Þjóðviljinn - 19.07.1984, Page 10
LANDÐ
100 daga
áætlun
Macintosh
tölvan var kynnt 24. janúar 1984 og hafa menn síðan
keppst við að lofa þessa nýju tölvu. Apple gerði djarfa
100 daga áætlun. Áætlað var að selja 50.000 tölvur
fyrstu 100 dagana. Áætlunin stóðst engan veginn, salan
varð 70.000 stykki. Nú er ljóst að Macintosh tölvan frá
Apple er mest selda nýja einkatölva sögunnar. En
hvers vegna er Macintosh tölvan svona vinsæl? Megin
ástæðan er sú að það er svo auðvelt að nota Macintosh.
Það tekur ekki nema u.þ.b. 2 klst. að læra svo vel á
hvert forrit að hægt er að nota það af fullum krafti í
stað margra daga eða vikna. Þegar þú ert búinn að
læra eitt forrit þá er auðvelt að læra fleiri því
skipanirnar eru alltaf eins. Macintosh er fyrirferðar-
lítil og kemst auðveldlega á skrifborð og tekur litlu
meira pláss en sími. Ekki skortir Macintosh tölvuna
hraða né getu því hún er búin einni öflugustu örtölvu
sem um getur.
Motorola 68000 sem er 32 bita.
Það er enginn vafi á því að það verður rifist um þessar
fáu tölvur sem við höfum fengið. Sjón er sögu ríkari.
Komdu og kynnstu Macintosh frá Apple.
KYNNINGARVERÐ KR. 75.000
ÚTBORGUN KR. 15.000.
EFTIRSTÖÐVAR Á ALLT AÐ10 MÁNUÐUM
^jfpppkz computcr
aiii
Skipholti 19 ^
Sími 29800 jölvudeilc
Robina Hiwlitt frá Nýja-Sjálandi. Þetta er sjöunda sumarið sem hún fæst við
flök í íslenskum frystihúsum en er á förum. Hér er mikil vinna, segir Robina, - en
finnur mikinn mun á launum síðan hún kom hér fyrst. Miklu erfiðara að leggja
fyrir, og það kostar allt miklu meira núna en fyrir einu til tveimur árum.
Það er fljótlega rokið að
skoðunarmönnum og þeir færðir
í sloppa, - rétt hægt að losna við
hattburð. Hér eru framleidd mat-
væli, og kröfur um hreinlæti alltaf
að aukast. f Hnífsdalsfrystihúsi
er allur skjólfatnaður þveginn að
kvöldi og starfsmenn fá hreint að
fara í að morgni. Þetta er ekki
orðin krafa enn frá eftirlits-
mönnum eða verkalýð, en til ör-
yggis fyrir framleiðandann og til
þæginda mikilla fyrir verkafólk.
Það er gengið um sali, rætt við
mann og annan, skoðaðir fisk-
borgarar og lífvörður grálúðu-
flaka kannaður, litið inní sjopp-
una sem íþróttafélagið Reynir
rekur, meistaraflokkur karla er í
fjórðu deildinni núna en það
stendur að sögn til bóta. Okkur
er sagt að húsið sé hitað upp með
varma frá frystivélunum, - ekki
alveg ónýtt í orkuþrengingum
vestfirðinga.
Að lokum er sest að kaffi með
þeim Sveini og Friðriki, sögð
frystihússævintýri og sögur úr
pólitíkinni, og nokkrar tvíræðar
að auki- Við spurjum annan þing-
mann Reykjavíkurkjördæmis
hvað hann sé að vilja í fisk vestur í
Hnífsdal; svarið er að hann sé hér
í einskonar sumarfríi í fjarveru
framkvæmdastjórans, Konráðs
Jakobssonar, þetta er sjötta
sumarið. Konan er frá Hnífsdal
og tengdapabbi einn eigenda
frystihússins, framkvæmdastjóri
útgerðarinnar og stjórnarfor-
maður fyrirtækisins.
- Það er í rauninni hvíld að
komast í þetta starf eftir óreglu-
vinnu og puð í þinginu, segir
Friðrik, -maður hefur gott af því
að fá að fylgjast með grundvallar-
atvinnuveginum, og fyrir borgar-
búa einsog mig er mjög hollt að
kynnast málefnum landsbyggðar-
innar. Þetta er góð jarðtenging
fyrir stjórnmálamenn.
Við kveðjum Frikka og hans
lið á hlaðinu og vonum að vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins fái
líka tækifæri til að kynna sér
launakjör starfsmannanna - þá er
aldrei að vita nema tíðinda sé að
vænta á næsta þingi.
Tura Guðmundsdóttir til vinstri. Sú sem snýr baki við Ijósopinu er heimskona
sem sagðist vera komin í Hnífsdal til að gleyma, og vonaðist til að litríkt
verbúðalífið hjálpaði sér til þess.
Skeljungur h.f