Þjóðviljinn - 09.12.1984, Blaðsíða 17
LEÐARAOPNA
Allir í basli
Pétur Ásgeirsson: „Að sjálfsögðu er bilið að stækka. Pað er alltaf að
aukast og auðvitað er til fólk sem er flugríkt. Sem lifir í lúxus. Aðrir
eiga í basli, þó menn svelti auðvitað ekki hér á landi. En það eru samt
margir sem eiga erfitt með að láta endana ná saman.“
Peningar spretta
ekki af steinum
Indriði Friðriksson: „Er bilið að breikka? Ég veit það satt að segja
ekki. Sjálfur á ég enga peninga og veit að þeir ríku eru alltaf að verða
ríkari. Pað hlýturað bitnaáeinhverjum. Ekki taka þeirpeningana upp
úr steinunum, svo mikið er víst. Jú ætli það sé ekki að breikka".
Erðanú spurning!
Aðalheiður Eggertsdóttir: „Þarf nú að spyrja um þetta? Auðvitað er
bilið að aukast. Ég hélt að allir vissu það“.
Flugríkt fólk
Elsa Björnsdóttir: „Alveg pottþétt að bilið er að breikka. Ég þekki
marga sem eiga erfitt með að láta enda ná saman, þó auðvitað sé
enginn á heljarþröm. Ástandið er að versna. Hvernig er hægt að bæta
það? Ég hef sjálf enga lausn á því. En það er áreiðanlegt að það eru til
flugríkir einstaklingar á íslandi í dag.“
Þórarinn Jón
Magnússon,
ritstjóri Lúxus
Ekkert
slor sem
fólk er að
kaupa
Hjá SAM-útgáfunni er nýtt
tímarit að hlaupa stokkunum,
heitir Lúxus, á að kynna lúx-
usfólki lúxusvörurog auðga
draumalíf þeirra sem lítil hafa
auraráð. Ritstjórinn er Þórar-
inn Jón Magnússon og við
spyrjum fyrst um markaðs-
horfur:
- Miðað við hvað það eru
margir sem geta lifað af að selja
lúxusvörur held ég að það hljóti
að vera markaður fyrir blað sem
kynnir þær. Skartgripir seljast vel
og bflaumboðin hafa flutt inn
fyrir hundruð milljóna, ferða-
skrifstofurnar seldu sólarlanda-
ferðir fyrir 250 milljónir í sumar;
já það hlýtur að vera markaður
fyrir tímaritið enda ekkert annað
til á þessu sviði.
Hvað heldurðu að þessir lúx-
usneytendur séu margir?
- Ég skal ekki segja, - ég hef
ekki gert mér neina hugmynd um
það. En það eru margir sem
kaupa til dæmis dýr tískuföt, og
það eru engir slorbflar sem fólk er
að keyra um göturnar. Við prent-
um fyrsta heftið af Lúxus í
fimmtán til tuttugu þúsund ein-
tökum, en þá gerum við líka ráð
fyrir lesendum sem hafa áhuga á
þessum vörum en ekki efni á að
nota tímaritið einsog pöntunar-
lista.
Heldurðu að það hafi kannski
fjölgað í lúxushópnum undanfar-
ið?
- Ja, það virðist ekki hafa
minnkað. Sjáðu til dæmis vídeó-
tækin, þótt það sé nú ekki mjög
dýr vara, þau eru seld í stórum
slöttum. Þetta hefur ekki dregist
mikið saman. Það er uppselt
núna í allar innkaupaferðir til
London þótt sagt sé að hér ríki
kreppa.
Er bilið að breikka milli þeirra
sem hafa efni á þessu og hinna
sem hafa það ekki?
- Kannski, en mér virðist það
nú ekki vera svo. Það er nóg af
fólki í ferðalögum sem á að vera á
láglaunatöxtum. Það leggur bara
meira á sig. Fólk neitar sér ekki
um neitt, og segir: fyrst nágrann-
inn getur það þá get ég það líka.
-m
Kaupsýslan hagnast ó
rangri gengisskráningu
Björgvin Jónsson hittum við á skrifstofu Glettings hf. í Austurstræti:
„Ég held að það sé ekkert vafamál að bilið sé að breikka hér á landi.
Orsökin er fyrst og fremst langvarandi röng gengisskráning. Og
auðvitað er það fyrst og fremst kaupsýslustéttin sem hagnast á því. Það
er gefið. Þetta eru afleiðingar Svavars Gestssonar og Steingríms Her-
mannssonar og þeirra stefnu. Auðvitað hefur svo Sjálfstæðisflokkur-
inn haldið áfram þeirri stefnu, því það eru Sjálfstæðismenn sem fyrst
og fremst hagnast á henni, kaupsýsluliðið“.
Það er til mjög fátœkt fólk
Erla Jónsdóttir, Egilstöðum: „Mér virðist á öllu að bilið á milli manna
sé að aukast. Það er til fólk sem hefur það mjög, mjög gott. Aðrir eiga
bágt. Um það er ekki vafi, og þetta bil er að aukast núna“.
Sumir lifa í lúxus
Gunnhildi Emilsdóttur hittum við á tali við vinkonu sína á miðju
Lækjartorgi: „Líttu bara í kringum þig. Af hverju hafa sumir efni á að
kaupa lúxusvarning, nýja bfla og þess háttar? Af hverju hafa sumir efni
á að lifa hátt en aðrir ekki? Af því það eru tvímælalaust til fólk sem er
sprengríkt. En það er líka til mjög fátækt fólk á íslandi ég veit vel um
það. Fólk skiptist í hátekjufólk sem sumt hefur meir en 100 þúsund á
mánuði meðan við lágtekjufólkið erum með um 13 þúsund á mánuði.
Auðvitað hefur bilið verið að breikka að undanförnu".
Margir eiga bágt
Sigurður Þorsteinsson: „Greinilega. Það er ekki nokkur vafi á þvf.
Sumir hafa einfaldlega miklu meira fé handa á milli en aðrir. Ég er ekki
í nokkrum vafa um að það er til mjög fátækt fólk á íslandi. Það er hins
vegar staðreynd líka, að í okkar þjóðfélagi eru til menn sem hafa
komið ár sinni mjög vel fyrir borð. Bilið hefur aukist á síðustu árum“.
Sunnudagur 9. desember 1984 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 17