Þjóðviljinn - 19.07.1984, Blaðsíða 21
U-SIÐAN
Vinnuskóla Reykjavíkur
má telja meö stærri fyrir-
tækjum því um 1200 ung-
lingarvoru innritaðirí
skólann í vor. Þeir starfa í
liðlegaöO hópumí38
bækistöðvum í borginni og
næsta nágrenni hennar.
Tilgangur skólans er að
skapa hollt og uppbyg gj-
andi sumarstarf fyrir
æskufólk í borginni og
reynt er að láta það kynn-
ast sem fjölbreyttastri
vinnu.
Helsta verkefni nemenda
Vinnuskóla Reykjavíkur er um-
hirða opinna svæða og snyrting
við íþróttavelli, skóla og borgar-
stofnanir. Fjölmennir flokkar
starfa við trjárækt og stígagerð
við Rauðavatn, Elliðavatn og
Heiðmörk. Golfvöllur GR og
skeiðvöllur Fáks njóta einnig
starfa Vinnuskólanema.
f sumar hefur verið lögð aukin
áhersla á nýbyggingarverkefni
svo sem gerð leiksvæða í Selás-
hverfí, gangstíga við Áskirkju og
frágang hlj óðmanar við Kringlu-
mýrarbraut. 2 hópar sinna ein-
ungis snyrtingu og umhirðu í
görðum ellilífeyrisþega, og
allmargir unglingar úr V.R. að-
stoða á leik- og gæsluvöllum, í
skólagörðum og á starfsvöllum.
Nemendum sem lokið hafa 7.
bekk er ætlað að vinna í 4 stundir
á dag en nemendur 8. bekkjar 8
stundir. Laun þeirra eru ákveðin
í borgarráði.
í öllu skólastarfi er félags- og
tómstundastarf nauðsynlegur
þáttur. í sumar verður samvinna
milli Vinnuskóla og Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur um skipulagn-
ingu þess. Hinir ýmsu vinnuhóp-
ar hafa efnt til grill- eða köku-
veislu, siglinga í Nauthólsvík,
skoðunar Sædýrasafnsins, sund-
ferðar eða leikja og íþrótta. í
hverfum borgarinnar hefur verið
efnt til íþróttamóts og hverfishá-
tíðar með knattspymu, hlaupi,
Lokkandi aldurinn mættur á svæðið. Ljósm. Loftur
Vinnuskólahátíð
stökkum, brennó, reiptogi,
starfsíþróttum, hjólbömþrautum
og ýmsum leikjum öðum.
Á þriðjudaginn skipulögðu
Vinnuskóli Reykjavíkur og
Æskulýðsráð hátíð á Melavelli.
Þar fóru fram úrslitaleikir í hand-
og fótbolta, hlaupi, langstökki og
kúluvarpi. Þátttakendur voru sig-
urvegarar í hverfískeppnum sem
fram fóru fyrr í sumar. Auk þess
leiddu saman hesta sína ýmsir
hópar í fíflasporti, s.s. reiptogi og
pokahlaupi.
Nemendur vinnuskólans hafa
unnið að því að smíða mini-golf
og voru fyrstu þrjár brautirnar
vígðar á Melavellinum á þriðju-
dag. Eftir hátíðina var nemend-
um boðið í Háskólabíó til að sjá
þar teiknipoppmyndina „Rock
and Roll“.
í hörðum úrslitaleikjum urðu
eftirtaidir sigurvegarar:
100 m hlaup drengja: Vignir
Björnsson - 13.10 mín., Sigmar
Björnsson 12.2 mín., Magnús
Ragnarsson 13.3 mín. 100 m
hlaup stúlkna: Hafdís Sigurðar-
dóttir 13.8 mín., Ásdís Grétars-
dóttir 14.0 mín., Jóhanna Gunn-
arsdóttir 14.6 mín.
Langstökk drengja: Finnur
Oddsson 4.96 m, Magnús Jóns-
son 4.63 m, Ragnar Árnason 4.60
m. Langstökk stúlkna: Kristín
Pétursdóttir 4.08 m, Guðrún
Valsdóttir 3.99 m og Jóna B
Helgadóttir 3.97 m.
Kúluvarp drengja: Gísli R.
Gíslason 13.5 m, Andrés H.
Hreinsson 11.7 m, Hrafn Ágústs-
son 10.8 m. Kúluvarp stúlkna:
Ingibjörg Pétursdóttir 8.65 m,
Eyrún Björnsdóttir 7.3 m og
Guðrún Una Valsdóttir 7.2 m..
f handknattleik stúlkna sigraði
Breiðholtsskóli Miklatún með
þremur mörkum gegn tveimur og
í fótbolta drengja sigraði Heið-
mörk Vesturbæ í vítaspyrnu-
keppni.
I reiptoginu urðu úrslit þau að
Breiðholt dró Vesturbæ að sér
og pokahlaupið sigraði Heið-
mörk örugglega.
SS
Ekki dugar minna en báðar hendumar ef halda á fast í sína. Ljósm. Loftur
Pok, pok, pok,
- pok...Ljósm. Loftur
Flmmtudagur 19. |úif 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21