Þjóðviljinn - 09.12.1984, Page 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Miðstjórn AB
Fundur 8. - 9. desember
Fyrsti fundur nýkjörinnar miðstjórnar Alþýðubandalagsins er boð-
aður helgina 8. - 9. desember nk. Hefst hann kl. 13.00 að Hverfis-
götu 105. Dagskrá: 1) Kosning framkvæmdastjórnar. 2) Kosning
utanríkismálanefndar. 3) Skipan starfshópa kjördæma innan
miðstjórnar. 4) Umræður um verkefni sem flokksráðsfundur vísaði
til miðstjórnar. 5) Þjóðviljinn og útgáfa flokksins. 6) Fjármál AB. 7)
Niðurstöður ASÍ-þings. 8) Önnur mál. Áætlað er að fundinum Ijúki
um kl. 16.00 á sunnudeginum. Mikilvægt er að allir miðstjórnar-
menn mæti á þennan fyrsta fund til að ræða verkefnin á næstu
misserum og starfsaðferðir. Landsfundur er á næsta ári og mikil-
vægt að hefja undirbúning hans sem fyrst. - Formaður.
Umhverfisrnálahópur AB
Fundur um álver við Eyjafjörð
verður haldinn miðvikudaginn 12. desember að Hverf isgötu 105
og hefst hann kl. 20.30. Þóroddur Þóroddsson jarðfræðingur og
starfsmaður Náttúrugripasafns Akureyrar segir frá baráttu áhug-
asamtaka gegn áíveri við Eyjafjörð og stöðu mála. Þessi umræðu-
hópur um umhverfismál er opinn öllu áhugafólki og er flokksleg
aðild að Alþýðubandalaginu ekki skilyrði fyrir þátttöku.
AB Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur á mánudag
Fundurinn verður mánudaginn 10. desember í Skálanum,
Strandgötu 41. Undirbúningur fyrir næsta bæjarstjórnarfund, mál-
efni nefnda og önnur mál. Munið að fundurinn er opinn öllum
félagsmönnúm.
AB Akureyri
Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn í bæjarmálaráði mánudaginn 10. des. kl.
20.30. Dagskrá: 1) Rædd stefnaog vinnubrögðviðfjárhagsáætlun
Akureyrarbæjar fyrir árið 1985. 2) Atvinnumálin. Ráðið er opið
öllum félögum. Mjög mikilvægt er að fulltrúar flokksins í nefndum
mæti.
AB Keflavík
Bókmenntakynning
verður haldin sunnudaginn 9. desember kl. 17.00, í húsi verslun-
arfélagsins að Hafnargötu 28. Dagskráin hefst með því að Edda
Andrésdóttir les úr bók sinni og Auðar Laxness „Á Gljúfrasteini".
Þorgeir Þorgeirsson les úr bók sinni „Ja þessi heimur", og úr nýrri
þýðingu sinni á bók Heinesens „De fortabte spillemænd". Að
lokum mun Árni Bergmann lesa úr nýrri skáldsögu sinni „Með
kveðju frá Dublin". Léttar veitingar og piparkökur. - Stjórnin.
Almennur
fundur
verður í Rein, sunnudaginn 9. desember kl. 14.00. Dagskrá: Fisk-
veiðistefnan og kvótakerfið. Framsögumenn verða Margrét
Frímannsdóttir og Skúli Alexandersson.
ABR
BÆJARRÖLT
Nú andar suðrið
Það hlægir mig að við íslend-
ingar, þessi friðelskandi og her-
lausa þjóð, skulum vera orðnir
aðalskotmark í kjarnorkustríði.
Það þurfti samt ekki að segja mér
tíðindin þrisvar.
Fyrir nokkrum árum var ég
sendur af blaðinu mínu í kana-
kokteil á Vellinum og ég fór með
lítils háttar hiksta og ropa. Þetta
mun hafa verið í fyrsta skipti sem
blaðamaður Þjóðviljans var
sendur slíkra erindagjörða suður
á vit „óvinarins" í sjálft víg-
hreiður hans. Formlegt tilefni var
koma fljúgandi ratsjártölva sem
kallast AWACS en raunveru-
legur tilgangur var að spyrja
óþægilegra spurninga og taka
ljósmyndir. Við höfðum nefni-
lega haft af því spurnir að senni-
lega væri Keflavíkurflugvöllur
kjarnorkuvíghreiður, höfðum
lesið það í bandarísku hernaðar-
tímariti. Það skal tekið fram að
þetta var árið 1978 eða áður en
hinn grunsamlegi öfgamaður Vil-
hjálmur af Örkinni kom fram í
dagljósið.
Jæja, það er ekkert með það að
við erum snarlega drifnir í kokt-
eilinn svona rétt til að hita okkur
upp áður en Flinn óttalegi leynd-
ardómur, tækniundrið AWACS,
heiðraði Miðnesheiði með nær-
veru sinni. Svo kom flugvélin
með ratsjárskjá á herðum og út
sté frítt lið með Martíni aðmírál í
broddi fylkingar. Við heilsuðum
honum kærlega og hann bauð
okkur að ganga um borð. Að því
búnu var skálmað í sjálfan offís-
éraklúbbinn og sest til borðs yfir
tíbónsteik og rósavíni með ís í
piparmintulíkjör í eftirmat.
Borðnautur minn var enginn
annar en cólónel Zompa og
tókum við tal saman og fór vel á
með okkur. Hann hafði þúsund
flugtíma reynslu í bardaga í Víet-
nam og fannst honum ég ekki til-
takanlega fróður um hermál,
ruglaði t.d. stöðugt saman Army,
Navy og Air Force, honum til ær-
innar undrunar. Af meðfæddri
kurteisi spurði ég hann ekki hvað
hann hefði drepið marga í Víet-
nam en sá að í barmi bar hann
fljúgandakrossmedalíuna með 8
eikarlaufum svo að eitthvað hef-
ur það verið.
Zompa lék á alls oddi og gam-
anmál flugu um borð þó að fullrar
virðingar væri vissulega gætt.
Hann sagði brandara frá Ulinois,
USA, og sem snöggvast datt mér
í hug að vitna í Gerplu en þá sá ég
stálglampann bak við gullspang-
argleraugun og datt í hug að það
þýddi kannski ekki.
Á eftir steikinni hóaði ég í
Perry Bishop, talsmann banda-
ríska hersins á Keflavíkurvelli, til
að spyrja óþægilegra spurninga.
Ég spurði um svokaliað „Hot
cargo“ eða heitan flutning sem
kemur til Keflavíkur 4 sinnum á
ári og hvort unnt væri að leyna
kjarnorkuvopnum þar. Hann
kannaðist greinilega við „Hot
cargo“ en sagði að það væru bara
ósköp venjulegar vítiskúlur,
sprengiefni og þess háttar en hins
vegar hefði hann alls ekki leyfi til
að svara spurningum um hið
síðarnefnda. Það var það.
Svo kvaddi ég Martíni, aðmír-
ál, cólónel Zompa og Pétur bisk-
up með virktum. En mikið var ég
feginn í rútubílnum á heimleið-
inni og þakklátur bílstjóranum
þegar Nú andar suðrið hljómaði í
gegnum gamla Gufunesradíóið.
-Guðjón
Flugið
heillar
LAUSAR STÖDUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Spilakvöld
Munið spilakvöldið þriðjudaginn 11. desember. Hefst kl. 20.00 að
Hverfisgötu 105.
ÆSKULÝPSFYLKINGIN
Utanríkismálahópur ÆF
Fundur
verður haldinn þriðjudaginn 11. desember nk. kl. 20.30. Á dag
skránni er starfið framundan.
Sjúkrahús á Sauðárkróki
Tilboð óskast í innanhússfrágang á 1. og 3. hæð
nýbyggingar Sjúkrahússins á Sauðárkróki.
Hæðirnar eru nú tilbúnar undir tréverk. Verkinu við 1.
hæð sé lokið 15. júní 1985 og öllu verkinu 15. júlí 1986.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni
7, Rvík., gegn 10.000.-kr.skilatryggingu.Tilboðverða
opnuð á sama stað föstudag 21. desember 1984, kl.
11.00 fh.
Út er komin hjá Máli og menn-
ingu unglingaskáldsagan Flugið
heillar eftir hinn vinsæla breska
rithöfund K.M. Peyton. Þetta er
önnur bókin í fjögurra binda
verki; fyrsta bókin Flambards-
setrið, kom út í fyrra.
Sagan gerist á árunum 1912-14,
henni lýkur um sama leyti og fyrri
heimsstyrjöldin skellur á. Krist-
ina og Vilhjálmur hlaupast á
brott frá Flambards þar sem allt
er læst í miðaldavenjur og setjast
að á flugvelli skammt frá Lund-
únum, í nútímanum miðjum. Vil-
hjálmur fær vinnu sem flugvirki
og síðar flugmaður og Kristína
fer að starfa á hóteli. Gegn vilja
sínum hlýtur hún að taka þátt í
þeirri hættulegu íþrótt sem flugið
var á þessum tíma, jafnvel fljúga
yfir Érmarsund þótt hún vildi
helst halda sig við jörðina.
Sagan er viðburðarík og spenn-
andi og mannlýsingar vel gerðar.
Áður hafa komið út sjö skáld-
sögur handa unglingum eftir
K.M. Peyton. Silja Aðal-
steinsdóttir þýddi.
Wom/ÍNN
Breikkar
sjóndeildarhringinn
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
Skrifstof umann í fjölskyldudeild Félagsniálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4. Góð vélritunark-
unnátta æskileg. Upplýsingar veitir yfirmaður fjöl-
skyldudeildar í síma 25500.
Forstöðumann mötuneytis Droplaugarstaða, vist-
og hjúkrunarheimilis aldraðra, Snorrabraut 58.
Æskilegt er að viðkomandi sé matreiðslumaður með
meistararéttindi. Upplýsingar veitir forstöðumaður í
síma 25811.
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast til starfa
á hjúkrunardeild Droplaugarstaða nú þegar eða eftir
nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðu-
maður í síma 25811.
Deildarmeinatæknir óskast í hálft starf hjá Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur. Upplýsingar veitir hjúkrun-
arforstjóri og framkvæmdastjóri í síma 22400.
Hjúkrunarfræðingar óskast við eftirtaldar deildir
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur: Barnadeild,
Heimahjúkrun, Heilsugæslu í skólum. Einnig óskast
hjúkrunarfræðingar á kvöldvaktir í heimahjúkrun. Um
er að ræða bæði heilar stöður og hlutastörf. Upplýs-
ingar veitir hjúkrunarforstjóri og framkvæmdastjóri í
síma 22400.
Fóstrurvið Dyngjuborg, Fellaborg, Laufásborg, Leik-
fell, Múlaborg og skóladagheimilið Langholt. Upplýs-
ingar veitir forstöðumaður viðkomandi heimilis eða
umsjónarfóstrur á skrifstofu dagvistar barna í síma
27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00,
mánudaginn 17. desember 1984.