Þjóðviljinn - 28.06.1984, Síða 21

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Síða 21
Eddi - Tvöfeldni Þessa dagana er væntanleg á markaðinn sérstæð plata. Þar er á ferðinni Eðvarð F. Vilhjálmsson frá Keflavík, en hann hefur leikið með ýmsum hljómsveitum, þ.á m. Bos, Kjarnorkublúsarar og QTZJÍ QTZJÍ. Eðvarð leikur á öll hljóðfærin sjálfur, bassagítar, trommur, hljómborð, gítar og syngur einn- ig. Á plötunni eru 8 lög, öll eftir hann. Tónlist Edda má flokka undir sömu tónlist og hjá Bara- flokknum. Þetta er í fyrsta sinn hér á landi, svo vitað sé, að einn og sarni hljóðfæraleikari leiki inn á plötu og spili allt sjálfur. Með öllum þeim tæknimögu- leikum sem stúdíó hafa að bjóða er hægt að láta tónlistarmann leika á allt sjálfan og leikmenn og aðrir heyra ekki annað en að hljómsveit sé að spila. Platan verður ekki fáanleg á kassettu. Útgefandi og dreifingaraðili er Studíó Bimbó á Akureyri. Siggi Helgi Feti framar Komin er á markaðinn fyrsta sólóplata Sigurðar Helga Jó- hannssonar, sem jafnframt er fyrsta platan hans. Siggi Helgi söng með hljóm- sveitinni Casanova frá Keflavík um skeið. Hann hefur nú fengið í lið með sér þekkta hljóðfæra- leikara til að leika undir á plöt- unni. Þar ber fyrst að nefna Sig- fús Óttarsson úr BARA- flokknum, Kristján Guðmunds- son, sem hefur leikið á hljóm- borð með Póker, Haukum og Celsíus og Ingvar Grétarsson, só- lógítarleikari úr Rokkbandinu. Sjálfur sér Siggi Helgi um söng, bassaleik o.fl. Lögin eru flest eftir hann, einn- ig nokkrir textar. Plata þessi hef- ur að geyma 12 melódísk lög, flest líkleg til vinsælda. Þau lög sem mest er stílað upp á eru: „Eiginkona“, „Lífið“ og „Tvö- faldur brennivín í kók“. Það er stúdíó Bimbó á Akureyri sem gefur plötuna út. Sumarútvarp unga fólksi isu- leikur og hæfileika- keppni Hæfileikakeppni Sóló nr. 2 verður í kvöld (fimmtudag) í Saf- arí og hefst stundvísiega kl. 22. Sex keppendur koma fram, en að því loknu munu Dúkkulísur troða upp og leika efni af nýút- kominni hljómplötu sinni. A Nýstárleg getraun í þættinum „Sumarútvarpi unga fólksins" sunnudag 1. júlí kl. 20 hefst hlustendagetraun með æði nýstárlegu sniði. Þrautin er í átta hlutum og verður meðal efnis þáttarins næstu 8 sunnu- dagskvöld. Til þess að geta tekið þátt í leiknum verða hlustendur að heyra alla átta hluta hans. í hverjum þætti verður á ein- hvern máta gefinn til kynna einn ákveðinn bókstaður stafrófsins. Stafir þessir mynda saman átta stafa orð, sem verður vitaskuld lýðum ekki ljóst fyrr en allir staf- irnir hafa verið gefnir til kynna. Þátttakendur útbúa sér blaðsnep- il þar sem þeir bæta hverjum staf inn í raðleikinn um leið og þeir hafa uppgötvað bókstaf hvers þáttar. Síðan senda þeir lausnina til þáttarins er getrauninni er lok- ið. Vegleg bóka- og hljómplötu- verðlaun verða veitt fyrir rétt svar að þrautinni lokinni og allir þátttakendur fá auk þess viður- kenningarskjal frá útvarpinu. Fyrsti stafur þessa dularfulla orðs verður sem fyrr segir gefinn til kynna n.k. sunnudagskvöld og síðan koll af kolli næstu 7 sunnu- daga á eftir. Stafirnir verða gefnir í skyn á ýmsan hátt en þó þannig að fæstum ætti að veitast þrautin erfið viðureignar. Þótt til mikils sé að vinna er getraun þessi fyrst og fremst leikur sem Sumarútvarp unga fólksins vonar að hlustendur geti haft eitthvert gaman af, hvort sem þeir eru unglingar eða ein- ungis hressir og ungir í anda. ít- mikilvægt er að geyma svarseðilinn vel þessar 8 vikur og fylgjast með frá byrjun. Síðan skal seðillinn sendur þætt- inum í ágústlok þegar orðið hefur komið í ljós. Unglingar eru að sjálfsögðu hvattir til að vera með í leiknum og einnig til þess að senda þættin- um bréf um hvað sem vera vill og snertir mál unglinga, - eða allt sem mönnum dettur í hug að kunni að eiga erindi til annarra. Fimmtudagur 28. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.