Þjóðviljinn - 19.07.1984, Side 13
LANDfÐ
LANDÐ
Landsbanki Islands
Útibú ísafirði Póigötu 1
sími (94)3022
Afgreiðslutími mánudaga - föstudaga kl. 9.15 - 16.00
Önnumst öll innlend og erlend bankaviðskipti
LANDSBANKINN
Bcuiki allm londsmonna
LOKSINS
Caterpillar vökvagröfur á hjólum fáanlegar meö
margvíslegum fylgihlutum svo sem: 45 gerðir af
skóflum, vökvahamrar, rifklær, lyftikrókar, gripklær,
vibra-þjöppur, segulstál o.fl.
Eins og alltaf veröa allar gröfur frá Caterpillar
framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti og
samkvæmt ströngustu kröfum um endingu, öryggi
og þægindi í stjórnun og viðhaldi.
Sérstakt kynningarverð verður á fyrstu vélunum,
sem seldar verða hérlendis.
vinsamlega hafid samband viö söludeild okkar og
fáiö upplýsingar um verö og greiöslukjör.
CAT-206 11,7 tonn — CAT-212 14,0 tOIW
CAT-214 15,5 tonn — CAT-224 19,0 tonn
Hálfkláruðverk
útumallan bæ
Vatnsveitan eitt óskamála íhaldsandstœðinga í meirihluta
á Isafirði en gamall skuldahali er langur.
- Jafnrétti er meira en þingmannatala,
segir Þuríður Pétursdóttir, og er „ekkipar hress<(
yfir landsbyggðarstefnu Alþýðubandalagsins.
Þuríður Pétursdóttir kenn-
ari er f remst meðal jaf ningja í
hópi vinstrimanna í höfuðstað
Vestfjarða og er nú orðin for-
ystumaður meirihlutans, for-
maður bæjarráðs ísafjarðar.
Hallur Páll Jónsson sem
skipaði fyrsta sætið á G-lista
síðast er fluttur suður og kem-
ur maður í manns stað. Við-
brigði?
- Já. Það er önnur tilfinning að
vera fastur fulltrúi í bæjarstjórn
en að koma þar inn við og við,
annað viðhorf að vinna í málun-
um og hafa forystu á bæjarráðs-
fundum en að sitja og hlusta á
stöku sinnum. En þetta gerðist
ekki undirbúningslaust, ég hef til
dæmis verið áheyrnarfulltrúi í
bæjarráði síðasta árið.
Meirihlutinn: Alþýðubanda-
lagsmaður, Framsóknarmaður,
tveir úr Alþýðuflokki og einn af
lista óháðra borgara gegn fjórum
íhaldsmönnum; hvernig hefur
þetta gengið?
- Stórslysalaust. Það hafa ver-
ið smástríð í gangi, unnist eða
tapast, um það meðal annars
hvemig menn horfa til félags-
legrar aðstoðar við fólk, ungt fólk
og gamalt og venjulegt fólk sem
hreinlega getur ekki framfleytt
sér á þessum launum sem nú er
gefinn kostur á. Það hefur líka
verið harkalegur ágreiningur um
mannaráðningar. Alþýðuflokkur
og óháðir borgarar geta nánast
ekki hugsað sér að ráða í opinber-
ar stöður menn sem hafa ein-
hvern Alþýðubandalagslit. Þetta
eru ekki neinar stórstyrjaldir, -
hugmyndafræðilegur ágreining-
ur.
Stefnumál?
- Það er málefnasamningur,
sumt hefur tekist, annað ekki.
Eitt af því sem menn ásettu sér er
að flytja tæknilegan undirbúning
verkefna heim í hérað. Hér er
ágætt fyrirtæki, Tækniþjónusta
Vestfjarða, sem við höfum reynt
að nýta einsog mögulegt er.
Arfurinn: vanskil
og lausaskuldir
- Efnahagur bæjarsjóðs var al-
veg hrikalegur þegar meiri-
hlutinn tók við. Síðasti meirihluti,
Sjálfstæðisflokkur og óháðir,
byrjaði trekk í trekk á verkum en
hugsaði ekkert fyrir fjármögnun,
og nú eru allskyns lausaskuldir
mikill baggi á bæjarstjórninni,
jafnvel vanskil á vöxtum og af-
borgunum, - og hálfkláruð verk
hér útum allan bæ. Við settum
okkur því það mark að koma
bænum undan þessu fjárhags-
helsi og ljúka þeim verkefnum
sem byrjað var á.
Hér hefur þannig verið í bygg-
ingu dagheimili og leikskóli frá
1978 og ekkert hreyft við verkinu
í þrjú til fjögur ár. Nú á að reyna
að ljúka þessu fyrir næsta sumar.
íþróttavallarhúsið er hálfklárað,
neðri hæðin er notuð, búnings-
herbergi og böð, en efri hæðin
alveg ófrágengin, þar á að vera
félagsaðstaða fyrir íþrótta-
hreyfinguna. Malarvöllurinn nýi
innan grasvallarins, - það á að
reyna að ljúka honum í sumar,
mikil örtröð á völlunum og við-
kvæmt grasið á grasvellinum.
Sumar skuldir bæjarins eru frá
malbikunarframkvæmdum hér
áður fyrr, og enn á eftir að mal-
bika tvær götur uppí Eyrarhlíð og
örlítið útí Hnífsdal. Þetta er
skylduverkefni, það er ekki hægt
að ætlast til að einn og einn
bæjarbúi lifi við ryk og drullu
meðan annarra götur eru malbik-
aðar.
Vatn
- Eitt af óskamálum okkar,
þegar þessu er lokið, er að koma
vatnsveitunni hér í skikkanlegt
horf. Það er eingöngu notað yfir-
borðsvatn og hefur verið dæmt
óhæft til neyslu og jafnvel til
böðunar. Það vantar líka vatn,
stundum tæmist vatnstankurinn
hér uppí hlíðinni um fjögurleytið
á daginn og nokkrum sinnum
undanfarið hefur þurft að loka
rækjuverksmiðjunum sem nota
geysilega mikið af vatni. Ýmsar
hugmyndir eru uppi til að bæta úr
þessu. Þær þarf allar að athuga og
jafnvel að bora eftir vatni hér á
nokkrum stöðum.
Finnið þið fyrir samdrætti í
atvinnulífi?
- Nei. Ekki að öðru leyti en því
að ríkisstjórnin hefur skert kjörin
smástríð í gangi
... óaiandi og óferjandi
... ekki par hress
Þau
bestu
á
landinu
„Þetta eru þau bestu á
landinu“ sagði hinn kunni sund-
maður Hugi Harðarson sem nú
þjálfar sundmenn í Bolungarvík.
Þar er traust sundlíf og um sextíu
krakkar æfa hjá sunddeild
UMFB, í fjórum hópum. Á
myndinni er keppnisflokkurinn
að í hinni myndarlegu sundlaug í
Bolungarvík. Tólf til sautján ára
og stefndu að titlum á landsmóti
UMFÍ um síðustu helgi. Næsta
verkefni er ísladsmót yngri flokk-
anna nú um helgina. Hugi er frá
Selfossi og telur Bolvíkingana
betri en Selfyssinga í yngri
flokkunum. „En þau fara sextán
ára úr bænum í skóla annað, það
er það versta“.
hér einsog annarsstaðar. En hér
er ekkert atvinnuleysi og raunar
nóg vinna, menn geta unnið eftir-
vinnu og næturvinnu einsog þá
lystir.
Launin eru orðin óskapleg.
Tæplega sjötíu krónur á tímann í
fiskverkun í frystihúsinu. Kon-
urnar á lágmarkstaxta með því að
leggja á sig aukalega í bónusnum.
Sem er umdeilanlegur og oft svik-
inn. Þetta eru engar tekjur að lifa
af, allra síst hér þarsem orku-
kostnaðurinn er mikill.
Orkan er ekki bara dýr heldur
þurfum við að kynda betur en
víðast. Það þykir mörgum hér
undarlegt að iðnaðarráðherra og
ríkisstjórn skuli ekki enn hafa
tekist að semja um hærra orku-
verð til álversins eftir allar yfirlýs-
ingarnar um að Hjörleif vantaði
bara viljann.
Kommagrýla
Alþýðubandalagið á ísafirði?
- Hér er góður hópur flokks-
manna, en það er stór hópur
utanvið sem við ræðum við og
reynum að ná til, einlægir her-
stöðvaandstæðingar, jafnréttis-
fólk og fleiri sem ekki kæra sig
um að vera flokksbundnir.
Það er undir högg að sækja á
ísafirði. Ef til vill arfur frá krata-
tíð hér áður, kratarnir hötuðu
komma meira en íhaldið og pest-
ina. Áróður íhaldsins og Morg-
unblaðsins síðustu áratugi hefur
verið sterkur líka. Kommagrýlan
lifir hér góðu lífi hjá mörgum, og
við erum óalandi og óferjandi í
sumra augum.
Reykjavík,
ó Reykjavík...
- Við erum annars ekkert par
hress með Alþýðubandalagið.
Það er margt smátt sem hefur
hlaðist upp, og mér finnst einsog
þetta kristallist í umræðu um
kosningalög. Þetta eru tveir pól-
ar, suðvesturhornið og lands-
byggðin; það eru ólík sjónarmið,
ólíkir hagsmunir, annar lífsstíll
jafnvel og eftilvill aðrar hugsjón-
ir, - og þetta kemur vel fram í
kringum þessar stjómarskrár-
breytingar. Við landsbyggðar-
menn í flokknum samþykktum
að breyta þessu til að rétta hlut
suðvesturhornsins og ná jafn-
vægi. En það sem við samþykkt-
um var fastbundið og ákveðið
fyrirkomulag um kosningareglur
og högun þingsæta.
Alþýðubandalag
landsbyggðarinnar
Mér finnst núna að það sé verið
að koma aftan að okkur, - nú á
allt í einu að fara að breyta þessu
aftur. Það sem við samþykktum á
að vera orðið úrelt, mér sýnast
forystusauðirnir fyrir sunnan
vera á því. Það er kannski ekki
langt í að menn segi bara takk
fyrir og bless.
Verður þá stofnað Alþýðu-
bandalag landsbyggðarinnar?
- Ég skal ekkert segja um það.
En það má ekki gleyma
jafnréttishugsjóninni. Allt í lagi
að jafna kosningarétt, en guð
hjálpi mönnum ef þeir
halda að jafnrétti sé fólgið í kosn-
ingum á fjögurra ára fresti.
Jafnrétti er annað og meira. Það
felst til dæmis í jöfnum rétti til
náms og í því að menn hafi svipað
fyrir sig að leggja. Að hafa jafna
möguleika á að koma yfir sig
þaki...
Hafi menn ekki jafnan rétt til
þessara hluta, - þá er ekkert
jafnrétti.
PANORAMA - ÞÉTTILISTINN
PANORAMA- PÉTTILISTINN
er framleiddur úr P.V.C. plasti og þolir alla veöráttu. Hann heldur upphaf-
legri mýkt sinni í frosti og harðnar ekki.
PANORAMA-ÞÉTTILISTINN er inngreyptur og þéttir vel gegn hitatapi.
FYRIR HJARAGLUGQA
r
í hjaraglugga er notaöur listi með boginn legg. Hann er
greyptur í innhlið grindar á þrjá vegu en í karmhlið grindar
lamamegin. Einnig er hægt að nota lista með beinan legg í
hjaraglugga og fer það eftir gerð gluggans hvaða listi er notað-
ur. Þéttilistinn er ýmist inngreyptur í grind eða karm eftir því
sem við á.
FYRIR HURÐIR
í hurðir er notaður listi með beinan legg. Hann er inngreyptur í
karminn á alla vegu og leggst innri hlið hurðar að listanum á
þrjá vegu en lamamegin leggst kantur hurðarinnar að honum.
Gluggasmiðjan hefur ávallt fyrirliggjandi flestar gerðir
PANORAMA-þéttilistans svo og fræsitennur og tengi-
stykki á fræsara til þess verks.
Gluggasmiðlan
GISSUR SÍMONARSON SÍÐUMÚLA 20 REYKJAVÍK SÍMI 38220
'12 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Rmmtudagur 19. júl( 1984
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13