Þjóðviljinn - 29.08.1984, Page 10
MANNLIF
Laugardalssýningin
Trúum því að
þetta borgi sig
Húsvíkingar sýna í Laugardalshöll
Haukur Halldórsson handleikur skjaldarmerki Húsvíkinga. Mynd: -eik.
Nú er mikið um að vera í
Laugardalshöllinni, þar
stendur yfir vörusýning, sem
yfir 60 fyrirtæki og einstak-
lingar standa að. Þegar blað-
amann og Ijósmyndara þjóð-
viljans bar þar að garði sl.
þriðjudag datt þeim í hug vísu-
helmingurinn: „Dagsins
glymja hamarshögg, heimur-
inn er í smíðum“.
Alls staðar voru menn önnum
kafnir við að setja upp sýningar-
bása. Það var sagað, neglt og sóp-
að. í raun og veru heyrðist ekki
mannsins mál. Og við, sem vor-
um komnir til þess að ná tali af
honum Grími Leifssyni. Við
spurðum hvort hann væri um-
sjónarmaður með sýningu Hús-
víkinganna.
Ekki vildi hann kannast við
það, hann væri eins konar „redd-
ÞekLdr þú vandaða innihurð,
pegarpú sérðhana?
i áratugi hafa huröirnar frá Sigurði Elíassyni
notið álits sökum vandaðrar smíði og fallegs
útlits. Margar nýjungar í framleiðslu og frá-
gangi innihurða á islandi hafa átt upphaf sitt
á verkstæði okkar.
Nú kynnum við enn eina nýjung í smíði SELKO
innihurða. Með nýrri gerð innleggs hefurokkur
tekist aö hafa hurðirnar léttar, en þær eru
efnismeiri og þykkari en áður. Að 1/3 massífar,
traustar, þola mikið álag og, síðast en ekki síst,
veita mun melrl hljóðelnangrun.
Þekkir þú næst vandaða innihurð, þegar þú
sérð hana?
SELKD
m
^AVQ^
SIGURÐUR
ELlASSON HF.
AUEBREKKU l-3 200 KOPAVOGI SÍMI: 4 I3 80
ari“ fyrir sýninguna. Nokkur fyr-
irtæki á Húsavík hefðu ákveðið
að taka þátt í sýningunni og væri
það víst í fyrsta sinn, sem Húsvík-
ingar réðust í slíkt stórvirki. Eru
þeir þó hugrakkir menn, að því er
blaðamaður best veit - og mun
enda ekki í lítið ráðist.
- Dýrt? Jú, áreiðanlega er
þátttaka í svona sýningu mjög dýr
en ég veit ekkert um kostnaðinn
og kannski veit enginn um hann
ennþá.
- Borgar þetta sig?
- Við trúum því, ella værum
við ekki að þessu umstangi.
- Og hvaða húsvísk fyrirtœki
eru það svo sem sýna hérna og
hvað eru þau að kynna?
- Fiskiðjusamlagið er þarna
með ýmsa sjávarrétti. Það er t.d.
með ýmsar tegundir af kryddsfld
og rækju í sósu og er það ný fram-
leiðsla. Kaupfélag Þingeyinga
kynnir ýmiss konar kjötvörur og
hverabakað brauð. Mjólkursam-
lagið er svo m.a. með ostana sína.
Þetta er sölusýning og er gestum
gefinn kostur á að bragða á fram-
leiðslunni.
Hlynur sf. er fyrirtæki, sem
rekur bæði verslun og trésmiðju.
Framleiðir einkum alls konar
húsgögn og sýnir þau þarna. Þá
gera þeir dálítið að því að smíða
pramma (árabáta), og gefur
þarna að líta einn þeirra. Er hann
með svokölluðu Tjörneslagi,
(Mánárbátur), sem getið er um í
Sjávarháttunum hans Lúðvíks.
Hafa þrír gamlir bátasmiðir þró-
að bátinn og hver tekið við að
\ öðrum. Fyrst Júlíus Sigfússon, þá
Jóhann Sigvaldason og loks Bald-
ur Pálsson, enn á lífi, og kenndi
hann Hlynsmönnum „galdur-
inn“.
Ferðamálafélag Húsavíkur
kynnir það, sem bærinn hefur
upp á að bjóða fyrir ferðamenn.
Greint er frá ýmsu því, sem skoð-
unarvert er í bænum, þeirri að-
stöðu, sem ferðamönnum stend-
ur til boða, Heilsuvikunni á
Húsavík, ferðamöguleikum um
Á Heimilissýningunni ættu allir að geta kynnt sér
Það sakar ekki að geta þess að þeir eru alltaf fulli
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
J