaferðinni mun kór-
inn syngja íslensk ættjarðarlög
auk þess sem sungið verður á fær-
eysku. Úlrik Ólason skólastjóri
Tónlistarskólans á Húsavík er
undirleikari kórsins en einsöngv-
arar eru Sigmar Ólafsson skóla-
stjóri og þeir Rangárbræður
Baldur og Baldvin Baldvinssynir.
Það er ómetanlegt hið merka
starf sem karlakórinn Hreimur
hefur unnið á undanförnum
árum. í fyrra kom út hljómplata
hvar kórinn söng þingeysk lög
eftir öndvegishölda í héraði. 1
Færeyjaferðinni verður sungið á
fimm stöðum, tvívegis fá Suður-
eyingar að hlýða á kórinn en
einnig verður sungið á Oyra-
bakka og í Klakksvík og loks í
hinu glæsilega Norrönahúsi
þeirra Þórshöfnunga. Ásamt
Þórarni Illugasyni eru í stjón
Hreims: Hólmgrímur Kjartans-
son gjaldkeri, Baldur Jónsson rit-
ari og meðstjórnendur þeir Eiður
Jónsson og Völundur Hólmgeirs-
son.
ab/Húsavík.
Drangar í Drangavík.
Átthagarit
Strandapósturinn
Par er margháttaðan fróðleik að finna
Eitt þeirra ágætu rita, sem
tengd eru sérstökum héruðum,
er Strandapósturinn. Út er nú
kominn 17. árg. hans. Útgefandi
er Átthagafélag Strandamanna
en ritnefnd skipa: Ingólfur Jóns-
son, formaður, Ingi K. Jóhannes-
son, Jóhannes Jónsson, Þor-
steinn Matthíasson og Þorsteinn
Ólafsson en framkvæmdastjóri
er Haraldur Guðmundsson.
Og það er enginn smápóstur, sem
kemur frá Strandamönnum að þessu
sinni. Þar er að finna ekki færri en 19
lengri og styttri þætti, auk Ijóða og
lausavísna. Ekki er unnt að rekja hér
að neinu ráði efni ritsins þótt þess
væri vert, en getið skal þáttanna svo
að lesendur þessara lína fái lítilsháttar
hugmynd um hvað þarna er að finna.
Guðmundur Guðni Guðmundsson
segir frá kreppuárajólum, sem hann
átti í Byrgisvík á Ströndum hjá þeim
hjónum Sigríði Ingimundardóttur og
Guðmuni Jónssyni. Jóna Vigfúsdóttir
tínir til ýmsar sagnir úr fórum móður
sinnar, Steinunnar Jónsdóttur frá
Stóru-Hvalsá. Anna Guðjónsdóttir
frá Eyri segir frá „einstæðri björgun“
og á það orðalag vissulega við um
þann atburð. Þuríði Guðmundsdótt-
ur frá Bæ verður „hugsað heim“ og
drepur jafnframt á eitt og annað úr
samtímanum. Stefán Pálsson frá Víð-
idalsá greinir frá því er þeir Ingi-
mundur Ingimundarson frá Ósi sóttu
fé í Kinnastaðarétt í Þorskafirði
haustið 1922. Þá eru „sagnir og ljóð“
um Tólfmannaboða eftir Ingvar Ágn-
arsson, en boði sá er blindsker norð-
vestur af Seljanesi. Jóhannes Jónsson
frá Asparvík ritar um útgáfu sveitar-
blaða á Ströndum á síðustu áratugum
19. aldar og birtir sýnishorn af efni
þeirra í lausu máli og bundnu. Sigur-
geir Magnússon skrifar skýringar við
kvæðið „Skemmtiferð“, sem „varð
yndi allra í Tungusveit í langan tíma“
og birtir jafnframt þetta fræga kvæði,
en það er eftir þá Guðlaug Jónsson og
Halldór Ólafsson. Sigurgeir fræðir
okkur einnig um Hornstrendinginn
Betúel Jón Betúelsson, en honum var
margt til lista lagt, m.a. orðlögð
skytta. „Forn minni“ nefnist grein
eftir Jóhann Hjaltason, en þar er
fjallað um Staðarkirkju í Steingríms-
firði að fornu og nýju. Ingólfur frá
Prestsbakka heldur áfram að rekja
Hrútfirðingaþætti sína og húsvitjar að
þessu sinni á Kollsá, Litlu- og Stóru-
Hvalsá, Borgum, Kolbeinsá, Guð-
laugsvík og Skálholtavík. Guðmund-
ur Þórðarson frá Jónsseli, segir frá
eyðibýlinu Bakkaseli, sem Gísli
nokkur Jónsson reisti 1835. Lýður
Jónsson birtir yfirlit um jarðabætur í
Strandasýslu 1786-1787, en sam-
kvæmt tilskipun um jarðrækt á ís-
landi frá 13. maí 1776 var hver bóndi
skyldaður til þess að girða tún sitt
með 2ja álna háum grjótgarði eða 2,5
álna háum torfgarði. „Sérhver bóndi
skyldi hlaða árlega 6 faðma í grjót-
garði eða 8 faðma í torfgarði fyrir
sjálfan sig og svo hvern verkfæran
karlmann, sem hann hefði í vinnu“.
Verðlaunum var heitið fyrir hvern
faðm sem hlaðinn var umfram til-
skilið lágmark en 10 sk. sekt skyldi
greiðast fyrir hvern vanhlaðinn faðm.
Kristín Daníelsdóttir fræðir lesendur
um bernskuheimili sitt, Þiðriksvelli í
Hólmavíkurhreppi. Magnús Péturs-
son var um skeið héraðslæknir í
Strandasýslu og sat á Hólmavík.
Magnus Guðberg Elíasson frá Veiði-
leysu segir írá einni slíkri en í maí
1917 sótti hann Magnús læknir til
Hólmavíkur til sjúklings norður í
Árneshreppi. Gísli Jónatansson í
Naustavík skrifar um Ameríkufarann
og kjarnakarlinn Kristján Halldórs-
son. Kristján fór til Ameríku 1888?,
kom aftur 1930 og dvaldi á æskuslóð-
um upp frá því. Gísli segir og frá sjó-
slysum, sem orðið hafa við Stein-
grímsfjörð frá 1869 til 1950. Og enn
ritar Gísli þættina: Manntjónið á
Heiðabæjarheiði, Rúnasteinninn og
Stóra höfuðkúpan.
Ljóð og stökur eru í ritinu eftir þá
Ingimar Elíasson, Jóhannes frá Asp-
arvík, Guðbjörn Björnsson?, Guð-
laug Jónsson og Halldór Ólafsson,
Ingólf Jónsson frá Prestsbakka, Guð-
mund Þórðarson, Sigurð Rósmunds-
son, auk þess kveðskápar, sem felld-
ur er inn í ýmsar frásagnir.
Þótt hér hafi verið stikiað á stóru
gefur þessi upptalning væntanlega til
kynna að margra góðgrasa gætir í
Strandapóstinum.
Stjórn Átthagafélags Stranda-
manna er nú þannig skipuð: Gísli Ág-
ústsson formaður, Sigurbjörn Finn-
bogason varaformaður, Björn Krist-
mundsson, Guðbrandur Benedikts-
son, Helgi Jónsson, Óskar Jónatans-
son og Kristinn Sigurðsson.
- mhg
Fimmtudagur 28. júni 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7