Þjóðviljinn - 09.12.1984, Qupperneq 7
Hvers vegna er
kóngafólk vinscelt?
Glaumgosinn feiti sem
varsíðasti konungur
Egyptalands, Farúk hét
hann, lét einu sinni svo um
mælt, að dagar kónga í
heiminum væru senn taldir.
Um næstu aldamót, spáði
hann, verða aðeins f imm
kóngar uppi - Hjartakóng-
ur, Spaðakóngur, Tígulk-
óngur, Laufakóngurog
Englandskóngur.
Rétt er það að minnsta kosti
hjá Farúk, að breskir þegnar láta
engan bilbug á sér fínna í dýrkun
sinni á konungsfjölskyldunni. Að
sönnu hafa jafnan verið til lýð-
veldissinnar í Bretlandi og Wil-
liam Hamilton, þingmaður
Verkamannaflokksins frá Skot-
landi, er einn þeirra sem þreytast
ekki á að kvarta um alla þá sóun
sem fylgir því að halda uppi kon-
ungsfjölskyldu. Hamilton er
meira að segja svo ókurteis
stundum, að kalla Elísabetu
drottningu og hennar fólk sníkju-
dýr. En slíkur málflutningur fell-
ur ekki í góðan jarðveg á Bret-
landi, svo mikið er víst. Og einn
af helstu talsmönnum Verka-
mannaflokksins hefur látið svo
um mælt að „við eigum okkur
enn andstæðinga konungdæmis,
en við getum ekki leyft okkur
þann munað að stríða gegn fólk-
inu í Buckinghamhöll. Það kostar
okkur atkvæði og við höfum nú
þegar tapað alltof mörgum".
Flótti og
huggun
Þegar talið berst að vinsældum
breska kóngafólksins grípa menn
einna helst til einhvers konar fé-
lagssálfræði. Sumir segja sem
svo, að kóngafólkið sé tákn og
ímynd um horfinn eða hverfandi
mikilleik Bretlands, sem margur
sakni og vildi gjarna láta minna
sig á. Þá sé það líka þægilegur
lífsflótti ef svo mætti að segja, að
fylgjast með brúðkaupum og
barnaskírnum hjá fjölskyldu,
sem nýtur forréttinda ævintýra
persóna - þeim mun fremur sem
það er þegjandi samkomulag um
að halda drottningu utan við hið
pólitíska þref eftir því sem hægt
er. Enn er minnt á hið gífurlega
afl fjölmiðlanna sem heldur uppi
stöðugum áhuga á kóngafólkinu.
Til að mynda hafa öll helstu blöð
nokkurt lið að starfi sem hefur
það verkefni að standa á „kónga-
gægjum“ ef svo mætti að orði
komast. Og fjölmiðlarnir geta
fyrir sitt leyti komist furðu langt
með að laga persónur úr kónga-
fólksleikritinueilífa í hendi sér.
James Whittaker heitir konungs-
spíón blaðsins Daiiy Mirror og
hann hefur komist svo að orði í
viðtali um Díönu prinsessu og
mann hennar Karl ríkisarfa og
prins af Wales:
„Það er ekki rétt að ég hafi
komið þessu hjónabandi á fót.
Hitt er svo rétt, að við byggðum
Díönu prinsessu upp sem svo
sæta og saklausa veru, að Eng-
lendingar urðu á augabragði bál-
skotnir í henni. Ef að Karl hefði
gert sig sekan um þá heimsku að
giftast henni ekki - þá hefði hann
gert sig mjög óvinsælan". Whit-
taker bætir því við, að Diana sé
að sönnu ekkert gáfnaijós, en
hún „vissi alltaf hvað hún vildi“.
Enn er að minna á það, að
breska kóngafólkið, hefur all-
miklu hlutverki að gegna sem
sölumenn breskrar vöru - rétt
eins og annað kóngafólk í Evrópu
stendur líka í því að „selja“ alls-
konar varning frá sínum löndum.
Svo virðist sem öngvir séu eins
jafnforlyftir í kóngafólki og aðli
og einmitt hákarlar viðskiptalífs-
ins. Ef maður getur boðið upp á
kóng eða drottningu, er haft eftir
dönskum diplómata, þá standa
allar dyr opnar.
Eyrir
ekkjunnar
En kannski er það lífsflóttinn
og öskubuskudraumurinn sem
mestu ræður um vinsældir kóng-
afólksins þegar allt kemur til alls.
Þegar kolanámumenn berjast við
lögreglu upp á dag hvern, þegar
atvinnuleysingjar eru talsvert á
fjórðu miljón, leita furðu margir
sér huggunar í því að einhvers
staðar sé til fólk sem sýnist alsælt
og er bæði ríkt og frægt fyrirhafn-
arlítið. Þess er skemmst að minn-
ast, hvílíkur fögnuður greip um
sig á Bretlandi nú í september í
haust þegar margnefnd Diana
prinsessa eignaðst annan son
sinn. Fögnuður þessi kom einatt
fram í grátbroslegum dæmum
eins og þegar sjónvarpsvélar
veiddu til að mynda unga konu á
skerminn daginn sem nýr prins
kom í heiminn. Hún hafði lagt að
baki langa leið frá fátæku út-
hverfi Lundúna og sagði:
„Ég fékk lánuð þrjú pund hjá
grannkonunni til að geta keypt
blómvönd handa prinsessunni.
Ég var nefnilega ekki búin að fá
greiðsluna mína frá Félagsmála-
stofnun...."
Andspænis svo hjartnæmum
senum þótti það eins og hver ann-
ar dónaskapur þegar vinstrisinn-
aður þingmaður, Stan Thorne,
sagði í viðtali við Time sama dag:
„Eg ætla bara að vona að prinsinn
muni eiga auðveldara með að
koma sér í vinnu síðarmeir en þau
börn flest sem í heiminn koma í
mínu kjördæmi....“
ÁB tók saman
f% Rannsóknaaðstaða við
JSS Atómvísindastof nun
Norðurlanda (NORDITA)
Við Atómvísindastofnun Norðurlanda (NORDITA) í
Kaupmannahöfn kann að verða völ á
rannsóknaaðstöðu fyrir íslenskan eðlisfræðing á
næsta hausti. Rannsóknaaðstöðu fylgir styrkurtil eins
árs dvalar við stofnunina. Auk fræðilegra atómvísinda
er við stofnunina unnt að leggja stund á stjarneðlis-
fræði og eðlisfræði fastra efna.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í fræði-
legri eðlisfræði og skal staðfest afrit prófskírteina
fylgja umsókn, ásamt ítarlegri greinargerð um
menntun, vísindaleg störf og ritsmíðar. Umsóknar-
eyðublöð fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 101 Reykjavík. - Umsóknir skulu sendartil: NOR-
DITA, Blegdamsvej 17, DK-2100 KöbenhavnÖ, Dan-
mark, fyrir 15. desember nk.
Menntamálaráðuneytið
5. desember 1984.
YASHICA MF2
a ltr.2500
nett mundavál sem
notar.3Smm
filmu
• Innbyggt eilífðarflass, sem gefur merki sé notkun
þess þörí.
• Rafhlöður endast á u.þ.b. 250 ílassmyndir.
• Engar stillingar
MYNDARLEG GJÖF
HfíNS PETERSEN HF
Jörð til sölu
Vegna pólitískra ástæðna er eftirgreind jarðeign til
sölu þ.e. Undirfell í Vatnsdal A-Hún. Á jörðinni hvíla
engar veðskuldir og/eða aðrar fjárhagslegar skuld-
bindingar.
Hlunnindi eru lax- og silungsveiði, gæsa- og rjúpna-
veiði. Kvaðir eru eftirgreindar: land undir kirkju og
kirkjugarð, hefur hingað til verið gjaldfrítt, einnig er
sauðfjár- og hrossarétt á jörðinni og nokkur ágangur
og óþægindi er af því, en á móti kemur að frí fjallskil
eru af allt að 350-400 ærgildum sem þýðir í raun að
jarðeigandi þarf vart að fara í göngur nema hann vilji.
Þar sem veðursæld er mikil í Vatnsdalnum er jörðin
mjög hæf að hluta tii nytjaskógræktunar og ef hugs-
anlegur kaupandi vildi leggja verulegt fé í skógrækt
getur orðið lágt nafnverð á jörðinni.
Hinsvegar yrðu þá mjög strangir skilmálar um fram-
kvæmd og eftirlit á því að við áætlun yrði staðið að
viðlagðri riftun á sölusamningi.
Áætlaður framkvæmdartími yrði 2-4 ár og eftirlitstími
10-15 ár. Áætlaður stofnkostnaður er um 1 -1,5 milljón
fyrir utan jarðarverðið sem yrði að uppfylltum skilyrð-
um mjög lágt.
í tilboði skal vera nafn tilboðsaðila einstaklings og/eða
samtaka ásamt símanúmeri.
Sérákvæði: ekki þýðir fyrir Sjálfstæðisflokksmenn að
gera tilboð eða Framsóknarmenn sem hafa kosið
þann flokk eftir 1978. Tilboði frá slíkum aðilum er
fyrirfram hafnað, ennfremur áskilur seljandi sér rétt til
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Þinglýstur eigandi og seljandi er Bjarni Hannesson.
Tilboð skulu send í pósthólf 340, Kópavogi. Merkt
„Pólitík 007“.