Þjóðviljinn - 19.07.1984, Qupperneq 6
HEIMURINN
Lokað
á morgun, föstudaginn 20. júlí, vegna jaröar-
farar Ragnars Jónssonar forstjóra.
Bókaútgáfan Helgafeil
Víkingsprent h/f
MUNIÐ
FERÐJ
Handhægt uppsláttarrit sem veitir fleiri almennar
upplýsingar um ferðalög og ferðamöguleika
innanlands og utan en nokkur önnur íslensk bók.
Meðal efnis eru 48 litprentuð kort, vegalengdatöflur,
upplýsingar um gististaði og aðra
ferðamannaþjónustu, um sendiráð og ræðismenn
erlendis, vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum stöðum og
margt fleira. Fæst í bókabúðum og
söluturnum um allt land.
Ferðavasabókin; ómissandi ferðafélagi!
FJÖLVÍS
Síðumúla 6 Reykjavík
Sími 91-81290
Eiginmaður minn
RagnarJónsson
forstjóri
Njörvasundi 43
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 20. júlí kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á líknar-
stofnanir.
Björg Ellingsen
Alúðarþakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát og jarðarför eiginmanns míns og föður
okkar
Eðvarðs Geirssonar
flugvirkja.
Guð blessi ykkur öll.
Sesselja Hrönn Guðmundsdóttir
Fjóla Eðvarðsdóttir
Geir Eðvarðsson
Ingibjörg Sólveig Eðvarösdóttir
og aðrir aðstandendur.
mánaðarlega. Hagstjórar Lík-
údstjórnarinnar hafa sýnt sjald-
gæft ábyrgðarleysi í fjármálum -
t.a.m. var Avidor, fyrrum fjár-
málaráðherra, frægur fyrir það
fyrir síðustu kosningar, að lækka
tolla á bílum, litasjónvörpum og
öðrum munaðarvarningi rétt
fyrir kosningar og kynntu slíkar
ráðstafanir enn frekar undir
kaupæði og verðbólgubál. En
mestu veldur um efnahagsá-
standið að hernaðarútgjöldin
nema 20-30% af vergri þjóðar-
framleiðslu. Öllu fylgir svo geysi-
leg skuldasöfnun, ög hafa skuldir
aukist um 10 miljarði dollara á sl.
tveim árum. Myntin, shekel, er
ekki lengur frjáls til skipta og
dollarinn gengur á svörtum
markaði á 30% hærra verði en
opinbert gengi segir til um. Ef
ekki kæmu um þrír miljarðir doll-
ara á ári frá Bandaríkjunum í lán
og gjafir, þá væri skipið að líkind-
um sokkið.
Stóru flokkarnir þora fátt að
segja um efnahagsmál, því
sannleikurinn um þau er engin
kosningabeita. Líklegt er að byrj-
að verði eftir kosningar á því að
frysta laun og verðlag og taka upp
allsherjargjaldeyriseftirlit, en allt
verður það nokkuð sársaukafullt
ef að líkum lætur og mun auka
atvinnuleysi, sem nú er um 5%.
Palestínumál
Hægristjórn Begíns og Shamírs
hefureyttgífurlegu fé til að koma
upp gyðingabyggðum á her-
numdu landi á vesturbakka Jór-
danar og Shamír leggur áherslu á,
að þeirri stefnu verði fylgt áfram.
Og öllum hernumdu svæðunum
haldið áfram. Það er í sama anda,
að Líkúdstjórnin er treg til að
draga ísraelskan her til baka frá
suðurhluta Líbanon, eins þótt
hernámið sé dýrt í mannslífum
(um 600 ísraelskir hermenn hafa
fallið þar síðan síðasta Líba-
nonstríðið hófst). Verkamanna-
blokk Peresar vill flýta brottför-
inni frá Líbanon. En að því er
varðar hernumdu svæðin er
stefnan mjög óljós. Peres segist
að vísu vilja hætta að byggja upp
gyðingabyggðir. En íiann vill
halda þeim sem til eru (þar búa
nú um 28 þúsundir manna).
Hann segist vilja semja um Vest-
urbakkann við Jórdaníu, kannski
með það fyrir augum að Jórdanir
fái hluta hernumdu svæðanna.
Enginn veit hvað þetta í rauninni
þýðir, og enginn er kominn til
með að segja að Jórdanir vilji láta
flækja sér í slíkar viðræður.
Hvorugur stóru flokkanna hef-
ur ný svör við mjög þungvægri
spurningu: Hvernig ætla ísraelar
að halda áfram að fara með vald
yfir 1,4 miljónum Palestínuaraba
á hernumdu svæðunum, sem ekki
njóta fullra pólitískra réttinda, og
gera áfram tilkall til að vera lýð-
ræðisríki? Og þegnrétt vilja stóru
flokkarnir ekki heldur gefa þessu
fólki í ísrael, því þá væri ísrael
ekki lengur gyðingaríki fyrst og
fremst heldur ríki tveggja þjóða.
Til eru friðarhreyfingar sem
bjóða fram í kosningunum og
byggja með ýmsum tilbrigðum, á
þeirri lausn mála, sem felst í því
að Palestínumenn stofni sérstakt
ríki á Gazasvæðinu og á Vestur-
bakkanum. Tveir listar eru öðr-
um líklegri til að fá fylgi: Lýðræð-
isfylkingin, sem kommúnistar
eru áhrifamestir í, og Friðarlisti
framfarasinna. Þessir listar höfða
einkum til þeirra 17% ísraelskra
borgara sem eru Arabar, margir
þeirra kristnir. En ísraelsk friðar-
hreyfing, sem stundum hefur efnt
til fjölmennra mótmælaaðgerða,
m.a. gegn stríðinu í Líbanon, er
sundruð pólitískt eins og á stend-
ur og mun því ná minni árangri í
kosningum en ella.
Árni Bergmann.
Hornsteinn lagður að nýrri synagógu rétttrúaðra: þeir heimta að bókstafurinn gildi fyrir alla.
Rétttrúnaður klýfur
ísraela í fylkingar
Krafan um að lög trúarinnar verði lög landsins
ísrael á það sameiginlegt með
arabískum grannríkjum, að þar
er allvoldug hreyfing, sem stefnir
að því að gera lög trúarinnar að
lögum landsins og í reynd að því
að gera illa líft þeim sem ekki vilja
beygja sig undir þá nauðung. Hér
er um að ræða minnihluta rétt-
trúaðra, sem reyndar eru klofnir
innbyrðis, en hafa haft miklu
meira vald í ísraelskum stjórn-
málum en fjöldi þeirra segir til.
Ástæðan er sú, að stóru blokkirn-
ar tvær til hægri og vinstri hafa
þurft á fleiri eða færri fulltrúum
hinna rétttrúuðu flokka að halda
tU að geta myndað meirihlutast-
jórnir í landinu.
Hinir rétttrúuðu hafa því til
leiðar komið, að skemmtanir og
almannasamgöngur liggja niðri á
sabbatsdegi gyðinga. Begin varð
að kaupa stuðning rétttrúar-
flokksins Agudat Isroel með því,
að banna flugvélum ísraelska
flugfélagsins EL AL að fljúga á
þeim degi - hvar sem þær væru
staddar í heiminum - og hafði
þetta í för með sér ómældan
kostnað. Trúflokkarnir taka til
sín miklar fjárfúlgur til guðfræði-
skóla sinna og þeir 60 þúsund
ungir menn sem nú eru við nám í
þessum skólum - Jeshivot - eru
undanþegnir herþjónustu. Réttt-
rúaðir hafa reynt að koma í veg
fyrir fornleifagröft og stundum
tekist, og afar ljót mál eru til eins
og þegar jarðneskar leifar Teresu
Angelovic frá Rúmeníu fengu
ekki að hvíla í friði fyrir ofstækis-
mönnum í gyðinglegum grafreit.
En Teresa var gift gyðingi og lifði
sem gyðingur og sat meira að
segja í fangabúðum nasista af því
þeir töldu hana gyðing - allt þetta
reyndist einskis virði í augum
þeirra ofstopamanna sem ein-
blína á bókstaf lögmálsins.
Mikið vald
Sérviska hinna rétttrúuðu
gerði ekki svo mikið til, ef þeir
reyndu ekki sýknt og heilagt, sem
fyrr var rakið, að þvinga lífs-
mynstri sínu upp á þjóðfélagið í
heild. Þeir vilja að ísrael sé
„halakha“-ríki - m.ö.o. að þar
séu lög trúarinnar algild. Trúar-
ríkið á að vera áfangi í að gera
alla ísraela rétttrúaða (sem þeir
eru vitanlega ekki, meirihlutinn
er annaðhvort umburðarlyndur í
trúmálum eða afksiptalaus).
Margir reyna í ísrael að beita
sérgegn þessum hópum, ekki síst
mannréttindasamtök ýmiskonar,
sem berjast fyrir rétti til borgara-
legra hjónabanda (rabbíarnir
hafa nú einkarétt á fjölskyldu-
málum) og fleiru. Sumir berjast
fyrir jafnrétti hinna ýmsu
strauma í gyðingdómnum, aðrir
leggja áherslu á að gyðingdómur
sé fyrst og fremst menningar-
hugtak. En þessi viðleitni er erfið
vegna þess, að sem fyrr segir eru
trúuðu flokkarnir einatt í odda-
aðstöðu á þingi. Þeir eru að vísu
skiptir á eina sex lista í kosning-
unum nú í júlí, en lfklega nógu
sterkir samt til að halda kverka-
taki sínu á hinu ísraelska pólitíska
kerfi.
Ein alvarlegasta hlið rétttrún-
aðarins birtist í þeim samtökum,
Gúsh Enúmim, sem harðast
ganga fram í að byggja upp gyð-
ingabyggðir á hernumdu svæðun-
um. Þar við bætast leynisamtök
sem vilja berjast fyrir „Stór-
ísrael“ með hermdarverkum, og
hafa um tuttugu manns úr því liði
komið fyrir rétt fýrir skömmu
fyrir sprengitilræði gegn arabísk-
um borgarstjórum, ísraelskum
friðarsinnum og fleira fólki.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 19. júlí 1984