Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 28.06.1984, Blaðsíða 23
IÞROTTIR Ellert vara- forseti! EUert B. Schram, formaður KSÍ, var í fyrradag kjörinn einn þriggja varaforseta Knattspyrnu- sambands Evrópu (UEFA). Ellert hefur setið í stjórn UEFA í tvö ár og á sæti i framkvæmdanefnd Evrópukeppni landsliða sem lauk í Frakklandi í gær. Hann mun einnig taka sæti í stjórn fram- kvæmdanefndar UEFA. 2. deild kvenna: Þrjú mörk Elínar Elín Wium skoraði þrjú mörk þegar Hveragerði vann Stjörn- una 5-1 í 2. deild kvenna í knatt- spyrnu í Garðabænum í síðustu viku. Hin mörkin skoruðu þær Sigurborg Ólafsdóttir og Guðrún Snorradóttir og sjötta markið leit dagsins Ijós en það skoruðu Hveragerðisstúlkurnar í eigið marknet. Urslit ■ síðustu viku: A-riðill: Fylkir-Grindavík..................3-0 Fram-FH.......................frestað Haukar-Víðir......................0-1 Fylkir.................3 2 1 0 5-1 7 Víðir..................3 2 0 1 2-1 6 Fram...................2 10 12-23 FH.....................2 0 2 0 1-1 2 Haukar.............3 0 2 1 1 1-2 2 Grindavík.............3 0 1 2 2-6 1 B-riðill: Afturelding-ÍBK...................3-3 Stjarnan-Hveragerði...............1-5 Selfoss-ÍR........................1-1 Hveragerði 3 3 0 0 11-3 3 2 1 0 12-6 9 7 ÍBK 3 2 1 0 6-4 7 Selfoss 3 0 1 2 3-6 1 ÍR 3 0 1 2 5-11 1 Stjarnan 3 0 0 3 1-8 0 -BV/VS Tryggvi skoraði 8 mörk! Tryggvi Gunnarsson, ÍR- ingurinn marksækni, skoraði hvorki meira né minna en 8 mörk þegar ÍR gjörsigraði Breiðholts- liðið, 11-0, í C-riðli 4. deildarinn- ar í knattspyrnu í gærkvöldi. Hann hefur nú gert 23 mörk í 6 leikjum í dcildinni í sumar. Hlyn- ur Elísson, Agúst Guðmundsson og Gústaf Björnsson sáu um hin mörkin. -VS Neisti vann 8-0! Neisti vann yfirburðasigur á Hrafnkell úr Breiðdal, 8-0, þegar félögin mættust í F-riðli 4. deiidarinnar í knattspyrnu á Djúpavogi í fyrrakvöld. Snæ- björn Vilhjálmsson skoraði 3 mörk, Gunnlaugur Bogason 2 og þeir Agúst Bogason, Ómar Boga- son og Þorvaldur Hreinsson eitt hver. Staðan í hálfleik var 1-0. - VS Frakkland náði að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn í fyrsta sinn er þeir lögðu Spán að velli með tveimur mörkum gegn cngu í leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en einni mínútu framyfir venjulegan leiktíma, er framherj- inn Bellone skoraði annað mark Frakka. Leikurinn var jafn og bauð upp á mikla spennu en var langt frá því að vera jafn opinn og undanúrslitaleikirnir. Spánverjar voru öllu sterkari í byrjun leiksins en er fyrri hálf- leikur var hálfnaöur fóru Frakkar loks í gang og það sem eftir liföi hálfleiksins var jafnræði með lið- unum. A 12. mínútu síðari hálfleiks fengu Frakkar aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig eftir ljótt brot á Lacombe. Fyrirliði franska liðs- ins, Platini, tók spyrnuna, fast skot hans fór neðst í hægra hornið þar sem Arconada markvörður Frakkar skyndisókn, Tigana besti maður vallarins átti þá langa sendingu fram völlinn á Bellone sem brunaði inn í vítateiginn og lyfti boltanum skemmtilega yfir Arconada. Sigur Frakklands í gærkvöldi var sigur knattspyrnunnar, mið- vallarspil liðsins eitt það besta í heirni auk þess sem liðið spilar ekki þann grófa fótbolta sem spæsnka liðið sýnir, það getur þakkað tékkneskum dómara fyrir að hafa fengið að spila ellefu allan leikinn. Framlínumaðurinn Santillana var yfirburðamaður í spánska liðinu, Lopez og Carr- asco einnig ágætir. Franska liðið var jafnt, aðeins Tigana stóð uppúr. Platini er þó maðurinn sem mest hefur mætt á í gegnum keppnina. Níu mörk í fimm leikjum í Evrópukeppni er ekki svo slæmt af miðvallarspil- ara að vera. -Frosti Frakkland Evrópumeistari efrir hörku- spennandi úrslitaleik gegn Spánverjum Spánverja virtist hafa góð tök á boltanum, en öllum á óvörum missti hann boltann undir sig og inn rúllaði boltinn. Frakkar héldu undirtökunum eftir markið og það var ekki fyrr en um 20 mínútur voru til leiksloka að Spánverjar náðu þeim af þeim. Á 85. mínútu misstu Frakkar síðan annan miðvörð sinn útaf, Le Roux, og eftir það fór boltinn vart inn á spánska vallarhelming- inn. Er ein mínúta var liðin fram- yfir venjulegan leiktíma náðu Island efst! Gerði jafntefli við b-lið Tékka meðan Norðmenn unnu sigur á a-liðinu Fyrsti sigur ÍK Island og Tékkóslóvakía gerðu jafntefli 19-19 í landsleik í hand- bolta sem háður var í gær í Tékk- Léku á ...bindum! Um 2000 þúsund manns fylgd- ust með sérstæðum knattspyrnu- leik í Vestmannaeyjum. Þar lék 4. deildarlið Hildibrands við ný- stofnaða knattspyrnudeild Hrek- kjalómafélagsins og vann Hildi- brandur fjörugan leik 4-2. En búningar leikmanna vöktu mesta athygli. Hildibrandar léku á pungbindum einum fata og voru rasskinnar þeirra málaðar rauðar og hvítar. Númerin voru sprautuð á bak þeirra. Hrekkja- lómarnir léku í pilsum og höfðu rúllugardínu fyrir marki sínu og í liði þeira voru margir framámenn í Eyjum, jafnvel alþingismenn. Þegar einum leikmanna varð á að gera sjálfsmark var hann „toller- aður“ af öllum leikmönnum beggja liða. Þetta var opnunar- leikur mikils 6. flokksmóts sem hófst í Eyjum í morgun á vegum Týs og Tommaborgara en um 450 drengir taka þar þátt. -JR/Eyjum óslóvakíu. Þessi leikur er liður í 4-liða móti sem samanstendur af landsliðum íslands, Noregs og a og b liðs gestgjafanna. í leiknum í gær höfðu íslend- ingar yfir mestallan tímann, kom- ust t.a.m. í 9-6 og höfðu yfir í hálfleik, 12-10. í síðari hálfleik skoraði landinn 3 fyrstu mörkin og komust í 15-10. Þá kom slæm- ur kafli hjáísl. liðinu og næstu sex mörk voru öll Tékka megin. ís- lendingar komust síðan aftur yfir 16-15 og eftir það var jafnt á öllum tölum til leiksloka, landinn var þó alltaf fyrri til að skora. Alfreð Gíslason átti mjög góð- an fyrri hálfleik og Kristján Ara- son stóð allan tímann fyrir sínu. Þeir Brynjar Kvaran og Kristján Sigmundsson skiptust á að verja markið og gerðu það vel. Þess má geta að lið Tékkanna er skipað mjög hávöxnum leikmönnum, flestir þeirra eru um tveir metrar á hæð. Kjarninn úr liði þeirra eru leikmenn frá Dukla Prag og landsliði þeirra, 21 árs og yngri. Þá áttust einnig við í gær Nor- egur og Tékkóslóvakía og sigr- uðu Norsararnir óvænt. Við þessi úrslit er ísland komið í efsta sætið á mótinu og ljóst er að leikur þeirra á morgun við a lið Tékka verður úrslitaleikur á mótinu. Að sögn Guðjóns Guðmunds- sonar er aðstaða ytra til fyrir- myndar, hins vegar er líf íslensku landsliðsmannanna enginn dans á rósum. Leikmenn eru rifnir upp snemma á morgnana og þá er tekin eins og hálfs tíma æfing og síðan er keppt seinna um daginn. Meginmarkmið ferðarinnar er jú undirbúningur fyrir Ólympíu- leikana í sumar. Mörk Islands: Alfreð 7, Krist- ján A. 5, Bjarni Guðmundsson 3, Sigurður Sveinsson 2/1, Guð- mundur Guðmundsson og Þor- björn Jensson 1. -Frosti ÍK vann sinn fyrsta leik í SV- riðli 3. deildarinnar í knatt- spyrnu, sigraði þá Snæfell úr Stykkishólmi 2-0 á Kópavogs- vclli. Þórhallur Gunnarsson skoraði í fyrri hálfleik og Olafur Petersen í þeim síðari. Fylkir vann Stjörnuna 3-2 í Garðabæ. Sighvatur Bjarnason, Brynjar Jóhannesson og Anton Jakobsson komu Fylki í 3-0 fyrir hlé en í síðari hálfleik sótti Stjarn- an mjög og uppskar tvö mörk sem Sveinn Axel Sveinsson og Birkir Sveinsson gerðu. Grindavík lagði HV að velli, 3-1, á hörðum malarvellinum á Akranesi. Símon Alfreðsson 2 og Hjálmar Hallgrímsson (víti) skoruðu fyrir Grindavík en Sæ- mundur Víglundsson fyrir HV. -VS Þróttur mætir KR í kvöld Níunda umferðin í 1. deildar- keppninni í knattspyrnu hefst í kvöld á Laugardalsvellinum í Reykjavík. Þar mætast Þróttur og KR og hefst ieikurinn kl. 20. Þróttur er með 10 stig en KR níu og útlit er fyrir jafnan og spenn- andi leik. Þróttarar hafa sýnt nokkra ágætis lciki og KR-ingar voru mjög frískir í síðasta leik er þeir lögðu Keflvikinga að velli. í kvöld verða einnig tveir leikir í 1. deild kvenna. Valur og Breiðablik mætast á Valsvellin- um og botnliðin, Víkingur og ÍBÍ, leika á Víkingsvellinum. Báðir leikir hefjast kl. 20. Þá verður leikin heil umferð í 2. deild kvenna. Þar mætast Fram- Fylkir, Grindavík-Haukar, FH- Víðir, Hyeragerði-Afturelding, ÍR-ÍBK og Selfoss-Stjarnan. Fimmtudagur 28. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.