Þjóðviljinn - 09.12.1984, Page 11
„...unnið vœri sterkiega á
móti mér af ísiands hálfu“
skrifaði Halldór Laxness Auði konu sinni þegar að dró veitingu Nóbelsverðiauna
Á Gljúfrasteini heitir samtals-
bók Eddu Andrésdóttur við
Auði Laxness sem nýkomin
er út hjá Vöku. Þjóðviljinn hef-
ur fengið leyfi til að birta kafla
úr bókinni og er þar fyrst gripið
niður, sem segirfráatvikum
sem varðafyrstu kynni þeirra
Auðar og Halldórs Laxness,
en síðan í upphafskafla um
Nóbelsverðlaunin. Millifyrir-
sagnir eru Þjóðviljans.
Þetta er mjólkin
þín, Halldór
Ég á yndislegar minningar úr
sumarferðalögum okkar á þess-
um árum. Hann var mjög
skemmtilegur ferðafélagi. Mikill
göngumaðun og vel kunnugur
alls staðar. Ég hafði alltaf verið
mikið fyrir að ferðast um landið,
en Halídór reyndist hafa miklu
meira hugmyndarflug í þeim efn-
um heldur en ég.
Eitt fyrsta ferðalag okkar hóf-
um við með stefnumóti í Hall-
ormsstaðaskógi. Halldór var þá
að skrifa austur á landi, og notaði
meðal annars tímann til að vitja
Gunnars Gunnarssonar og konu
hans að Skriðuklaustri. En ég átti
góðar stundir með Sigrúnu
Blöndal skólastýru Hallorms-
staðaskóla, sem hafði látið nem-
endur sína lesa bækur Halldórs
árum saman.
Frá Hallormsstað fórum við
Halldór yfir Mývatnsöræfi og
dvöldum í nokkra daga á Skútu-
stöðum hjá séra Hermanni Hjart-
arsyni og Kristínu konu hans.
Hvar sem Halldór kom tók ég
eftir því að honum var jafnvel
tekið.
Einhverju sinni upp úr hvíta-
sunnu, gengum við um Snæfells-
nes ásamt Ásdísi systur minni,
Kristni E. Andréssyni og Þóru
Vigfúsdóttir konu hans. Það var
ógleymanlegt ferðalag. Við vor-
um á göngu alla daga, í sólskini
og góðu veðri í hálfan mánuð, og
einn daginn þegar okkur þótti
nógu bjart, gengum við á jökul-
inn. í þessu ferðalagi bjó ég til
mat í fyrsta skipti á ævinni.
Ásdís var líka með í för þegar
við vorum hjá Hlín Johnsson,
sem hafði búið með Einari Bene-
diktssyni síðustu árin sem hann
lifði í Herdísarvík. Hjá Hlín
dvöldumst við í vikutíma í byrjun
júní.
Við ókum austur í Ölfus. Það-
an gengum við í Selvog og til Her-
dísarvíkur. Á heimleiðinni
gengum við Grindaskörð og nið-
ur í Hafnarfjörð. Halldór var ör-
uggur fararstjóri, og vissi ná-
kvæmlega hvar átti að fara. Þetta
var ein af þessum ógleymanlegu
ferðum.
Hlín var sérkennileg kona og
afar hrifin af skáldum. Hún dá-
samaði Halldór, en fannst lítið til
okkar Ásdísar koma. Hún las í
lófa fyrir okkur, og sá fyrir stóra
atburði hjá Halldóri en ekki
nokkurn sícapaðan hlut hjá okkur
Ásdísi.
Hlín sagði okkur margt úr ævi
sinni með Einari Benediktssyni
og lánaði Halldóri herbergið
hans. Hún bauð honum líka sæti í
leðurstól sem þarna var, og tók
fram að enginn annar mætti sitja í
þeim stól; Einar Benediktsson
hefði setið í honum og Snorri
Sturluson hefði fengið leyfi til að
sitja í honum.
Hún hafði eina kú sem mjólk-
aði illa. Hlín gætti þess samt að
Halldór fengi næga mjólk eða
alla nytina. Hún setti mjólkur-
könnuna á borðið fyrir framan
hann og sagði ákveðin: „Þetta er
mjólkin þín, Halldór."
Takk, sömuleiðis
Hvenær giftuð þið Halldór
ykkur?
Samband okkar stóð í rúm
fimm ár, áður en að því kom. Við
giftum okkur ekki fyrr en um jól-
in 1945, þegar þetta hús var tilbú-
ið til íbúðar. Ég man að dr.
Gunnlaugur Claessen var farinn
að hafa orð á því að það væri nú
ekki gott að vera trúlofaður of
lengi, og nefndi dæmi því til
sönnunar;
í bréfi sem ég skrifaði Halldóri
árið 1942, hef ég í framhaldi af
orðum hans séð ástæðu til að
spyrja hvort hann hafi verið að
biðja mín. Hann skrifaði mér aft-
ur og svaraði: „Já, ég var að biðja
þín, en ég þarf minn tíma.“
Halldór hafði verið kvæntur í
níu ár þegar ég kynntist honum.
Hann átti son og heimili, en ég
gætti þess að blanda mér ekki í
þau mál. Enn þann dag í dag hef
ég ekki spurt hann hvenær hann
skildi löglega við fyrri konu sína.
Enda kemur manni ekki við það
sem liðið er.
Um það bil sem byggingu
Gljúfrasteins lauk, árið 1945,
sagði Halldór við mig: „Nú förum
við suður í Hafnarfjörð og látum
gifta okkur.“ Hann vildi láta gefa
okkur saman í þeim kaupstað
sem byggðarlag okkar tilheyrði.
Við giftum okkur á aðfanga-
dag. Ég var að vinna þennan dag,
við vorum að skreyta ganga spít-
alans eins og vant er fyrir jólin.
Ég bað um leyfi til að skreppa frá
og fór í brúðarskartið, dökkbláan
ullarkjól með hettuslá utan yfir
úr sama efni.
Halldór sótti mig í stöðvarbíl
og við ókum sem leið lá til Hafn-
arfjarðar. Við höfðum áður
ákveðið að vinur Halldórs, Berg-
ur Jónsson sýslumaður skyldi
' ..-Ugr .■
'&M
mmmm
Auður á jeppanum góða (1952)
Gengið til Nóbelshátíðar
Auður les fyrir Sigríði dóttur sína (1953)
Þrjár systur,
Ásdís, Fríða og
Auður Sveinsdætur (1940)
Kaflar úr bók Auðar og Eddu Andrésdóttur,
„ÁGIjúfrasteini"
gefa okkur saman. En þegar
hann lést, kom það í hlut eftir-
manns hans, Guðmundar í. Guð-
mundssonar.
Ég var hálf-utan við mig á með-
an á athöfninni stóð. Þegar sýslu-
maðurinn tók í hönd mér og
sagði: „Ég óska yður til ham-
ingju", svaraði ég: „Takk sömu-
leiðis.“
Eftir vígsluna fór ég aftur í
vinnuna. Það fór lítið fyrir gift-
ingunni. Á Röntgendeildinni
vissi.enginn af henni, fyrr en að
þremur vikum liðnum. Ég sagði
foreldrum mínum frá þessu síðar
þennan sama dag að athöfninni
lokinni. Aðeins systur mínar og
ívar móðurbróðir minn vissu að
það stæði til.
Við höfum aldrei haldið upp á
brúðkaupsdaginn. En í gamla
daga gerðum við oft eitthvað til
hátíðabrigða 21. desember. Þann
dag kölluðum við fyrsta sumar-
dag. Halldór hafði skrifað grein
sem ég var hrifin af, og hét
„Heiðin jól og kristin". Þar fjall-
aði hann um vetrarsólhvörf, þeg-
ar dag tekur aftur að lengja.
Kauptu þér
veiðistöng
„Det blev Laxness.“ Tilkynn-
ing Anders Österling, ritara
sænsku Akademíunnar, var stutt
og laggóð. Tuttugu mínútna
fundi þrettán af átján meðlimum
Akademíunnar f Börshúsinu í
Stokkhólmi var lokið. Það losn-
aði um spennuna í loftinu. Frétt-
amannahópurinn, sem beðið
hafði við fundarherbergið, tvístr-
aðist á skammri stundu.
Þennan dag, föstudaginn 27.
október 1955, var Halldór Lax-
ness staddur í íbúð vinar síns Pet-
ers Hallbergs í Gautaborg. Um
miðjan dag hringdi síminn,
Anders Österling tjáði Halldóri
að bókmenntaverðlaun Nóbels
kæmu að þessu sinni í hans hlut;
„fyrir litauðug epísk verk hans,
sem hafa endurnýjað íslenska
sagnalist", að dómi Akademí-
unnar.
Fljótlega fylltist íbúðin hjá
Kristínu og Peter Hallberg af
fólki, og heillaóskaskeyti tóku að
berast. f vel þegnu skeyti frá ís-
landi sagði: „Hundrað manns
hylla þig á Gljúfrasteini!"
Hvernig bárust Auði þessi
sögulegu tíðindi?
I októberlok voru gestir hjá
mér í nokkra daga, segir hún,
hjónin Jytte og Stefán Þorvalds-
son ásamt barni þeirra. f hádegis-
fréttum útvarpsins var sagt að nó-
belsverðlaunahafinn í bók-
menntum yrði gerður heyrin-
kunnur síðdegis þennan föstu-
dag. Ég var uppi að hafa fata-
skipti og hafa mig til fyrir síðdeg-
ið eins og ég var vön, þegar mér
datt í hug að skrúfa frá BBC niðri
í borðstofu. Fréttatíminn var þá
að enda, ég heyrði þó eitt orð
þularins, sem var nafnið Laxness.
Ég var á leiðinni upp stigann,
þegar fólk fór að hringja. Fyrstur
hringdi Hersteinn Pálsson rit-
stjóri Vísis. Hann hafði heyrt tíð-
indin. Eggert Stefánsson söngv-
ari og vinur okkar var staddur hjá
honum. Ég talaði við þá báða, og
varð mikill fögnuður hjá okkur...
Ég sleppti ekki símanum næstu
fjórar klukkustundirnar, fékk
ekki tóm til að klæða mig nema
lauslega, og nú sagði ég við alla
sem hringdu: „Þið komið í
kvöld!“
Peter Hallberg hringdi frá
Gautaborg, og ég átti aðeins stutt
samtal við Halldór.
Um kvöldið voru meira en
hundrað gestir samankomnir í
Gljúfrasteini. Þá voru margar
góðar ræður fluttar, sem verst er
að eiga hvorki á blaði né prenti.
Meðal þeirra sem töluðu voru
vinir Halldórs; doktorarnir Sig-
urður Þórarinsson, Jakob Bene-
diktsson og Björn Sigurðsson á
Keldum. Það var mikill fögnuður
í húsinu, og við sendum skeytið
til Halldórs.
Hvar sem flett var upp í ís-
lenskum og útlendum blöðum
næstu daga, gaf að líta greinar og
myndir af skáldinu. Þar kenndi
margra grasa. í Morgunblaðinu
‘28. október, birtust ummæli
nokkurra mætra manna. Þar
sagði Tómas Guðmundsson með-
al annars:
„Það eru nú rösk þrjátíu ár síð-
an ég spáði, að Halldór Kiljan
Laxness mundi fá nóbelsverð-
launin. Reyndar vissi ég ekki þá,
hvað sænsku Akademíunni er
stundum ósýnt um að hugsa en
allt að einu hljóta íslendingar að
fagna af alhug þeim sóma sem
þessum öndvegishöfundi þeirra
hefur loks hlotnast."
í Þjóðviljanum, sama dag,
birtust meðal annars þessi um-
mæli Einars Olgeirssonar, for-
manns Sósíalistaflokksins: „Það
er vonandi að öll þjóð vor geti nú
sameinast um það að meta til fulls
sitt mesta skáld.“
Ólafur Jóhann Sigurðsson, rit-
höfundur komst þar meðal ann-
ars svo að orði: „Ég var farinn að
halda að „átjánmenningarnir“
mundu hafa lag á því að ganga
fram hjá honum, eins og þeir
höfðu lag á því að ganga fram hjá
Ibsen, Strindberg, Gorkí,
Dreiser og Nexö.
Ég vona nú að Halldór verji
þessum verðlaunum skynsam-
lega; kaupi sér veiðistöng!"
Nóbelsverðlaun
og pólitík
í nokkur ár hafði mikið verið
rætt um það og ritað, að Halldór
ætti tilkall til nóbelsverðlauna.
Var sú hugmynd ofarlega á baugi
í Gljúfrasteini?
Nei. Ég man fyrst eftir að
minnst væri á að Halldór ætti
heima í hópi nóbelsverðlauna-
hafa í sænskum ritdómi árið 1948,
eins og áður er sagt. En við
höfðum hvorki hugsað né rætt
um þessi verðlaun, fyrr en Hall-
dór skrifaði mér haustið 1954 frá
Svíþjóð: „Einhverjar bestu frétt-
ir sem ég heyrði í Stokkhólmi
voru þær að Churchill ætti að fá
nóbelsverðlaunin. Eins og þú
getur nærri létti af mér fargi að
frétta það.“
f sama bréfi sagði Halldór, að
það hefði að líkindum verið fyrir
atbeina sænska skáldsins og bók-
menntafræðingsins Arthurs
Lundkvist, að bókmenntaverð-
laun Friðarráðsins komu í hans
hlut fáum árum áður.
En sumir sögðu að Lundkvist
hefði átt stærstan þátt í að Hall-
dór fékk nóbelsverðlaunin. Ég
held að hann hafi ekki átt sæti í
Akademíunni fyrr en síðar.
Winston Churchill fékk verð-
launin 1954. Ég man eftir
gagnrýni í sænskum blöðum
vegna þess. Meðal annars voru
heilsíðumyndir af honum og
Halldóri, yfir opnu sænsks tíma-
rits, þar sem látin var f ljós óá-
nægja með úthlutunina.
Hafði þessi umræða ekki áhrif?
Bollaleggingar um nóbelsverð-
launin höfðu engin áhrif á okkur.
Hins vegar var hér meiri gesta-
gangur 1954 en nokkrir sinni
áður, af fólki og frétfamönnum.
Stöðugur straumur gesta.
Halldór minntist aftur á
nóbelsverðlaun í bréfi, sem hann
skrifaði mér frá Svíþjóð í maí
1955, þá nýkominn þangað frá
Danmörku:
„Bæði frú Krook frá Nordisk
Tonefilm og þýski þýðarinn minn
Harthern létu mig heyra, þó eftir
öðrum, þær skoðanir úr átt
sænsku Akademíunnar, að þetta
væri í bígerð, en unnið væri mjög
sterklega á móti mér af íslands
hálfu á stjórnmálagrundvelli, og
litlar líkur til að ég fengi nóbels-
verðlaun nema ég breytti um af-
stöðu í pólitík. Fyrir alla muni
farið ekki til Moskvu núna, ekki
fyrr en í haust, segja þau. Svona
skilaboð liggja fyrir mer hérna.
Það er erfitt að hugsa sér nokkuð
sem geti verkað jafnöfugt við til-
gang sinn á mig eins og svona um-
hyggja"
Áður hafði verið deilt á sænsku
Akademíuna fyrir að ganga fram-
hjá Halldóri, og ástæður eins og
stjórnmálaskoðun og svokölluð
„Stalín-verðlaun“ tilgreindar?
Ég veit ekki hvernig uppnefnið
„Stalín-verðlaun“ er tilkomið.
En nokkrum árum áður en Hall-
dór fékk nóbelsverðlaunin, voru
honum veitt bókmenntaverðlaun
Friðarráðsins í Vín eins og fyrr
segir, sem var álitinn mikill
heiður. Verðlaunin voru veitt í
austurrískum peningum, en
komu Stalín ekkert við. Halldór
var friðarsinni, og starfaði af lífi
og sál í friðarhreyfingum í mörg
ár. Hann dró sig í hlé þegar hon-
um fannst starfsemin einkennast
um of af stjórnmálaþrasi. „Stalín-
verðlaun“ er enn að finna í ýms-
um uppláttcrbókum. Hann nenn-
ir ekki að leiðrétta það. Hann er
latur að skrifa bréf.
Skrif um stjórnmálaskoðun
Halldórs komust upp í vana.
Maður hélt sínu striki og lét
nægja að hlusta með öðru eyr-
anu. En öllum sem hér hafa dval-
ist, ber saman um að hvergi hafi
þeir heyrt minna talað um
stjórnmál. Halldór hafði aðeins
eitt áhugamál, að berjast fyrir að
fá tíma til að sinna skáldsögum
sínum.
1 einu blaðanna kvaðst Halldór
ekki hafa áhuga á verðlaununum,
og sagði að í Ameríku einni væri
ótölulegur fjöldi sem ætti þau
skilið. Heyrðir þú þessa skoðun
hans?
Ég er viss um að hann sagði það
satt. Hann hefur oft minnst á
marga óþekkta menn, sem væru
vel að verðlaununum komnir, og
það hefur líka sýnt sig. Á undan-
förnum árum hafa nokkrir jafn-
aldrar hans fengið nóbelsverð-
laun. Þeir voru búnir að skrifa
sínar bestu bækur 1955, svo þetta
var ekki sagt út í bláinn.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. desember 1984
Sunnudagur 9. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11